Fréttablaðið - 10.11.2022, Qupperneq 26
Hjá Systur&Makar er íslensk
hönnun og framleiðsla í for-
grunni. Aðalsmerki verslun-
arinnar er fatamerkið Volc-
ano Design, en heiður af því
á hönnuðurinn og eigandinn
Katla Hreiðarsdóttir.
„Þegar ég kom heim úr innanhúss
námi í Barcelona 2008 var efna
hagshrunið í fullum gangi og Guð
vinsamlegast beðinn um að blessa
Ísland. Ég var því ansi hrædd um
að lítið yrði um ráðningar á arki
tektastofu fyrir óharðnaða hönn
uði eins og mig og lét því reyna á
gamlan fatahönnunardraum. Í
fyrstu var það bara lítil hugmynd
sem ég bjóst ekki endilega við að
myndi lifa mjög lengi, en hér er ég
enn, fjórtán árum síðar, og enn að
hanna og framleiða allar mínar
vörur á Íslandi. Saumastofan er á
sama stað og verslunin, sem gerir
að verkum að við getum stytt
flíkur með stuttum fyrirvara, nú
eða þá lagað að ósk kúnnans, ef
þörf krefur.“
Þetta segir Katla Hreiðarsdóttir
sem á dögunum fagnaði fjórtán
ára starfsafmæli Volcano Design
með heljarinnar fermingarveislu.
„Fermingaraldurinn miðast
við fjórtán ár svo mér datt í hug
að blása til fermingarveislu þar
sem gestum og gangandi var
boðið í kökuboð með rjómatertu,
kransaköku og tilheyrandi. Við
drógum einnig út nokkra heppna
viðskiptavini sem hlutu forláta
fermingargjöf í verðlaun svo þessi
veisla var tileinkuð bæði verslun
inni og viðskiptavinum okkar, því
án þeirra væri merkið nú ekki á
lífi!“ segir Katla hress.
Konum þarf að líða vel
Volcano Design er orðið rótgróið
fatamerki í íslensku hönnunar
flórunni og finnast vörur þess víða
í skápum íslenskra kvenna.
„Merkið einkennist af klæðileg
um og góðum sniðum sem henta
vel hinni metnaðarfullu, íslensku
valkyrju. Ég hugsa hönnina svo
lítið fyrir konur eins og mig: konur
sem eru oft á hlaupum að sinna
hinu og þessu, en þeim á að líða vel
í því sem þær eru því þannig líta
þær best út. Þetta er þægilegur og
smart fatnaður sem er auðvelt að
dressa upp og niður, og hentar svo
ótalmörgum tilefnum,“ segir Katla
í óðaönn á saumastofunni sinni.
Stærðirnar hjá Volcano Design
eru jafnframt svolítið óhefð
bundnar en Katla ákvað strax að
láta utanaðkomandi stærðarskala
ekki hefta sig og bjó til sinn eigin.
„Í minni verslun er ég sjálf í
stærðinni S (sirka 4244), af því ég
einfaldlega ræð! Svo geri ég stærðir
1, XS, S, M og XM, en ég geri ekki
stærð L. Stærðarmiðar hafa nefni
lega alltof oft slæm áhrif á líðanina
og ef ég get á einhvern hátt haft
jákvæð áhrif á þetta, þá geri ég það
á minn hátt.“
Jákvæð og umhverfisvæn sjöl
Verslunin Systur&Makar selur
einnig vörur annarra hönnuða. Þar
má nefna skart frá Kristu systur
Kötlu, leðurtöskur frá PomPom
London, íslensk og erlend ilmkerti
og ýmislegt fleira.
„Endurunnu fjölmenin frá Kol
brúnu Ýri eru einnig mjög vinsæl
og víðs vegar um verslunina má
finna hluti sem einkennast af nýtni
og endurvinnslu,“ upplýsir Katla.
