Fréttablaðið - 10.11.2022, Qupperneq 18
Hér er Sólrún í kjól frá ASOS, skóm frá Vamsko og með skart frá Indiska,
Skull&Bone, Spáni, Krít og Etsy. Og auðvitað líka í uppáhaldsjakkanum.
brynhildur@frettabladid.is
Hvar kaupir þú oftast föt?
„Ég reyni að kaupa notuð föt
þegar ég get og hef gaman af
fatamörkuðum á borð við Rauða
krossinn, loppuverslanir og
f leira í þá veru. Mér finnst líka
gaman að sauma sjálf og þá helst
úr „deadstock“-efnum. Dead-
stock-efni eru efni sem hafa
verið framleidd en ekki notuð
og það er heill heimur af dásam-
legum vintage-efnum á netinu.
Ein af mínum uppáhaldsfata-
verslunum, The Emperor’s Old
Clothes, starfar einmitt þannig
að verslunin kaupir gamla lagera
af efnum, ljósmyndar og birtir
á netinu. Viðskiptavinir velja
sér efni, skrá sínar stærðir á síðu
verslunarinnar og velja sér f lík af
fyrirfram ákveðnum lista. Flíkin
er síðan saumuð eftir máli og send
kaupandanum í endurnotuðum
umbúðum, hún passar fullkom-
lega og klæðskerarnir fá mann-
sæmandi laun fyrir.“
Eitthvert sérstakt tímabil sem
þú tengir við í tískunni?
„Í rauninni tengi ég ekki við
neitt eitt tímabil frekar en annað.
Ég fór í gegn um tískusöguna sem
unglingur og átti mér tímabil
tengt hverjum áratug; f lapper-
tímabil, rokkabillí-tímabil,
tímabil þar sem ég gekk í fötum
móður minnar frá níunda ára-
tugnum (henni ýmist til ama eða
skemmtunar) og um tíma gekk ég
meira að segja í fötum saumuðum
af langömmusystrum mínum
sem áttu og ráku Tískuverzlunina
Regínu á Akureyri um miðja
síðustu öld. Þessa stundina er ég
á kafi í litríkum, sækadelískum
mynstrum áttunda áratugarins og
þegar tekur að dimma meira dreg
ég fram svörtu goth-flíkurnar,
keðjurnar og stóru hetturnar.“
Ég klæðist fötum, ekki þau mér
Hvernig föt kaupir þú oftast?
„Ég kaupi föt sem passa. Mér
finnst mikilvægt að við reynum
ekki að passa í fötin heldur eiga
þau að passa okkur. Ég hef varla
tölu á því hve oft ég hef ætlað
„bara rétt aðeins að breyta
líkamanum svo ég passi í þessar
buxur“ í stað þess að finna þeim
nýjan eiganda og finna mér föt
sem þjóna mér en ekki öfugt. Það
er lífsins ómögulegt að ætla að
breyta sér fyrir hverja einustu
f lík og ýtir ekki undir sjálf bæran
eða stöðugan lífsstíl. Ég klæðist
fötunum, ekki þau mér.“
Klæðir þú þig á ólíkan hátt eftir
tilefni?
„Það sem ég varð leið þegar
ég komst að því að hægt væri að
vera of fín fyrir tilefnið. Það lærði
ég um þrettán ára gömul, þegar
ég kom heim úr afmælisveislu
frændsystkinis míns en þangað
fór ég íklædd svörtum axlaberum
kjól sem ég hafði erft frá móður-
systur minni. Móðir mín hafði
ekki verið heima þegar ég valdi
mér föt og faðir minn hafði ekkert
út á það að setja að dóttirin færi
í barnaafmæli í djammkjól. Það
má því segja að ég eigi mér langa
sögu þess að vera ekki klædd í
neinu samræmi við tilefnið. Sem
klassísk söngkona er það að sjálf-
sögðu mikilvægt að eiga tónleika-
og sýningarföt en það mætti vera
f leira í skápnum mínum sem
brúaði bilið milli kvöldklæðnaðar
og hlaupabuxna.“
„Patcha“-
jakkinn
var ekki
merkilegur
í upphafi en
ber nú hljóm-
sveitarmerki,
pólitískar
yfirlýsingar og
fleira. Hann
vekur yfirleitt
lukku, jafnvel
hjá hörðustu
töffurum, að
sögn Sólrúnar.
Ég kaupi föt sem
passa. Mér finnst
mikilvægt að við reyn-
um ekki að passa í fötin
heldur eiga þau að passa
okkur.
Sólrún Hedda Benedikz, söngkona
Finnst þér skemmtilegt að
kaupa föt?
„Það fer svo afskaplega mikið
eftir aðstæðum. Það getur verið
erfitt að finna þau föt sem mann
vantar á meðan ópraktískari hlutir
stökkva á mann úr hillunum. Við
bestu aðstæður getur það verið
skemmtilegt en það getur líka
verið hreinasta martröð.“
Finnst þér gaman að klæða þig
upp á/vera í skemmtilegum fötum?
„Mér finnst það frábært en
finnst þó ekki síður skemmtilegt
að sjá aðra klædda í skrautleg og
skemmtileg föt. Ég reyni að fá
innblástur á samfélagsmiðlum
með því að fylgja fólki með áhuga-
verðan stíl, yfirleitt maximalískan.
