Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 10
10 Fréttir 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁSIN Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR
Ekkert lát er á átökum í Úkraínu þótt ákveðin
festa hafi færst á víglínurnar á síðustu vikum.
Í gær bar það helst til tíðinda að Rússar til-
kynntu að þeir hygðust hörfa með herafla
sinn frá borginni Kherson í suðvesturhluta
landsins. Kherson er eina úkraínska héraðs-
höfuðborgin sem hefur fallið í hendur Rússa
frá því að innrásin hófst og er jafnframt inni
á því landsvæði sem Vladímír Pútín limaði
formlega inn í rússneska sambandsríkið í
september. Má því ætla að ákvörðun um að
hörfa þaðan sé ekki tekin af geðþótta.
thorgrimur@frettbladid.is
Hildarleikurinn í Úkraínu heldur áfram
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, fylgist með herþjálfun úkraínskra hermanna á Englandi. Bretar hafa
boðist til að þjálfa um 19.000 úkraínska hermenn í næði fjarri vígstöðvunum í heimalandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Íbúar Kænugarðs bíða á strætóstöð í niðamyrkri á mánu-
dagskvöld. Rafmagnsleysi er orðið títt í úkraínskum
borgum vegna árása Rússa á orkuinnviði landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Rússneski hershöfðinginn Sergej Súrovíkín, flytur skýrslu um stöðu mála í Kherson fyrir nafna
sinn Sergej Shojgú, varnarmálaráðherra Rússlands. Áætlað er að rússneskir hermenn muni hörfa
frá Kherson-borg yfir fljótið Dnjepr á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Úkraínumenn í Lvív í helgiathöfn við útför úkraínskra hermanna sem hafa látist í styrjöldinni.
Rússneskir
kommúnistar
héldu upp á
105 ára afmæli
rússnesku októ-
berbyltingar-
innar í Moskvu
á mánudaginn.
Þótt rússneski
kommúnista-
flokkurinn sé
stjórnarand-
stöðuflokkur
að nafninu til
eru langflestir
flokksmeðlimir
einarðir stuðn-
ingsmenn inn-
rásarinnar, enda
er litið á stríðið
í Úkraínu sem
nýja viðureign
gegn nasisma.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY