Fréttablaðið - 01.11.2022, Page 6
VERÖLD
HVÍLDAR
BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
Verð 10.900 kr.
www.betrabak.is
STORMUR HEIL SUINNISKÓR
Með NÍU svæða nuddinnleggi nærðu slökun og vellíðan sem
dregur úr spennu og örvar blóðflæði. Heilsuinniskórnir eru
fallegir, hlýir og einstaklega þægilegir.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
MJÓBAK & HRYGGUR
NÝRU & HNÉ
STUÐNINGUR VIÐ LANG-
BOGANN & MJÓBAK
LUNGU, HJARTA &
FRAMRISTARBEIN
ENNISHOLUR
HÖFUÐ
HÁLS
AUGU
EYRU
9 SVÆÐA NUDD-
INNLEGG ÚR LEÐRI
Verð 13.900 kr.
SILKIKODDAVER
100% Mulberry silki með koparögnum.
50x70 cm. Hvítt, blátt eða grátt.
JOOP RÚMFÖT
Vönduð og glæsileg rúmföt. 100%
egypsk bómull. Hnökrar ekki og
er silkimjúk viðkomu.
140x200 cm.
Verð frá 27.900 kr.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Örfáir félagsmenn eru nú
eftir í íslenska esperantó
sambandinu sem selt hefur
húsnæði sitt og reynir nú að
finna bókakosti sínum fram
tíðargeymslustað.
gar@frettabladid.is
MENNING „Þetta safn er mikil
vægur hluti af sögu alþjóðahyggju á
Íslandi,“ segir Benedikt Hjartarson,
bókmenntafræðingur og stjórnar
maður í Íslenska esperantósam
bandinu, sem hefur ekki lengur
bolmagn til að varðveita safn sitt
af bókum og öðrum ritum.
Að sögn Benedikts er um að
ræða í kringum sex þúsund bækur
og tímarit á esperantó frá ýmsum
löndum. Íslenska esperantósam
bandið sem haf i það hlutverk
að varðveita og kynna tungumálið
esperantó á Íslandi, hafi nýlega
selt húsnæði sitt á Skólavörðustíg
6b, þar sem félagsmenn réðu ekki
við rekstur þess.
Esperantistar sáu fyrir sér að
safnið yrði best geymt á Lands
bókasafninu og leituðu þangað.
„Þetta safn væri þá bæði varð
veitt og með skráningu kannski
aðgengilegra heldur en það hefur
verið,“ segir Benedikt, sem kveður
esperantista hafi boðist til að leggja
fram fjármagn til að standa straum
af kostnaðinum.
„Þetta fór í stuttu máli sagt í
strand á endanum. Kannski voru
einkennilegustu svörin þau að
þessar bækur hreyfðust svo lítið –
sem er náttúrlega alveg hárrétt, en
það er kannski einmitt þess vegna
sem er mikilvægt að varðveita
svona söfn,“ útskýrir Benedikt.
Að sögn Benedikts er um að ræða
rit sem eru mikilvæg fyrir rann
sóknir á hreyfingu esperantista.
„Þetta er hreyfing sem á ákveðn
um tímabilum gegnir miklu og
forvitnilegu hlutverki í alþjóða
hyggju. Það eru til dæmis kaf lar í
þeirri sögu sem hafa sterk tengsl
inn í vinstri hreyfinguna,“ segir
Benedikt.
Ýmissa grasa kennir í safninu.
„Eitt af því sem er einkenni á
þessu sem alþjóðlegu safni, er að
þar er mikið af bókum úr ólíkum
áttum,“ segir Benedikt og nefnir
þýddar bækur úr kínversku, búl
görsku, ungversku og tékknesku
sem dæmi.
Einn helsti esperantisti Íslands er
rithöfundurinn Þórbergur Þórðar
son heitinn. Árið 2020 kom út
íslensk þýðing Kristjáns Eiríksson
ar á ýmsu sem Þórbergur skrifaði
á esperantó á þriðja og fjórða tug
tuttugustu aldar. Þar segir Bene
dikt meðal annars vera greinar sem
Þórbergur skrifaði í erlend tímarit
um íslenskar bókmenntir, pólitík
og samfélagsmál.
Esperantisar þurfa f ljótlega að
afhenda nýjum eiganda húsnæðið
á Skólavörðustíg og enn er óljóst
hvað verður um safnið. „Ætli það
fari ekki í kassa og í geymslu í bili
á meðan við reynum að finna út úr
því,“ segir Benedikt Hjartarson. n
Landsbókasafnið hafnar
sex þúsund esperantóritum
Benedikt Hjartarson í Íslenska esperantósambandinu við húsnæðið á Skóla-
vörðustíg sem nú hefur verið selt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þetta fór í stuttu máli
sagt í strand á end-
anum.