Mér finnst fátt skemmtilegra en að
blanda saman afgerandi mynstr-
um svo jaðrar við siðrof og kaupi
gjarnan skærlitar flíkur, þegar ég
finn þær. Svo legg ég mikið upp úr
því að vera í skærlitum sokkum,
helst aldrei samstæðum.“
Hver er uppáhaldsf líkin þín?
„Ég hugsa að „patcha“-jakk-
inn minn hljóti að vera í mestu
uppáhaldi. Ég fékk hann upphaf-
lega bara á netinu, þetta var ekki
merkilegur jakki í grunninn, en
ég hef síðan fest á hann bætur og
merki héðan og þaðan; hljómsveit-
armerki, pólitískar yfirlýsingar og
fleira. Hann vekur yfirleitt lukku,
jafnvel hjá hörðustu töffurum, þótt
hann sé óhefðbundinn af „patcha“-
jakka að vera. Hljómsveitirnar eru
úr öllum áttum og merkin alger-
lega ósamstæð en mér þykir hann
lýsa mér svo vel.“
Áttu þér uppáhaldshönnuð?
„Ég heillast af draumkenndum,
flæðandi kjólum frá Loud Bodies
en þeir eru í öllum stærðum og
sjálfbærni er í forgrunni fram-
leiðslunnar. Sem forfallinn Finn-
landsfíkill er ég að sjálfsögðu líka
hrifin af Marimekko og finnska
skómerkinu Vamsko. Nýverið upp-
götvaði ég líka, í gegn um finnska
vinkonu, hönnuð að nafni Miia
Halmesmaa sem hannar, auðvitað,
draumkennda og flæðandi kjóla
sem náðu athygli minni um leið.
Annars er eina merkið sem ég held
tryggð við ekki fatamerki heldur
keramikmerki en ég er afar veik
fyrir notuðum Arabia-munum.
Þegar ég leita mér að sniðum
fyrir eigin saumaverkefni sæki ég
gjarnan í vefverslun Helen’s Closet
þar sem hægt er að kaupa stafræn
snið og prenta í þeirri stærð sem
hentar. Ég er með nokkur verkefni
í vinnslu eins og er, f lest af þeirri
síðu. Svo bregst ekki hannyrða-
hornið á Borgarbókasafninu í
Grófinni, þessa dagana er ég með
á leigu bók með prjónahönnun
Stephen West sem mig klæjar
í fingurna að prjóna upp
úr, litirnir og mynstrin
í hönnun hans höfða
sterkt til mín.“
Hvar kaupirðu föt?
„Bæði á mörkuðum
með notuð föt og
á netinu, en í dag
kaupi ég gjarnan föt
í versluninni
Curvy.
Flestar venjulegar verslanir hafa
ekki föt í stærðum sem passa mér
og Curvy hefur reynst mér alger
lífsbjörg undanfarin ár.
Svo var ég nýverið búsett í Finn-
landi þar sem ég uppgötvaði að
notuð föt fást í mun fleiri stærðum
en sjást í verslunum hérlendis. Ég
hugsa reglulega með söknuði til
Uff Second Hand búðanna í Turku
og Helsinki, þar sem ég fékk mikið
af mínum uppáhaldsflíkum.“
Veik fyrir skrýtnu skrauti
Ertu veik fyrir aukahlutum?
„Ég er veik fyrir öllu skrauti sem
er dálítið skrítið. Ég á minn dreka-
sjóð af skartgripum; hálsmenum
með kristöllum, eyrnalokkum úr
dýrabeinum og öllu sem fangar
auga mitt. Ég á minna af töskum
og legg meira upp úr að eignast
gerðarlegar töskur sem endast vel
því það er ekki endalaust pláss á
heimilinu. Ég er því yfirleitt með
rauða leðurbakpokann minn, sem
ég keypti á leðurstrætinu í Chania
á Krít fyrir níu árum, á bakinu eða
eiturgræna Marimekko-tösku á
öxlinni.“
Hvað kaupirðu þó að þú eigir
nóg af því?
„Í gegn um tíðina hefur svarið
við þessu alltaf verið kjólar, og þá
sér í lagi fínir kjólar. Ég veit að ég
gæti komist af með einn eða tvo
kjóla en það virðist ekkert geta
stoppað mig þegar kemur að fal-
legum, helst óvenjulegum, kjólum.
Aukastig ef þeir eru úr flaueli!“
Áttu uppáhaldsskó?
„Úff, það er af illri nauðsyn.
Ég er með svo hryllilega breiða
fætur að ég klæðist helst aldrei
neinu nema hermannastígvélum.
Þau eru nánast orðin mitt „state-
ment piece“ en ég hef til dæmis átt
sömu rauðu stígvélin síðan 2013.
Ég hef meðal annars gengið fjöll í
Færeyjum í þeim, sungið á klass-
ískum sönghátíðum, farið í mosh
pit á black metal-tónleikum og allt
þar á milli. Þau eru þó komin
með sterkan keppinaut eftir
að ég uppgötvaði finnska
merkið Vamsko en núna
á ég dýrleg, ljósbleik
hermannastígvél frá
þeim.“ n
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
kr. 67.900
Klassískar
dúnúlpur
frá
2 kynningarblað A L LT 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR