Fréttablaðið - 01.11.2022, Side 1
2 4 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Leiklesinn
Einar Áskell
Líður best utan
sviðsljóssins
Lífið ➤ 18Menning ➤ 14
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.volkswagen.is/taigo
Tímalausi
töffarinn Taigo
Rúmgóður smábíll með frábæra aksturshæfni bæði til innanbæjaraksturs
og á þjóðvegum landsins. Verð 4.890.000 kr.
Ríkisstjórnarsamstarf
ið stæði hallari fæti ef fjár
málaráðherra hætti í pólitík,
að mati stjórnmálafræðings.
Áherslur Guðlaugs ekki
endilega í anda stjórnar
sáttmálans.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Mikið er undir í sam
félaginu, hvort Guðlaugur Þór
Þórðarson eða Bjarni Benediktsson
sigrar í slagnum um formann Sjálf
stæðisflokksins.
Þetta segir Stefanía Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur, sem spáir því
að ríkisstjórnarsamstarfið gæti
laskast ef Guðlaugur Þór sigrar.
„Ef Bjarni tapar og dregur sig í hlé
mun það þýða endurmat á stjórnar
samstarfinu,“ segir Stefanía. Ef
Guðlaugur vilji lækka skatta í sam
ræmi við yfirlýsingar og draga úr
ríkisútgjöldum, þá rími það ekki
endilega við stjórnarsáttmálann.
„Það er mjög mikið undir og ég
er undrandi á þessu framboði Guð
laugs Þórs. Það væri allt annað
uppi á teningnum ef það drægi að
alþingiskosningum eða ef Bjarni
hefði íhugað að stíga til hliðar.“
Einstætt er að sitjandi formaður
Sjálfstæðisf lokksins hafi fengið
mótframboð sem sitjandi oddviti í
ríkisstjórn, að sögn Stefaníu.
Er Davíð Oddsson lagði Þorstein
Pálsson, var Sjálfstæðisflokkurinn
utan ríkisstjórnar og kosningar
fram undan.
Þegar Bjarni bauð sig fram til for
manns árið 2009 voru vísbendingar
um að Geir Haarde ætlaði að draga
sig í hlé. Bjarni vann Kristján Þór
Júlíusson í slag og hafði í tvígang
betur síðar, eftir mótframboð frá
Pétri Blöndal og Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur.
Styrkur Bjarna Benediktssonar
felst í því, að sögn Ólafs Þ. Harðar
sonar stjórnmálafræðings, að
Bjarni hefur leitt f lokkinn óslitið
í ríkisstjórn frá 2013. Ólafur segir
vísbendingar um að Guðlaugur
Þór meti sigurmöguleika sína all
nokkra.
„Maður myndi ætla að Guð
laugur ætti undir högg að sækja, í
ljósi þess mikla árangurs Bjarna að
tryggja f lokknum sæti í ríkisstjórn
svo lengi,“ segir Ólafur. „En það er
varasamt að vanmeta Guðlaug.
Hann er með mjög öf lugan her
stuðningsmanna og líklegt að hann
hafi kortlagt landsfundar fulltrúa
vel. Mér þykir líklegt að Guðlaugur
telji að hann eigi þokkalega mögu
leika, að vinna, eða tapa með litlum
mun.“
Fæstir Sjálfstæðismenn sem
Fréttablaðið hefur rætt við vilja
tjá sig opinberlega, en f leiri hallast
að því að Bjarni muni hafa sigur á
landsfundi f lokksins um helgina.
Í Fréttavaktinni á Hringbraut
í gærkvöldi kom fram hjá Guð
laugi Þór að honum hefði fundist
miður þegar Bjarni tjáði sig um að
hann myndi hætta ef hann tapaði.
Bjarni sagðist í þættinum berjast
til sigurs. n
Segir sigur Guðlaugs Þórs geta veikt stjórnina
Mér þykir líklegt að
Guðlaugur telji að
hann eigi þokkalega
möguleika.
Ólafur Þ. Harðarson
stjórnmálafræðingur
Alls konar kynjaverur hafa verið að hlaupa um höfuðborgarsvæðið í leit að grikk eða gotteríi að undanförnu, en Hrekkjavakan var í gær. Við Sundlaugarveginn í Laugardal birtust skyndilega tvær
risaeðlur og ein furðuvera í miklu stuði. Eins gott að einn pabbinn var með – þó málaður væri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN