Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 10
Rússar bera endanlega ábyrgð þegar þeir halda áfram ólöglegu stríði sínu gegn Úkra- ínu. Jens Stolten- berg, fram- kvæmdastjóri NATO Eldflaug sem varð tveimur Pólverjum að bana við korn- verksmiðju kom líklegast frá úkraínsku loftvarnakerfi. For- seti Póllands segir að ekkert bendi til þess að þetta hafi verið viljandi árás. Bæði Rúss- land og Úkraína notast við S-300 loftvarnakerfi. helgisteinar@frettabladid.is PÓLLAND Fréttastofa AP ásamt heimildum innan bandaríska hersins hafa greint frá því að eld- flaug sem sprakk í pólska bænum Przewodów skammt frá landa- mærum Úkraínu hafi komið frá úkraínsku loftvarnakerf i. Eld- flaugunum hafi verið ætlað að mæta þeim rússnesku, en Rússar hafa skotið eldflaugum víða um Úkraínu seinustu daga. Flugskeytum hafði meðal annars verið beint að Kænugarði, Lvív og Karkív og eru einnig fregnir af því að rússnesk eldflaug hafi hæft Mol- dóvu og valdið stórfelldu rafmagns- leysi. Árásirnar voru þær fyrstu síðan Úkraínumenn náðu stjórn á borg- inni Kherson í suðurhluta landsins. Úkraínsk yfirvöld telja að árásirnar tengist einnig ávarpi Volodímírs Zelenskíjs á G20-ráðstefnunni þar sem hann sagði að það væri kominn tími til að stríðinu myndi ljúka. Eftir sprenginguna fóru vanga- veltur f ljótlega af stað um hvort þetta gæti hafi verið rússnesk eld- flaug sem rataði af leið, en Pólland er aðildarríki NATO og er árás á eitt eða fleiri aðildarríki bandalagsins túlkað sem árás á þau öll. Skömmu eftir að greint hafði verið frá sprengingunni virkjuðu pólsk yfirvöld fjórðu grein NATO- sáttmálans. En sú grein kallar á sam- eiginlegan fund allra aðildarríkja ef öryggi eins ríkis innan bandalagsins er ógnað. Fimmta grein sáttmálans lýsir því yfir að árás á eitt banda- lagsríki hafi átt sér stað og hefur sú grein aðeins verið virkjuð einu sinni af hálfu bandarísku ríkisstjórnar- innar í kjölfar hryðjuverkaárásar- innar 11. september. Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO, segir að ekkert bendi til þess að Rússar séu að undirbúa hernaðaraðgerðir gegn ríkjum NATO. Á blaðamannafundi ítrekaði hann að þrátt fyrir að eldf laugin sem lenti í austurhluta Póllands hefði líklegast komið frá úkraínsku loftvarnakerfi, þá lægi ábyrgðin alfarið hjá Mosku. „Höfum eitt á hreinu, þetta er ekki Úkraínu að kenna. Rússar bera endanlega ábyrgð þegar þeir halda Sprengingin í Póllandi líklega slys Forseti Póllands segir að ekkert bendi til þess að þetta hafi verið viljandi árás gegn Póllandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA gar@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR Yfir eitt hundrað millj- ónir Rússa geta í dag ekki skoðað þúsundir vefsíðna sem stjórnvöld hafa látið loka á. Spænska blaðið El País segir 10 milljónir af þessu fólki ekki hafa aðgang að interneti yfir- höfuð. Milljónir að auki hafi ekki tækniþekkingu til að komast fram hjá hindrunum á netinu. Þetta ástand segir El País hins vegar vera að taka hröðum breyt- ingum. Rætt er við Yevgeny Simkin, einn stofnenda samtakanna Samiz- dat Online, um viðleitni þeirra til að komast fram hjá ritskoðuninni. Þeir hafi skapað tæki til að fólk geti dreift efni á auðveldari hátt. Þótt talið sé að í dag séu um 34 milljónir Rússa sem hafi fengið sér svokallaða VPN-tengingu vegna ritskoðunar stjórnvalda þá bendir El País á að það sé aðeins um fjórð- ungur þjóðarinnar. Með VPN- teng- ingum eru nöfn notendanna hulin og þeir hafa aðgang að bönnuðu efni á borð við erlendar fréttastöðvar. Yevgeny Simkin, sem sjálfur býr í Bandaríkjunum að sögn El País, seg- ist leggja sitt af mörkum til að „grafa undan áróðursvél Pútíns“, eins og hann orðar það. n Vilja takast á við áróðursvél Pútíns S-300PM lovarna-eldaugaker Lengd: 7,5 m Drægni: 150 km Hraði: Mach 6 (2.000 m/sek) Hátt í 32 eld augar komast fyrir í einu S-300 tæki. © GRAPHIC NEWSHeimildir: Reuters, NATO, Jane’s Strategic