Fréttablaðið - 10.11.2022, Page 15
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
JAGUAR I-PACE EV320 SE
Nýskr. 7/2021, ekinn 6 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 10.490.000 kr.
Rnr. 149047.
RANGE ROVER VOGUE P400e
Nýskr. 8/2019, ekinn 40 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 15.990.000 kr.
Rnr. 334196.
JAGUAR I-PACE EV400 HSE
Nýskr. 7/2019, ekinn 32 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 9.590.000 kr.
Rnr. 421047.
LAND ROVER Discovery Sport 150d
Nýskr. 5/2020, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur.
Verð: 8.390.000 kr.
Rnr. 149446.
RANGE ROVER Sport HSE Dynamic P400e
Nýskr. 4/2019, ekinn 114 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 10.890.000 kr.
Rnr. 149457.
JAGUAR F-PACE 180d Portfolio
Nýskr. 3/2019, ekinn 44 þús. km, dísil, sjálfskiptur.
Verð: 7.990.000 kr.
Rnr. 148334.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
3
2
3
3
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
6
b
íl
a
r
1
0
n
ó
v
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
VG hélt flokksráðsfund í haust og
Sjálfstæðisflokkur landsfund um
liðna helgi.
Þögnin um stærstu málin, sem
blasa við almenningi og atvinnu-
lífi, var á báðum fundunum meira
áberandi en það sem ályktað var.
Sú þögn sýnir hvernig frjálslynd,
hófsöm og klassísk borgaraleg
pólitík hefur gufað upp í stjórnar-
samstarfinu og vinstri pólitíkin er
föst í blindgötu.
Orkuöflunin
Fyrir liggur að tvöfalda þarf
orkuöflun ef markmið stjórnar-
sáttmálans um græna iðnbyltingu
og full orkuskipti á næstu sautján
árum eiga að nást.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
farið með orkumálin í níu ár án
þess að setja fram tímasetta áætlun
um orkuöflun.
Þetta er eitt af helstu viðfangs-
efnum þjóðarinnar á næstu árum.
Hvorugur þessara tveggja höfuð-
flokka ríkisstjórnarinnar notaði
þessa fundi með grasrótinni til
þess að ræða og knýja á um skýra
stefnu á þessu sviði.
Leiðtogar beggja flokka láta
duga að segja þjóðinni að njóta
þeirra ákvarðana um hitaveitur og
stórvirkjanir sem teknar voru fyrir
áratugum.
Þvingunarlögin
Sú ákvörðun ríkisstjórnarflokk-
anna að færa ábyrgð ríkissjóðs
vegna ÍL-sjóðs yfir á lífeyrisþega
og sparifjáreigendur minnir á
þá aðferðarfræði við fjármála-
snúninga á einkamarkaði, sem
afhjúpaðist í hruninu og er enn
fyrir dómstólum.
Um leið er ákvörðunin ein-
hver mesta atlaga stjórnvalda að
sparnaði sjálfstæðrar millistéttar í
landinu frá því hann brann óverð-
tryggður upp í 80 prósent verð-
bólgu.
Ríkisstjórnin ætlar að afgreiða
þvingunarlögin fyrir jól. Aðgerðin
hefur því augljóslega verið lengi í
undirbúningi. Samt var hún ekki
kynnt fyrir flokksráði VG.
Hitt er þó enn eftirtektarverðara
að þingflokkur sjálfstæðismanna
óskaði ekki eftir stuðningi lands-
fundar við væntanleg þvingunar-
lög. Sennilega eru þau ekki nógu
lystaukandi til að bera á borð í
lýðræðisveislu.
Heilbrigðisáætlunin
Heilbrigðismálin hafa verið í
uppnámi öll fimm árin, sem ríkis-
stjórnin hefur setið. Fyrir þremur
árum náði hún þó samstöðu með
stjórnarandstöðunni um heilbrigð-
isáætlun til 2030 og enn fremur um
krabbameinsáætlun til sama tíma.
Þessi plögg eru hins vegar
dauður bókstafur ofan í skúffu.
Ástæðan er sú að hvorug áætlunin
hefur verið tengd við fjármála-
áætlun og hvorug þeirra hefur
verið tímasett.
Hvorki VG né Sjálfstæðisflokkur-
inn sáu ástæðu til að ræða og
álykta um mikilvægi þess að tengja
þessar áætlanir við veruleika fjár-
málaáætlunar.
Skuldavandinn
Vaxtagjöld ríkissjóðs eru tvöfalt
hærra hlutfall af þjóðarframleiðslu
en hjá skuldugustu ríkjum Evrópu
og fimmfalt hærri en á öðrum
Norðurlöndum. Þetta er helsta
ástæðan fyrir fjárhagsþrengingum
heilbrigðiskerfisins.
Vaxtaálag á skuldabréf ríkissjóðs
er verulega hærra en í Bretlandi.
Það heitir jafnvægi hér en Bretar
telja það til marks um að þeir séu á
bjargbrúninni.
Orkuverðið hefur risið upp í
himinhæðir í grannlöndunum
meðan það er óbreytt hjá okkur.
Samt er verðbólgan jafnhá hér.
Atvinnulífið gagnrýnir ríkis-
stjórnina fyrir að kynda undir
verðbólgu með of litlu aðhaldi og
að færa skuldavandann yfr á næstu
ríkisstjórn.
Engar umræður fóru fram á
fundum flokkanna tveggja um
þennan grundvallarvanda í
þjóðarbúskapnum, fyrir utan lof-
orð fjármálaráðherra um umtals-
verða skattalækkun án lækkunar
útgjalda.
Samkeppnisvandinn
Í vor birti Viðskiptaráð vandaða
alþjóðlega samanburðarkönnun
svissnesks háskóla, sem sýndi að
Ísland situr verulega fyrir neðan
önnur Norðurlönd á listanum.
Þegar kemur að samkeppnis-
hæfni í alþjóðaviðskiptum og
erlendri fjárfestingu situr Ísland í
botnsætunum. Þetta veikir þekk-
ingariðnaðinn og stöðu lítilla og
meðalstórra fyrirtækja.
Enginn bjóst við að þessi alvar-
lega staða yrði rædd á flokksráðs-
fundi VG. En það kom verulega á
óvart að landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins lét eins og vandinn væri
ekki til.
Sóknarfærin
Kjarni málsins er sá að stærstu
óleystu grundvallarmál sam-
félagsins eru í kyrrstöðu á borði
ríkisstjórnarinnar og þau eru ekki
í alvöru sett á dagskrá þegar ráð-
herrarnir leita eftir málefnalegu
umboði hjá grasrótinni.
Hlutleysi milli VG og Sjálfstæðis-
flokks hentar Framsókn vel.
Samfylkingin ákvað svo á ný-
afstöðnum landsfundi að kjarna
málflutning sinn um skattahækk-
anir til að leysa velferðarvandann
og ganga þannig út úr þeirri blind-
götu með vinstri pólitíkina, sem
VG hefur fest hana í.
Tómarúm frjálslyndrar, hóf-
samrar og klassískrar borgaralegr-
ar pólitíkur við ríkisstjórnarborðið
skapar aftur sóknarfæri fyrir Við-
reisn á komandi landsfundi. n
Borgaraleg pólitík í tómarúmi
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 2022 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