Skessuhorn - 05.10.2022, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2022 15
í samgönguáætlun hverju sinni og
tengi saman byggðir landsins. Þá
eru meiri kröfur gerðar til stofn-
vega en annarra vegflokka, eins og
héraðs- og landsvega.
Hótelgestir
pirraðir eða hissa
Edward Guerrero segir að vegna
þessara tilmæla Google Maps séu
hótelgestir oft pirraðir eða hissa
þegar þeir mæta á hótelið því þeir
hafi ekki búist við svo slæmum vegi.
Hann segist ekki hafa þurft að veita
hótelgestum sem komið hafa þessa
leið áfallahjálp, en hafi þurft að hlusta
á kvartanir vegna þess að vegur-
inn sé seinfarinn og holóttur. Þá eru
akreinarnar ekki aðskildar með línu
á miðjum vegi og það hræðir fólkið.
Aðspurður um hvað hann ráðleggi
hótelgestum að gera sem vilji fara inn
í Dali, segist hann ekki vera viss. En
fólk sem sé á góðum bílum og sæmi-
lega háum geti keyrt veginn ef veður-
skilyrði eru góð og það sé undir það
búið að fara hægt yfir.
Framkvæmdir við
veginn byrji 20302034
Sveitarfélög á Vesturlandi hafa
staðið einhuga að beiðni um að
framkvæmdum á Snæfellsnesvegi
um Skógarströnd verði flýtt og veg-
urinn endurbyggður. Þau hafa hins
vegar talað fyrir daufum eyrum
fjárveitingarvaldsins og mótmæltu
harðlega árið 2020 þegar ríkis-
stjórnin kynnti 15 ára samgöngu-
áætlun 2020-2034. Áætlunin skipt-
ist í þrjú fimm ára tímabil og gagn-
rýndu sveitarfélögin að engar áætl-
anir eru um undirbúning eða
hönnun nýs vegar um Skógarströnd
fyrr en á öðru tímabili samgönguá-
ætlunar 2025-2029. Þá er gert ráð
fyrir 950 milljónum til undirbún-
ings og hönnunar, en það er ekki
fyrr en á þriðja tímabili áætlunar-
innar 2030-2034 sem 3,1 milljarði
er ráðstafað í framkvæmdir við veg-
inn.
Framkvæmdir milli
Dunkár og Skraumu
Starfshópur á vegum Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
vann samgönguáætlun fyrir Vestur-
land árið 2016, sem samþykkt var af
öllum sveitarfélögum landshlutans,
sem þá voru 10, í byrjun árs 2017.
Í áætluninni kom fram sameigin-
leg framtíðarsýn um uppbyggingu
og forgangsröðun verkefna í sam-
göngu- og fjarskiptamálum á
Vestur landi. Áætlunin hefur orðið
til þess að sveitarfélögin hafa haft
skýra sýn og verið samstíga í mál-
flutningi sínum um bættar sam-
göngur í landshlutanum.
Uppfærð og endurskoðuð Sam-
göngu- og innviðaáætlun Vestur-
lands kom út 2021. Þar segir að
engar framkvæmdir séu á áætlun
fyrir árin 2023 og 2024 sem snúa
að Skógarstrandarvegi en það sé
nauðsynlegt. Enn fremur segir
að þær framkvæmdir sem nú eru
í gangi milli Dunkár og Skraumu
komi til með að kosta 1.100 m.kr
og séu þegar fjármagnaðar.
Á langtímaáætlun fyrir stofnvegi
á Vesturlandi er Skógarströndin þó
á lista og þar segir að verkefni við
að laga þá 50 kílómetra sem eftir
standa sé í undirbúningi. Gert er
ráð fyrir fjórum milljörðum í þær
framkvæmdir á árunum 2025-2034.
Aðaláherslur sveitarfélaga á
Vestur landi eru á Vesturlandsveg
(1), Snæfellsnesveg (54) um Skógar-
strönd og Vestfjarðaveg (60) um
Dali. Þá segir að seinni tveir veg-
irnir séu umferðaþungir og þurfi
mikið viðhald og endurbætur.
Dregið úr fjármagni
til vegamála
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs er dregið úr fjármagni til
vegamála. Sigurður Ingi Jóhanns-
son innviðaráðherra svaraði því í
Kastljósi 21. september sl. að hann
hefði vissulega viljað fá meira fé í
þennan málaflokk. Þá segir hann
að „næsta ár, 2023, er þensluár,
og ef við eigum að forgangsraða
eftir því hvað er nauðsynlegast á
Íslandi í dag, þá er það nauðsyn-
legasta að byggja íbúðarhúsnæði.
Og þessir geirar skarast nú svo-
lítið. Þannig að við erum að leggja
meiri áherslu á að setja kraftinn
þangað. En svona aðeins að halda
aftur af okkur árið 2023. En miðað
við hvernig fjármálin standa, hver
skuldastaða ríkissjóðs er og annað,
þá held ég að það bendi allt til þess
að við getum spýtt aftur í sam-
gönguframkvæmdirnar 2024 og
fram úr.“
gbþ
Skólahlaup Brekkubæjarskóla
á Akranesi, Brekkósprettur, fór
fram síðastliðinn föstudags-
morgun og hófst upphitun fyrir
framan íþróttahúsið við Vest-
urgötu klukkan níu. Í Brekkó-
spretti er hlaupinn hringur sem
er upp Vestur götu að Esjubraut,
Esjubraut á Kalmansbraut, niður
Kalmansbraut og Kirkjubraut
að Merkigerði. Þar er hlaupið
niður að Vesturgötu og að skóla.
Hringurinn er um 2,2 kílómetrar
að lengd og hlaupa og ganga
nemendur eins marga hringi og
hægt er í klukkutíma. Sumir hafa
náð fjórum til fimm hringjum á
þessum tíma sem verður að teljast
mjög góður árangur.
Á helstu gatnamótum eru starfs-
menn skólans til aðstoðar ef þörf
krefur og þá aðstoðar lögreglan við
að allt gangi snurðulaust fyrir sig.
vaks
Brúnu línurnar sýna malarvegi og gráu línurnar sýna bundið slitlag. Milli rauðu
punktanna er Snæfellsnesvegur (54) um Skógarströnd. Kort. Vegagerðin.
Brekkósprettur í Brekkó
Það var góð þátttaka í upphituninni. Ljósm. vaks
Þessar voru hæstánægðar með hreyfinguna. Brynjar íþróttakennari hitaði mann-
skapinn upp.
Nemendur orðnir vel heitir fyrir hlaupið.
Þessir voru fyrstir í hlaupinu á fyrsta hring. Lögreglan sá um að hlauparar hefðu forgang.