Weapons Systems Sprengingin í Póllandi var „líklegast óviljandi“ PÓLLAND ÚKRA Í N A Lvív 6 mílur 10 km PÓLLAND RÚSSLAND ÚKRAÍNA 15. nóvember, Przewodów: Sprenging verður tveimur að bana við kornverk- smiðju. Andrzej Duda, forseti Póllands, segir að sovésk S-300 eld‹aug sé líklegasti sökudólgurinn. Talsmenn NATO segja að eld augin sem lenti í Póllandi (við landamæri Úkraínu) haš líklega komið frá úkraínsku loœvarnarkerš og verið ætlað að verjast rússneskum eld augaárásum. áfram ólöglegu stríði sínu gegn Úkraínu,“ segir Stoltenberg. Forseti Póllands segir að ekkert bendi til þess að þetta hafi verið viljandi árás gegn Póllandi og voru rússnesk stjórnvöld f ljót að neita allri sök. Neyðarfundir voru engu að síður haldnir hjá aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og í þjóð- aröryggisráði Póllands. Dmítrí Peskov, talsmaður rúss- nesku ríkisstjórnarinnar, sakar vestræn ríki um taugaveiklun og segir að yfirvöld í Varsjá hefðu strax átt að benda á að úkraínska loft- varnakerfið væri sökudólgurinn. Bæði Rússland og Úkraína notast við gömul sovésk loftvarnakerfi og þar á meðal hið umrædda S-300 loftvarnaeldflaugakerfi. n Yevgeny Simkin, einn stofnenda Samizdat Online. kristinnpall@frettabladid.is GOLF „Þetta var mikill gleðidagur fyrir íslenska kylfinga og golfíþrótt- ina, ekki spurning. Þetta er eins og að komast í Meistaradeildina hvað varðar verðlaunaupphæðir sem standa til boða,“ segir Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambandsins, spurður hvaða þýðingu það hefði fyrir Guðmund Ágúst Kristjánsson að komast inn á Evrópumótaröðina í golfi. Guðmundur Ágúst varð í gær annar karlkylfingurinn til að ná að komast inn á sterkustu mótaröð Evrópu. Birgir Leifur Haf þórsson varð sá fyrsti sem komst á Evr- ópumótaröðina árið 2006 og hélt keppnisréttinum 2007 en undan- farin ár hafa íslenskir kvenkylfingar keppt á Evrópumótaröðinni. Kylfingurinn lenti í 19.–22. sæti á lokastigi úrtökumótsins sem fór fram í Tarragona á Spáni þar sem efstu 25 kylfingarnir komust inn á mótaröðina eftir sex hringi. „Stelpurnar eru búnar að vera í bílstjórasætinu undanfarin ár. Guðrún Brá, Valdís Þóra og Ólafía hafa gert frábæra hluti fyrir golf á Íslandi. Við sáum jákvæð áhrif þess á yngri kylfinga þegar Ólafía komst inn á LPGA og það sama verður von- andi upp á teningnum núna að sjá Guðmund komast inn. Þau eru frá- bærar fyrirmyndir fyrir yngri kyn- slóðirnar.“ Brynjar segir að þetta afrek komi honum í sjálfu sér ekki á óvart. „Þegar horft er til baka hefur hann verið meðal efnilegustu kylf- inga Evrópu lengi. Hann vann stór alþjóðleg unglingamót á sínum tíma og er frábær kylfingur þannig að þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Næsta mót er bara fljótlega, þannig að hann fær ekki langan tíma til að njóta augnabliksins heldur þarf að halda áfram að vinna,“ segir Brynjar léttur. Golfsambandið kemur til með að styðja hann fjárhagslega við að elt- ast við drauminn líkt og í tilfellum annarra atvinnukylfinga sem hafa komist á þetta stig. „Það er alltaf ákveðin hræðsla af okkar hálfu við að einstaklingar gefist upp of snemma í ljósi þess hvað það kostar oft að eltast við drauminn. Þetta er harður heimur og það er erfitt að vera einn á flakki í þessari baráttu. Það er margt sem togar í þessa ungu kylfinga en afrekssjóðurinn okkar hefur gert vel að styðja við þau,“ segir Brynjar og segir það markmið sjóðsins. „Hann þarf enn stuðning okkar þegar hann byrjar þessa mótaröð en vonandi verður hann sjálfbær og flýgur úr hreiðrinu. Það er markmið sjóðsins.“ n Gleðidagur þegar Guðmundur tryggði sig á mótaröðina Guðmundur lék hringina sex á átján höggum undir pari og deildi 19.–22. sæti á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Talið er að um 34 millj- ónir Rússa hafi fengið sér svokallaða VPN- tengingu vegna rit- skoðunar stjórnvalda. 10 Fréttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.