Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 1

Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 1
Maður upplifir sig bara sem vonda karlinn, það er bara þannig. Daði Hjálmarsson, útgerðarstjóri KG Fiskverkunar 2 5 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2 Dan Brown á Iceland Noir ’23 Trommar upp tíu ára afmæli Menning ➤ 30 Lífið ➤ 34 Opið allan sólarhringinn Í Nettó Mjódd og Granda Stjórnendur í sjávarútvegi upplifa eigið starfsum- hverfi mun óvinveittara en oftast kemur fram í opinberri umræðu. Þingmenn til vand- ræða, segir útgerðarmaður. bth@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Æðstu stjórnendur stærstu útgerðarfyrirtækja á Íslandi eru mjög óánægðir með starfsum- hverfi sitt. Þetta sýnir ný rannsókn sem Kristján Vigfússon, kennari við Háskólann í Reykjavík, hefur unnið og birtist í tímaritinu Marine Policy. Hávær og neik væð pólitísk umræða um sjávarútveg og þar með óvissa um framtíð greinarinnar hefur mikil og vond áhrif að mati útgerðarmannanna. Ein ástæða kvótasamþjöppunar er óvissa sem skapast í kringum kosningar. Daði Hjálmarsson, útgerðarstjóri KG Fiskverkunar, sem situr í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sagðist tengja vel við niðurstöður rannsóknarinnar þegar Frétta- blaðið bar þær undir hann. „Maður upplifir sig bara sem vonda karlinn, það er bara þannig,“ segir Daði. Hann segir að ekki síst vegna umræðu alþingismanna sé hallað á útgerðarmenn að ósekju. „Mér finnst umræða um að kerfið sé óréttlátt vera mjög vitlaus. Ég lendi oft í að þá er verið að vísa til einhvers sem gerðist löngu áður en ég fæddist,“ segir hann. Daði staðfestir það sem fram kom í viðtölum við vinnslu rannsóknar- innar að langflestar sölur á kvóta séu nálægt alþingiskosningum vegna óvissu. Þetta sé ein ástæða þess að minni útgerðarmenn séu ekki fleiri en raun ber vitni. Þá nefnir Daði það sem hann kallar „spillingarpotta“ stjórn- málamanna. Þar á Daði við sér- tækan byggðakvóta sem að hans sögn virkar öfugt og skaðar orðspor greinarinnar. „Fjölmiðlar apa líka oft einhverja vitleysu eftir stjórnmálamönnum án þess að kanna staðreyndir, hvað sé rétt og rangt.“ SJÁ SÍÐU 6 Útgerðarmönnum finnst á sig hallað Safaríkar klementínur sem minna á jólin! Mmm ... ÚKRAÍNA „Jafnvel litlir krakkar eru alveg hljóðir og kippa sér ekk- ert upp við þetta,“ segir Kristjana Aðalgeirsdóttir, sendifulltrúi sviss- neska Rauða krossins, sem er stödd í Úkraínu. Árásir Rússa hafa undanfarið að mestu snúið að orkuverum og inn- viðum tengdum þeim. SJÁ SÍÐU 8 Loftvarnaflautur hluti af daglegu lífi Kristjana Aðalgeirsdóttir, sendifulltrúi svissneska Rauða krossins í Úkraínu Nemendur efstu bekkja átta grunnskóla í Reykjavík kepptu í gær í gerð eftirrétta. Keppnin var samstarfsverkefni nokkurra grunnskóla, Klúbbs matreiðslumeistara og Iðunnar fræðsluseturs. Undir- búningurinn hefur staðið yfir í allt haust þar sem nemendur hafa unnið undir leiðsögn kennara síns en einnig fengið heimsókn í skólann frá matreiðslumeisturum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.