Hennar uppáhaldsvara í
Systur&Makar er OKbútasjal.
„Mér finnst OKsjölin sérlega vel
heppnuð en þau eru samvinnu
verkefni okkar mömmu sem er
óttaleg uppspretta hugmynda. Um
er að ræða bútasjal sem er unnið
úr afskurði og efnisafgöngum,
en heitið er dregið af Oki, fyrsta
íslenska jöklinum sem hvarf. OK
Hélt fermingarveislu fyrir 14 ára fatamerkið sitt
Katla Hreiðarsdóttir, hönnuður og kaupkona í Systur&Makar, segir konur líta best út þegar þeim líði vel í fatnaði eins og frá Volcano Design. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Katla hélt fermingarveislu fyrir Volcano Design með kransaköku og tertum.
MYND/AÐSEND
OK-bútasjölin eru í miklu dálæti hjá Kötlu í Systur&Makar, en þau hannaði hún í
samstarfi við mömmu sína, úr afskurði og efnisafgöngum. MYND/AÐSEND
bútasjölin eru hlý, hvert og eitt
þeirra er einstakt, þau eru praktísk
og framleiðsla þeirra spornar við
landfyllingu sem annars yrði úr
efnisafgöngunum. Sjölin eru því
jákvæð, umhverfisvæn og falleg í
senn,“ segir Katla.
Fjörugt aðventupartí í beinni
Katla hefur yndi af því að fara
óhefðbundnar leiðir að markaðs
setningu.
„En það er líka vegna þess að ég
hef einstaklega gaman af hvers
kyns brasi. Þeir vita það best sem
fylgja mér á Instagram @syst
urogmakar, að það er afar sjaldan
lognmolla í kringum mig. Næst á
dagskrá er aðventuþáttur í beinni
útsendingu sem við höldum nú
í annað sinn þann 1. desember
en í fyrra gekk svo glimrandi vel
að við ákváðum að kýla á nýjan
þátt,“ segir Katla og útskýrir
hvernig aðventuþátturinn virkar.
„Vikurnar fyrir þátt geta
áhorfendur tekið þátt í happ
drætti á heimasíðunni okkar og
fundið þar köngla sem eru faldir
hér og þar. Dregið verður svo úr
innsendum lausnum í beinni.
Einnig fæ ég til mín góða gesti,
það verður förðunarkennsla og
tónlistaratriði, ég sýni mátanir
og fer í heimsókn og ótalmargt
f leira. Þetta verður því smekk
fullur skemmtiþáttur sem allir
geta horft á, hvar sem er og á fríu
streymi. Í fyrra horfðu f leiri þús
und manns á þáttinn og tóku þátt
í partíinu og gleðinni,“ upplýsir
Katla full tilhlökkunar en nánari
upplýsingar koma á systurog
makar.is þegar nær dregur.
Singles’ Day í Systur&Makar nú
verður sá stærsti hingað til.
„Við erum með meira úrval en
nokkru sinni og bjóðum 10 til
40 prósenta afslátt af vörunum
okkar. Þess má geta að Singles’
Day er eini afsláttardagurinn sem
Systur&Makar taka þátt í og í ár
ákvað ég að hafa hann einstak
lega grand til að gefa sem f lestum
kost á að versla á sérstaklega
góðu verði. Tilboðin opnast frá
hádegi í dag, fimmtudaginn 10.
nóvember, og standa til mið
nættis 11. nóvember.“ n
Systur&Makar eru í Síðumúla 21.
Sími 588 0100. Skoðið æðisleg
Singles’ Day-tilboð í vefverslun-
inni systurogmakar.is.
Singles’ Day er eini
afsláttardagurinn
hjá Systur&Makar og í ár
ákvað ég að hafa hann
einstaklega grand til að
gefa sem flestum kost á
að versla á sérlega góðu
verði.
Katla Hreiðarsdóttir
6 kynningarblað 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURSINGLES’ DAY