Skessuhorn - 05.10.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 202214
Snæfellsnesvegur (54) sem liggur
frá Vestfjarðavegi 60 úr Suður-
-Dölum um Skógarströnd og að
Stykkishólmi er um 66 kílómetra
langur og er í daglegu tali kall-
aður Skógarstrandarvegur. Þessi
vegarkafli er að mestu malar-
vegur en fyrstu tíu kílómetrar hans
austan frá eru með bundnu slitlagi,
þ.e. þegar ekið er inn á veginn af
Vestfjarðavegi.
Unnið að endur
byggingu 5,4 km kafla
Síðari hluta árs 2020 var endur-
byggður 1,7 km kafli frá Blöndu-
hlíð að Ketilsstöðum en þá hafði
bundna slitlagið í mörg ár endað
við Blönduhlíð. Næsta verk sem
boðið var út voru framkvæmdir á
5,4 km kafla frá Ketilsstöðum að
Gunnarsstöðum. Það er í vinnslu
núna og felur í sér endurbyggingu
þess vegarkafla og byggingu tveggja
brúa, yfir Skraumu og Dunká. Því
verki á að vera að fullu lokið sum-
arið 2023. Þá hefur það verk verið
gagnrýnt af íbúum sem segja nýja
veginn breiðan, hann rúmi hér um
bil þrjár akreinar. Illa sé þar farið
með fé og efni sem frekar ætti að
nota til að klæða lengri vegarkafla.
Skógarstrandarvegurinn þurfi
ekki að vera svona mikið mann-
virki. Í því sambandi ber að nefna
að hönnun vega í dag tekur mið af
evrópskum stöðlum hverju sinni.
Áratugir í endurbætur
Þegar fyrrnefndu verki lýkur
stendur eftir um 50 kílómetra langur
malarvegur sem tengir saman Dali
og Snæfellsnes. Nokkuð ljóst er að
ef áfram heldur sem horfir munu
árin skipta tugum þar til leiðin
verður að fullu bundin slitlagi.
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
hins vegar skorað á stjórnvöld; „að
líta á þessa stöðu sem neyðarástand
og veita sérstöku fjármagni til þessa
vegar þannig að á næstu tveimur
árum verði lokið lagningu bund-
ins slitlags á veg 54,“ en það segir í
bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar
frá 18. ágúst sl. Þar segir einnig að;
„Skógarstrandarvegur, með þverun
Álftafjarðar, er forsenda fyrir auknu
samstarfi sveitarfélaga við Breiða-
fjörð og góðri tengingu Snæfells-
ness, Dala, Vestfjarða og Norður-
lands.“ Þá er Skógarstrandarvegur
eini stofnvegur á Vesturlandi sem
er án bundins slitlags og sá lengsti á
láglendi landsins alls.
Vegurinn er erfiður
og slæmur, en
leiðin er falleg
Í fyrrnefndri fundargerð sveitar-
stjórnar Dalabyggðar segir enn
fremur að „einstaka ferðaþjón-
ustufyrirtæki hafa bannað sínum
ökumönnum og fararstjórum að
aka þessa leið sökum þess hvað veg-
urinn er í slæmu ástandi.“ Skessu-
horn hefur jafnframt aðrar heim-
ildir fyrir því.
Guðrún Björg Bragadóttir á
og rekur gisti- og veitingastað-
inn Dalahyttur sem staðsettur er
í Hörðudal í Dölum en ekið er
inn í Hörðudal af Snæfellsnes-
vegi. „Við höfum rekið okkur
margoft á það að ferðaþjónustu-
aðilar á Snæfellsnesi bendi ferða-
mönnum á að þetta sé ömurlegur
vegur og ráðleggi þeim frá því
að keyra hann. Það er alveg rétt
að vissu leyti að vegurinn er erf-
iður og slæmur en menn eru samt
að missa af þegar þeir fara ekki
þennan veg því það er ofboðslega
fallegt að keyra þarna. Ég hef oftar
en ekki fengið að heyra frá mínum
gestum að þeim hafi verið ráðlagt
frá því að keyra þennan veg,“ segir
Guðrún og nefnir að hún hafi átt
samtöl við aðra ferðaþjónustuað-
ila í Dölum sem hafi sömu sögu
að segja. Sumir hafi jafnvel lent í
því að hópar sem væntanlegir voru
utan af Snæfellsnesi afboði komu
sína á síðustu stundu sökum þess
að þeim hafi verið ráðlagt frá eða
bannað að keyra Skógarströndina.
