Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 16
Kæli- og frystitæki
TIL Á LAGER
Sýningarsalur
Draghálsi 4
Sími: 535 1300
verslun@verslun.is
Scancool kælar
úr ryðfríu stáli
fyrir stóreldhús
543 og 1186 lítra
Mikill órói er nú á rafmynta-
mörkuðum í heiminum í kjöl-
far falls FTX-rafmyntarisans
og virðast ýmis fyrirtæki í
geiranum riða til falls.
olafur@frettabladid.is
R a f my nt a m iðlu na r f y r ir t æk ið
Genesis Trading hefur lokað fyrir
innlausnir og lánveitingar á lána-
sviði sínu. Þetta gerir fyrirtækið
vegna höggbylgja sem ríða yfir raf-
ræna eignamarkaði í kjölfar falls
rafmyntarisans FTX.
Genesis, sem er staðsett í New
York, sendi í gær frá sér tilkynningu
um að fall FTX hefði valdið óróa á
mörkuðum og samtals væru inn-
lausnarbeiðnir nú upp á hærri fjár-
hæð en fyrirtækið hefði handbæra.
Genesis er eitt stærsta fjármála-
fyrirtækið sem þjónar rafmynta-
markaðnum. Á vef Financial Times
kemur fram að á síðasta ári hafi
það lánað út meira en 131 milljarð
Bandaríkjadala.
Fall Three Arrows, vogunarsjóðs
í Singapore sem sérhæfði sig í raf-
myntum, kom mjög illa við Genesis.
Three Arrows hafði veðjað á bitcoin
og f leiri rafmyntir en óskaði eftir
gjaldþrotaskiptum í júlí þegar
markaðurinn snerist gegn stöðu-
töku sjóðsins. Samkvæmt dóms-
skjölum hafði Genesis lánað Three
Arrows 2,4 milljarða dollara án
mikilla trygginga.
Fall rafmyntakauphallar Sam
Bankman-Fried upp á 32 milljarða
dollara og systurfyrirtækisins Ala-
meda Research hefur hins vegar
sent höggbylgjur yfir rafmyntageir-
ann og aðrar kauphallir og lánveit-
endur reyna nú í óðaönn að sann-
færa gagnaðila og markaðinn um að
staða þeirra sé traust þrátt fyrir allt.
Genesis segist hafa ráðið bestu
ráðgjafa á markaðnum til að fara
gaumgæfilega yfir allar leiðir sem
færar eru í stöðunni og boða að í
næstu viku muni verða lögð fram
áætlun um áframhaldandi útlána-
starfsemi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Annar rafmyntarrisi riðar til falls
olafur@frettabladid.is
Verslun í Smáralind hefur verið
mikil það sem af er nóvember og
stefnir í að jólasalan verði meira en
í fyrra og hitteðfyrra, enda engar
samkomutakmarkanir fyrir jólin í
fyrsta sinn í þrjú ár.
Sandra Arnardóttir, markaðs-
stjóri Smáralindar, segir jólaversl-
unina sífellt færast framar og telur
að þar hafi tilboðsdagar á netinu
mikil áhrif. Hún segir verslanir í
auknum mæli koma með tilboð í
húsið á þessum tilboðsdögum.
„Við vorum með Kauphlaup í
byrjun nóvember sem dró mikinn
mannfjölda í húsið og verslunin
hefur verið mjög góð síðan,“ segir
Sandra. Hún segir þetta vera mikla
breytingu frá því í faraldrinum
þegar engir viðburðir voru og fólk
rétt fór út í búð til að ná í það allra
nauðsynlegasta.
„Nú er fólk aftur farið að njóta
þess að fara í verslunarleiðangra.
Við sjáum að þessi gamla jólastemn-
ing er að snúa aftur og fólk sest inn á
kaffihús og gengur milli verslana og
hlustar á jólatóna.
Það er líka gaman að viðburðirnir
eru komnir aftur og vekja lukku.
David Walliams var til dæmis í
Pennanum-Eymundsson hér í
Smáralind á laugardaginn og fyllti
verslunina,“ segir Sandra Arnardótt-
ir sem reiknar með að stóru nettil-
boðsdagarnir sem eru fram undan
í lok nóvember, Svartur föstudagur
og Net-mánudagur, muni líka skila
sér í mikilli sölu hjá verslunum í
húsinu. n
Nettilboðsdagar skila sér í verslanir
Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, segir miklu breyta fyrir versl-
anir að nú sé aftur hægt að halda viðburði sem laða að sér fólk.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mikill titringur er á rafmyntamörkuðum eftir fall FTX. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
olafur@frettabladid.is
Mikill viðsnúningur varð hjá fyrir-
tækjum í ferðaþjónustu á síðasta ári.
Þetta kemur fram í upplýsingum sem
Ferðamálastofa hefur birt um fjár-
hag og rekstur fyrirtækja í greininni.
Sá varnagli er sleginn að viðsnún-
ingurinn gefi ekki endilega góða
mynd af stöðu ferðaþjónustunnar
eftir Covid. Það stafi af því að fjár-
magnsgjöld voru fryst á síðasta ári og
því greiddu ferðaþjónustufyrirtæki
ekki fjármagnsgjöld á árinu.
Fram kemur hjá Ferðamálastofu
að slæm skuldastaða fyrirtækja í
greininni hafi því að öllum líkindum
ekki batnað. Í þessu felst að þrátt
fyrir að viðspyrna ferðaþjónust-
unnar hafi haldið áfram af fullum
krafti á þessu ári kunni afkomutölur
að verða lakari í ár en í fyrra vegna
þess að í ár koma fjármagnsgjöld inn
af fullum þunga og vaxtaumhverfi
hefur breyst mikið milli ára.
Fjárhagsupplýsingarnar eru birtar
í Mælaborði ferðaþjónustunnar þar
sem hægt er að skoða ýmsar lykil-
tölur fyrirtækja í ferðaþjónustu frá
árinu 2015 til 2021.
Í gagnagrunninum eru nú árs-
reikningar fyrir árið 2021 frá tæplega
tvö þúsund íslenskum fyrirtækjum
sem eru ÍSAT-flokkuð sem ferða-
þjónustufyrirtæki.
Heildarfjöldi fyrirtækja í gagna-
grunni Ferðamálastofu er um 2.500
en þau hafa ekki öll skilað inn árs-
reikningum fyrir árið 2021 til Credit-
info, sem Ferðamálastofa nýtir sér,
auk þess sem sum hafa hætt starf-
semi. n
Viðsnúningur en
miklar skuldir
Ferðamennirnir eru komnir aftur en
skuldastaða greinarinnar er slæm.
Genesis starfar miðlunar- og vörslu-
hluti þess með eðlilegum hætti,
enda sé miðlunarhlutinn fjármagn-
aður sérstaklega og ótengdur ann-
arri starfsemi Genesis.
Móðurfyrirtæki Genesis, Digital
Currency Group, sem er í eigu millj-
arðamæringsins Barry Silbert, hefur
sent frá sér tilkynningu um að starf-
semi þess og annarra dótturfyrir-
tækja standi traustum fótum.
Rafmyntafyrirtækið Gemini
sendi frá sér tilkynningu um að
því væri „kunnugt um“ stöðu mála
hjá Genesis. Fyrirtækin eiga í sam-
starfi um fjármálagjörning sem á
að tryggja viðskiptavinum ávöxtun,
sem er áþekk því sem hefðbundin
skuldabréf gefa af sér, gegn því að
lána út rafmyntir. n
Enn hafa vandræði á rafmyntamarkaði ekki haft mikil áhrif á almennum
mörkuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
16 Fréttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR