Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 6
Þetta hefur verið erfitt
mál fyrir Bjarna.
Eiríkur Berg-
mann, prófessor
Það sem kom mér
kannski mest á óvart
var hversu mikill tími
og orka fer í það hjá
æðstu stjórnendum að
takast á við stjórnvöld.
Kristján Vig-
fússon, kennari
í Viðskiptadeild
HR
Stjórnendur í sjávarútvegi
upplifa eigið starfsum-
hverfi mun óvinveittara en
oftast kemur fram í opin-
berri umræðu. Mikill tími
fer í áróður. Skortur á sýn og
stefnumótun stjórnvalda er
sagður hamla greininni.
bth@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Æðstu stjórnendur
stærstu útgerðarfyrirtækja á Íslandi
eru mjög óánægðir með starfsum-
hverfi sitt. Þetta sýnir ný rannsókn
sem Kristján Vigfússon, kennari við
Háskólann í Reykjavík, hefur unnið
og birtist í erlendu vísindatímariti,
Marine Policy.
Að sögn Kristjáns er ein helsta
niðurstaða rannsóknarinnar að
stjórnendur telja að ytri hindr-
anir sem snúa að stærstum hluta að
stjórnvöldum hamli stefnumótun
og þróun fyrirtækjanna og þar með
þróun greinarinnar.
Skortur á framtíðarsýn stjórn-
valda skapi mikla óvissu og sé að
mati stjórnendanna fyrirstaða sem
valdi áhættu í fjárfestingum og upp-
byggingu og bitni á samkeppnis-
hæfni greinarinnar.
Þá kemur fram í rannsókninni að
hávær og neikvæð pólitísk umræða
um sjávarútveg og þar með óvissa
um framtíð greinarinnar hafi mikil
áhrif. Fram kom í viðtölum að sögn
Kristjáns að ein ástæða kvótasam-
þjöppunar væri óvissa sem skap-
ast í kringum kosningar. Ótti um
breytingar valdi því að sumir minni
aðilar selji sinn kvóta áður en gengið
er að kjörborði.
Umræða um Fiskistofu og f leiri
eftirlitsstofnanir hverfist gjarnan
um ónógt eftirlit, einkum með
stærri félögum. Stjórnendur stóru
fyrirtækjanna telja eigi að síður að
eftirlit með greininni sé óvinveitt.
Í reglugerðarumhverfinu sé ekki
tekið tillit til þeirra sjónarmiða.
Sífelldar breytingar á reglum varð-
andi kvótakerfið og stjórn fiskveiða
séu þeim oft í óhag að því er fram
kemur í rannsókninni.
Þá kemur fram að mikill tími og
orka fari í „lobbíisma“, það er að
segja áróður, hjá fyrirtækjunum.
Stjórnendur halda því fram að
ósanngjarnar og rangar fréttir séu
f luttar af fjölmiðlum sem leggist
gegn stórútgerðinni og leiðrétti ekki
rangfærslur og rangar fréttir.
Innri þættir sem plagi sjávar-
útveginn helst eru samkvæmt
rannsókninni tungumálavandi
og áskoranir sem tengist fjölþjóð-
legu vinnuafli. Einnig sé skortur á
menntuðu og sérhæfðu starfsfólki
í greininni.
„Það sem kom mér kannski mest á
óvart var hversu mikill tími og orka
fer í það hjá æðstu stjórnendum að
takast á við stjórnvöld og bregðast
við almennri pólitískri umræðu um
greinina í fjölmiðlum,“ segir Krist-
ján Vigfússon.
„Einnig finnst mér áhugavert
hvernig skortur á framtíðarsýn
stjórnvalda og getuleysi til að ná
sátt um sjávarútveginn hefur áhrif
á greinina og viðheldur sífelldum
átökum sem ekki sér fyrir endann
á,“ bætir Kristján við.
Kristján segir að útgerðarmenn
upplifi stjórnvöld jafnvel þannig
að þau leggi lykkju á leið sína til að
þvælast fyrir greininni með sífelld-
um breytingum og jafnvel hótunum
og upphrópunum.
Á sama tíma sjái stjórnendur fyrir
sér enn stærri og öf lugri sjávar-
útvegsfyrirtæki sem hafi stjórn á
allri virðiskeðjunni frá veiðum og
vinnslu inn á borð neytandans.
