Fréttablaðið - 01.11.2022, Page 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember 2022
Flutt voru inn 123 tonn af graskerum
fyrir hrekkjavökuna í fyrra.
elin@frettabladid.is
Víða má sjá grasker eftir hrekkja
vökuna í gær. Grasker eru ómiss
andi partur af því að halda illum
öndum frá heimilinu á þessum
degi. Siðurinn kemur upphaflega
frá Keltum sem fögnuðu nýju ári
31. október. Til að halda illum
öndum í burtu ristu þeir skelfileg
ljósker úr rófum og settu fyrir utan
dyr sínar.
Á 19. öld fluttu þúsundir Kelta
til Bandaríkjanna og tóku með
sér luktarhefðina á þessum degi.
Vandamálið var að rófur fengust
ekki vestan hafs svo Keltar tóku
upp á því að nota grasker í staðinn.
Bandaríkjamenn hafa alltaf
ræktað mikið af graskerum. Forn
leifafræðingar hafa fundið út að
grasker voru ræktuð þar í landi allt
að 4.000 árum fyrir Krist. Langflest
grasker eru æt en sum eru betri
til matar en önnur. Þess vegna er
þeim skipt í tvo flokka, matar
grasker og skrautker.
Risastórt grasker í Tívolíinu
Vinsældir graskera hafa aukist
jafnt og þétt og framleiðslan sömu
leiðis. Í október í fyrra voru flutt
inn hingað til lands 123 tonn af
graskerum fyrir hrekkjavökuna.
Stærsta grasker í Danmörku er
í Tívolíinu í Kaupmannahöfn.
Það er hvítt og vegur um 870 kíló.
Heimsins stærsta grasker óx á Ítal
íu og vegur 1,2 tonn. Það er hægt
að nýta innvolsið úr graskerinu og
fræin má þurrka og borða. n
Vinsæl grasker
Hjónin Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir eru eigendur Fætur toga og sérfræðingar í göngu- og hlaupagreiningum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skódoktorinn fagnar sínum 75
þúsundasta viðskiptavini
Það var hátíð í bæ hjá Fætur toga í liðinni viku þegar skódoktorinn Lýður B. Skarphéðins-
son tók á móti viðskiptavini númer 75.000 í göngugreiningu. Fyrirtækið er leiðandi í
göngugreiningu og tók á dögunum í notkun fullkomnasta búnað sem völ er á til verksins. 2
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI