Skessuhorn - 05.10.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2022 19
Krossgáta Skessuhorns
Gætni
Drúpa
Mynni
Sómi
Fyrir
stundu
Snið-
ugur
Fór
Kögur
Rölt
1000
Holur
Grípa
Elfuna
Ófús
Rýra
Hyggin
Hugaður
Fæðing Mönd-ull
Dekrar
við
50
Sýni
Fnykur
Vonir
Blíða
22 12
Ernir
Færast
nær
3 Áhald
Sam-
teng.
Egndi
Marr
Grið
Flana
Lík
Blað
Jánka
Fúsk
Faðmur
Ekrur
LæS
Fyrr
Bit
8 Gelt
Hróp
Handrið
Klæð-
leysi
Vein
5
Sérstök
HraV
VorWð
Korn
Farmur
Ókunn
Tíra
Veisla
18
Afa
Næði
Tvíhlj.
Kvað
Ögrun
17
Einnig
Mark
Hökur
19 16
Fjör-
kálfa
Afa
Snagi
Tónn
NauSn
1
Ný
Kra`ur
24
Vatns-
drag
15 Fæðir
NeVur
Þröng
9 20
Suddi
Féll
Snefil
Busl
SSllir
Bor
6 10
Ljóð
Útlim
Að
Svar
Tími
4 21 Hópur
Mar
Grugg
Flan
Kjánar
7
Brast
14
Fæðan
Raun
Grípa
Form
HæVa
Frá
Urg
Yndi
Glögg
Mar
Ílát
Aur
Föl
23
Dugur
GáV
Þreytu
13 2
ÁV
Sýl
Röð
Féllu Væl
11
Dútla
Kvaka
Hali
Hugar-
sýn
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22 23 24
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Krossgáta er birt í
blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnar-
orð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánu-
dögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimil-
isfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Garðabraut 2A, 300 Akra-
nesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að
hún birtist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bók að launum frá bókaútgáfunni Sæmundi.
Í síðustu krossgátu var rétt lausn „Sögustund“. Heppinn þátttakandi
var Jóna Kristrún Sigurðardóttir, Höfðagrund 14-c, 300 Akranesi.
Í R I G N I N G
V A L L Ö Ð U R
A S K U P P N Á
F A L T O R N A
S S T A U P Ó A R
K R E I S T A N R F L Ö
R O F G L U N D U R A U S
A S I L Á R D U G A N
G U T L A K U R L U N D I
T I L F Ó R A S A S T
L E N D A R H A T R Ú E
E Y A U Ð O F F U R M
G G L M L L M L I L A
J Ó L Ó L Á A R Ö X
M A S Æ R F U S S U G L
Y L A R E I S N U X U A
N Ó N A S T A L N A Ð R
D A N S T Í A P A S T U R
S Ö G U S T U N D
1
Uppistandarinn Þórhallur Þór-
hallsson verður með uppistands-
sýningu á Gamla Kaupfélaginu á
Akranesi föstudaginn 7. október.
Blaðamaður Skessuhorns sló á
þráðinn til Þórhalls sem hefur
komið víða við á ferli sínum.
Hvenær byrjaðir þú að vera með
uppistand og hvernig kom það til?
,,Í fyrsta skipti sem ég var með
uppistand var ég bara tvítugur og
var þá að vinna hjá Flytjanda. Það
var árshátíð framundan og ein kona
á skrifstofunni sem bara kom til mín
og tjáði mér það að ég væri að fara að
koma fram á þessari árshátíð. Ég var
kannski ekki duglegasti starfsmað-
urinn en ég hélt uppi móralnum og
var alltaf að grínast. Ég fékk engu
um þetta ráðið, ég þurfti bara að
gera eitthvað uppistand og fór að
skrifa eitthvað niður. Þetta gekk svo
bara vel, ég fékk hláturinn og þegar
maður fær hláturinn þá þarf maður
að gera þetta aftur og aftur,“ segir
Þórhallur.
Breytist stundum
í þrumuguð
Sýning Þórhalls heitir einfaldlega
Þórhallur, en fer hann með sýn-
inguna víða um land? ,,Sýningin var
frumsýnd í Tjarnarbíói í maí og er
búin að vera í þróun núna í langan
tíma. Ég tek sýninguna um allt land
og tala um Covid, ferðalög, skrítna
meðleigjendur, aldurskrísu, nýja
föðurhlutverkið og ýmislegt fleira.
Ég er t.d. búinn að fara á Akureyri,
til Grindavíkur og var að koma frá
Vestmannaeyjum.“ Þórhallur hefur
einnig ferðast erlendis með uppi-
stand sitt, m.a. til Færeyja og Kína.
,,Ég var að ferðast svolítið með
uppistand fyrir Covid, það náttúru-
lega dró úr því um tíma en er að
koma aftur núna. Ég tala um þetta
erlenda uppistand í sýningunni
en oft getur komið upp einhver
misskilningur á slíkum ferðalögum.
Þórhallur er líka svolítið erfitt nafn
en oft breytist maður í þrumuguð
um leið og maður fer til útlanda,“
segir hann.
Veit hvernig
Covid byrjaði
Þórhallur segist m.a. búa yfir upp-
lýsingum um hvernig Covid byrjaði
eftir ferðalag sitt til Wuhan en hann
segist uppljóstra þeim upplýsingum
í sýningu sinni. ,,Ég var með uppi-
stand í Wuhan, vinur minn var þá
að læra í Kína og kann kínversku.
Hann fékk mig og Bjarna töfra-
mann til að fara til fjögurra borga
í Kína með uppistand. Við vorum
svo með uppistand í Wuhan fjórum
dögum fyrir fyrsta Covid tilfellið.
Svo komum við heim og Wuhan
var þá í öllum fréttum, mjög til-
viljanakennt að við höfum verið
þarna á þessum tíma.“ En býrð þú
þá yfir einhverjum upplýsingum
um hvernig Covid byrjaði? ,,Ég er
með sögu um Covid og kenningu
um upphaf þess sem verður ljóstrað
upp á sýningunni,“ segir Þórhallur
og vill ekki gefa meira upp í bili.
Langar að bjóða
fyrrverandi kisunni
Þórhallur segist spenntur að koma
á Akranes en hann á gamlan vin
á Skaganum sem hann langar að
hitta. Þórhallur átti nefnilega kött
sem ber heitið Skottlausi Hösk-
uldur en hann þurfti að gefa Hösk-
uld frá sér þegar hann flutti í hús-
næði þar sem ekki mátti vera með
gæludýr. Skottlausi Höskuldur fór
þá til konu sem bjó á Akranesi, en
hefur Þórhallur reglulega fengið
sendar af honum myndir? ,,Ég hef
heimsótt Akranes og reynt að finna
hann en ekki fundið hann ennþá en
ég þekki nokkra sem búa á Skag-
anum sem senda mér myndir ef
hann sést úti á göngu,“ segir Þór-
hallur. Af hverju er Höskuldur
þó skottlaus? ,,Ég veit ekki hvort
hann heiti ennþá Höskuldur en
hann lenti í bílslysi greyið og missti
skottið sitt en hann er glæsilegur
köttur. Þegar ég bó með hann niðri
í miðbæ voru allir túristarnir alltaf
að taka myndir af honum svo hann
var orðinn mjög frægur köttur.
Ég er auðvitað að vonast til þess
að hann mæti og ég sé fyrir mér
mjög fallega endurfundi. Það gæti
orðið mjög fallegt móment þegar
við hlaupum á móti hvor öðrum
á Langasandi og föllumst í faðma.
Því má bæta við að konan sem á
Höskuld núna á að sjálfsögðu frían
miða á sýninguna og má koma með
hann, kannski réttara að segja að
Höskuldur eigi miða plús einn.“
sþ
Stór styrkur til
Háskólans á Bifröst
Háskólinn á Bifröst er aðili að nýju
alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem
heitir IN SITU en það er verkefni
sem er styrkt af Horizon sjóði fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins. Samstarfsaðilar Háskólans á
Bifröst í verkefninu eru Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og
Breið þróunarfélag en að verkefninu
koma í heild sinni 13 samstarfsað-
ilar frá 12 löndum. Heildarstyrkur
þess nemur samtals 555 milljónum
króna og hlaut Háskólinn á Bifröst
styrk upp á 64 milljónir.
Áherslur samstarfsáætlunar fram
til 2027 eru á sviði rannsókna, þró-
unar og menntunar og tengslum
þeirra þátta við atvinnusköpun,
samkeppnishæfni og þarfir íbúa.
Þátttaka í verkefninu gerir Háskól-
anum á Bifröst kleift að stunda
rannsóknir á staðbundnu samhengi
menningar og skapandi greina,
stefnumótun og áhrifum nýsköp-
unar í dreifbýli ásamt uppbyggingu
á alþjóðlegu tengslaneti.
Kjarni rannsóknarinnar á Íslandi
felst í að koma upp tilraunastofu á
Vesturlandi þar sem unnið verður
með einstaklingum og fyrirtækjum
í skapandi greinum og skoðað
hvernig styrkja megi starfsgrund-
völl þeirra til framtíðar litið.
gbþ
Býður kettinum Skottlausa
Höskuldi sérstaklega á sýningu
Uppistandarinn Þórhallur Þórhallsson verður með sýningu á Gamla Kaupfélaginu
á Akranesi föstudaginn 7. október.