Benedikt Hjartarson, bók-
menntafræðingur og stjórnar-
maður í Íslenska esperantósam-
bandinu
thorgrimur@frettabladid.is
DANMÖRK Danir halda á kjörstaði
í dag til að kjósa nýtt þing og nýja
ríkisstjórn. Aðdragandi þess að
kosið er nú tengist ákvörðun Mette
Frederiksen forsætisráðherra um að
láta lóga öllum minkum í Danmörku
árið 2020 eftir að kórónaveirusmit
greindist í nokkrum minkabúum.
Í skýrslu sem birt var í október
sagði að þessi fjöldalógun hefði ekki
staðist lög. Í kjölfar skýrslunnar
skoraði Sofie Carsten Nielsen, leið
togi Róttæka vinstriflokksins, á Fre
deriksen að kalla til kosninga, ella
myndi flokkurinn styðja vantrausts
tillögu gegn stjórninni. Nielsen fékk
sínu framgengt.
Fyrrverandi forsætisráðherrann
Lars Løkke Rasmussen, sem var
við völd á árunum 2009 til 2011 og
2015 til 2019, hefur sett svip sinn á
kosningabaráttuna. Hann stofnaði
nýjan f lokk, Hófsemdarflokkinn
(Moderaterne), með það gagngert
að markmiði að brjóta upp blokka
pólitík danskra stjórnmála og opna á
möguleikann á samstarfi yfir miðju.
Skoðanakannanir benda til þess
að flokkur Løkke, sem mælist með
um níu prósenta fylgi, gæti komist
í oddastöðu við myndun nýrrar
ríkisstjórnar, hvort heldur til hægri
eða vinstri – og væri þá jafnvel ekki
útilokað að Løkke gæti samið um
forsætisráðherrastólinn á ný.
Flokkur Løkke er ekki eina klofn
ingsframboðið úr Venstre sem kann
að gera sig gildandi eftir kosning
arnar. Inger Støjberg, fyrrverandi
innflytjendamálaráðherra, stofnaði
nýjan flokk, Danmerkurdemókrata.
Líkt og nafnið gefur til kynna
sver f lokkurinn sig í ætt við Sví
þjóðardemókrata sem náðu miklum
árangri í þingkosningum Svíþjóðar í
september og styðja nú minnihluta
stjórn hægriflokkanna þar í landi.
Flokkurinn er fylgjandi strangri
innflytjendastefnu og er tortrygginn
í garð Evrópusambandsins. n
Nýir flokkar skapa óvissu í dönsku þingkosningunum
Lars Løkke Rasmussen gæti orðið
forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins og
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverf
is, orku, og loftslagsráðherra, mætt
ust á Fréttavaktinni í gærkvöldi.
Bjarni sagði þar að framboð Guð
laugs hefði ekki komið sér á óvart en
fannst tímasetningin undarleg.
„Tímasetningin kemur mér á
óvart á þessum tímapunkti á kjör
tímabilinu en hitt kemur mér ekki á
óvart að fólk í Sjálfstæðisflokknum
vilji láta til sín taka,“ sagði Bjarni.
Guðlaugur benti á að hann væri
ekki kominn í þáttinn til að gagn
rýna sinn formann heldur frekar
fara yfir það sem hægt væri að gera
betur. Hann sagði jafnframt að
hann hefði fundið fyrir miklum
stuðningi frá aðilum sem hafi fjar
lægst Sjálfstæðisf lokkinn en séu
tilbúnir að snúa til baka nái hann
kjöri. „Núna þegar þetta er komið
fram þá er fólk sem er fyrir utan
flokkinn og var hjá okkur, sem segir
að ef þú verður kosinn formaður þá
kem ég aftur heim. Mér þykir vænt
um það,“ sagði Guðlaugur.
Bjarni sagði aðspurður að Sjálf
stæðisflokkurinn væri ekki klofinn.
„En við getum sagt að það er
deigla í Sjálfstæðisflokknum og þar
er verið að vinna með það hvernig
við ætlum að spila úr stöðunni
hverju sinni og hverjir ætla að taka
þátt í að móta framhaldið og leiða
okkur inn í framtíðina. Þannig að
við erum lifandi stjórnmálaafl og
mér þykir mjög vænt um að sjá að
það er kraftur í aðdraganda þessa
fundar, það hefur vaknað líf úti um
allt land,“ segir Bjarni. n
Segir Sjálfstæðisflokkinn ekki klofinn
Bjarni og Guðlaugur Þór mættu á
Fréttavaktina í gær á Hringbraut.
6 Fréttir 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