Þá er vegurinn heldur ekki þjón-
ustaður daglega og er því ástand
hans skráð sem „óþekkt“ eða „ekki
greiðfært“ á síðu Vegagerðarinnar
um færð á vegum.
Fá ekki stóra hópa því
rútur keyra ekki veginn
„Rútur keyra ekki Skógar-
strandarveginn eða í mesta lagi
litlar rútur. Okkur sem stundum
ferðaþjónustu hér, eins og í
Hörðudal, stendur bara ekki til
boða að taka á móti stórum hópum
af því rútubílstjórar vilja ekki keyra
þennan veg. Það væri líklega mikið
meira um stóra hópa ef Skógar-
strandarvegurinn væri góður. Ég
er ekki að fara að stækka minn
rekstur eða bæta við fleiri her-
bergjum af því hingað koma ekki
stórir hópar,“ segir Guðrún og
bætir við: „Þegar maður er að segja
fólki til þarf maður að segja satt
og rétt frá en mér finnst samt að
við verðum að passa að tala okkur
ekki niður og ekki skemma fyrir
öðrum,“ segir Guðrún og vísar
þar í ummæli annarra ferðaþjón-
ustuaðila um Skógarstrandarveg-
inn. „Varðandi þennan vegarkafla
þurfa menn bara að fara að girða
sig í brók og drífa þetta af. Ef við
horfum bara á áhrifin sem bættur
vegur þarna myndi hafa á nærsam-
félagið þá myndum við Dalamenn
nýta Snæfellsnesið og þjónustuna
þar mun meira en við gerum og
jafnvel leita þangað frekar en að
fara í Borgarnes. Og svo þegar
talað er um hugsanlega samein-
ingu sveitarfélaga eins og hér við
Breiðafjörð þá hugsar maður; er
ég að fara að nenna að keyra þetta
reglulega,“ segir Guðrún Björg
Bragadóttir, eigandi Dalahytta.
Bílaleigur banna
keyrslu á Fvegum
F-merktir vegir eru landsvegir og
einkum slóðar. Þeir vegir sem eru
F-merktir flokkast sem 1) seinfærir
og eru færir allri almennri umferð
að sumarlagi, 2) Lakfærir og eru þá
færir fjórhjóladrifnum bílum eða
öflugum fólksbílum og jepplingum,
3) Torfærir og eru einungis færir
stórum og vel búnum fjórhjóla-
drifnum bílum. Öll eiga þessi atriði
við um veg 54 um Skógarströnd,
þótt hann sé stofnvegur.
Margrét Björk Björnsdóttir, fag-
stjóri hjá Áfangastaða- og Mark-
aðsstofu Vesturlands, hefur sjálf
heyrt af því að ferðaþjónustuaðilar
á svæðinu hafi þurft að veita ferða-
mönnum áfallahjálp sem keyrt hafa
veginn. „Ferðamönnum á bíla-
leigubílum er bannað að keyra á
F-vegum en svo lenda þeir á stofn-
vegi sem er verri en F-vegir, skilj-
anlega eru þeir hissa yfir því. Ég hef
líka heyrt af því að ferðaþjónustu-
aðilar séu að láta ferðamenn vita af
því að það séu framkvæmdir á veg-
inum, hann sé holóttur og seinfar-
inn,“ segir Margrét en þar vísar
hún í ákvæði sem margar bílaleigur
eru með sem banna leigutökum að
keyra ákveðna vegi.
Ef tekið er dæmi um Bílaleigu
Akureyrar stendur þar í leiguskil-
málum að; „Akstur bílaleigubíla á
vegum eða slóðum sem ekki hafa
vegnúmer er bannaður. Strang-
lega bannað er að aka fólksbílum
og eindrifsbílum á vegum sem eru
F-merktir á opinberum kortum
ásamt Kjalvegi (vegur 35) og um
Kaldadal (vegur 550), slíkt er aðeins
heimilt á fjórhjóladrifnum jeppum
sem leigusali samþykkir til aksturs
á slíkum vegum.“ Ferðamönnum
á bílaleigubílum er því heimilt að
keyra veginn um Skógarströnd því
hann er skráður stofnvegur þótt
hann sé jafnvel í verra ásigkomulagi
en ýmsir F-vegir.
Google Maps
sýnir stystu leið
Margrét nefnir einnig þá staðreynd
að Google Maps ráðleggi ferða-
mönnum að fara Laxárdalsheiðina
og Skógarströndina þegar komið
er til Stykkishólms að norðan því
það er stysta leiðin sé horft til kíló-
metrafjölda. „En Skógarströndin er
fallegt svæði og ég hlakka til þegar
nýr vegur kemst þar í gagnið og
hægt verður að nýta hann og ég
held að það muni skipta miklu máli
fyrir ferðaþjónustuna á þessu svæði.
Vegurinn um Skógarströnd eins og
hann er í dag er mjög hamlandi
fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á
þessu svæði.“
Hægt er að keyra veginn
yfir sumartímann á
þokkalega háum bíl
Edward Guerrero hefur starfað sem
móttökustjóri á Fosshótel Stykkis-
hólmi í hálft annað ár. Aðspurður
um Skógarstrandarveginn segir
hann að starfsfólk hótelsins ráð-
leggi sínum gestum alfarið frá því
að keyra þann veg að vetri til, um
leið og byrjar að snjóa eða frysta.
Yfir sumartímann og ef veður er
þokkalegt hafa þau sagt við gesti
sína að hægt sé að keyra þennan veg
ef þeir eru á bíl sem er ágætlega hár.
Ef gestir eru á litlum bílum er þeim
ráðlagt að fara ekki um veginn.
Hann segir að flestir gestir hót-
elsins taki þá annað hvort ferjuna
yfir til Vestfjarða eða fari frá Stykk-
ishólmi norður í land. Þá er þeim
ráðlagt að keyra til Borgarness og
þaðan á Þjóðvegi 1 norður yfir
Holtavörðuheiði. Sé leiðinni frá
Stykkishólmi til Akureyrar hins
vegar slegið inn í Google Maps
ráðleggur forritið fólki að keyra
Skógarstrandarveginn og Laxár-
dalsheiði til að komast þangað í
stað þess að fara Vatnaleiðina, út á
Mýrar og inn á Þjóðveg 1 við Borg-
arnes og yfir Holtavörðuheiðina en
sú leið er öll malbikuð. Vegurinn
um Laxárdalsheiði er tengivegur og
Skógarstrandarvegur er stofnvegur
og eru þeir réttilega skráðir þannig
inn í Google Maps. Forritið hefur
hins vegar enga vitneskju um ástand
stofnvegarins um Skógarströnd.
En á vef Vegagerðarinnar segir að
stofnvegir séu hluti af grunnkerfi
samgangna eins og það er skilgreint
Fréttaskýring
Vegurinn um Skógarströnd – hver er staðan?
Skógarstrandarvegur.
Google Maps segir stystu leiðina frá Akureyri til Stykkishólms vera um Skógar-
strönd og Laxárdalsheiði. Skjáskot. Google Maps
Ákvæði í skilmálum Bílaleigu Akureyrar.
Skjáskot. langtimaleiga.is/is/upplysingar/leiguskilmalar
Hér sést hvernig vegum er skipt upp í ákveðna flokka.
Skjáskot. https://www.vegagerdin.is/vegakerfid/skipting-i-vegflokka/