Fyrirtækin stefni að auknum vexti
og aukinni hlutdeild í fiskeldi til að
geta tryggt afhendingaröryggi og
sinnt aukinni eftirspurn.
Viðmælendur rannsóknarinnar
voru allir framkvæmdastjórar
stórra sjávarútvegsfyrirtækja sem
samtals ráða yfir um 50 prósentum
af fiskveiðikvótanum. n
Útgerðarmenn verja mjög
miklu í hagsmunagæslu
Þótt oft sé
haldið fram að
útgerðin ráði of
miklu hér á landi
líta stjórnendur
stóru sjávarút-
vegsfyrirtækj-
anna þannig á
að eftirlit með
greininni sé
óvinveitt og
ekki sé tekið
tillit til þeirra
sjónarmiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Mannréttinda- og
of beldisvarnarráð Reykjavíkur-
borgar lýsa yfir áhyggjum af stöðu
eineltismála, aukinni of beldis-
menningu meðal ungmenna og
hatursorðræðu og auknu aðkasti
sem hinsegin ungmenni verða fyrir.
Ráðið ályktaði á síðasta fundi
sínum um þessi þrjú atriði.
Hrikalegar frásagnir af einelti
hafa birst að undanförnu og segir
ráðið að óbreytt ástand kalli á
endurskoðun núverandi verkferla
og ekki síður endurskoðun fram-
kvæmdar á þeim verkferlum sem til
staðar eru – ekki síst með hliðsjón
af stafrænu of beldi og snjallsíma-
notkun grunnskólabarna.
Þá lýsti ráðið yfir áhyggjum af
aukinni ofbeldismenningu á meðal
ungmenna og ekki síst auknum
vopnaburði ungmenna. Ráðið
telur mikilvægt að öll svið og stofn-
anir borgarinnar kanni ítarlega með
hvaða hætti viðkomandi svið eða
stofnun hefur snertiflöt við aukna
of beldismenningu meðal ung-
menna og til hvaða úrræði mætti
grípa í því samhengi.
Loks lýsti ráðið yfir áhyggjum af
auknu aðkasti sem hinsegin ung-
menni verða fyrir. Ráðið telur brýnt
að Reykjavíkurborg vinni kerfis-
bundið gegn þessu vandamáli og
styðji vel við og tryggi fjármögnun
allra þeirra verkefna sem í gangi
eru innan borgarinnar, til dæmis
Regnbogavottun, Hinsegin félags-
miðstöðina og frístundastarf fyrir
hinsegin börn 10–12 ára. n
Áhyggjur af vopnaburði og hrottum
Lögreglan þarf
oft að hafa
afskipti af
unglingum með
hnífa.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Þetta hefur verið erfitt
mál fyrir Bjarna. Hann hefur lask-
ast aðeins á þessu máli, alla vega til
skamms tíma. En hvort þetta muni
hafa langvarandi bein áhrif, það er
ég ekki viss um,“ segir Eiríkur Berg-
mann, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskólann á Bifröst.
Krafa minnihlutans um óháða
rannsóknarnefnd virðist andvana
fædd, því ólíklegt er að einhver úr
meirihluta stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar muni snúast á sveif með
minnihlutanum, eins og þyrfti til.
Kristrún Frostadóttir, formaður
Samfylkingarinnar, lýsti í Frétta-
blaðinu miklum vonbrigðum með
að Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefði varið Bjarna eftir útgáfu
skýrslunnar. Katrín hefði kastað
prinsippum og ákalli um traust „út
um gluggann“.
Um þetta segir Eiríkur:
„Ég held að Katrín gæti vel klárað
þetta kjörtímabil með ágætum
sóma, en samstarfið verður stöðugt
erfiðara fyrir hana, því í ríkisstjórn-
inni eru mjög ólíkir f lokkar með
ólíka stefnu þar sem hún verður að
standa með samstarfinu fremur en
prinsipp-afstöðu flokksins í sumum
málum.“
Eiríkur segir að togstreita sé inn-
byggð í samstarf ólíkra f lokka í
ríkisstjórninni. Sú togstreita komi
betur fram eftir því sem á líður. n
Bjarni laskaður en muni lifa af
25%
afsláttur
af öllu Grohe
og allt að 35% afsláttur af völdum Grohe vörum
15332661
Concetto eldhústæki
há sveifla, króm.
Verð: 26.107
Almennt verð: 37.295
-30%
6 Fréttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