Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 20

Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 20
Samtals eru þeir með nokk- uð meiri veiðiheim- ildir en allt það sem fer til strand- veiða, byggða- kvóta og annarra sérverk- efna. Ég hef aldrei verið sterkur í fjár- málalæsi en nágranni minn hér í Garðabænum virðist vera enn þá slakari en ég. Ég hef nokkrar áhyggj- ur af honum blessuðum því hann er svo hoppandi glaður með hvernig til tókst með söluna á Íslandsbanka þrátt fyrir að hafa lesið skýrslu Rík- isendurskoðanda sem sýnir marg- víslegt klúður og að hlutur ríkisins var seldur á lægra verði en hægt var að fá. Fjármálablinda er manni til mik- illa trafala í lífinu og þessi granni minn var fyrir hrun í alls konar vafningum í einkageiranum sem fóru illa en hefur nú sogið sig fastan á ríkisspenann. Flestir eru sammála um að ef þú hefur ekki fjármálavit er ekki farsælt að vera vasast mikið í peningum og sérstaklega ekki peningum annars fólks. Þrátt fyrir að hafa unnið manna lengst í faginu slær fjármála tregða hans öll met því vininum er lífsins ómögulegt að skilja þessi einföldu sannindi: Ef þú selur vöru sem mikil eftirspurn er eftir á lægra verði en kaupendurnir eru tilbúnir að borga ertu að tapa peningum. Eitt þúsund fimm hundruð sjö- tíu og fimm milljónir út um glugg- ann segir í skýrslunni um nýjustu söluna hjá honum til handvalinna kaupenda. Það er mikið fé og tekur láglaunafólk þúsundir ára að vinna fyrir því. Sá hluti þjóðarinnar sem hefur bara kapítal til að fjárfesta í strætómiðum og lífsnauðsynjum tapaði því sem nam undirverðlagn- ingu á bankanum. Þeir fjármunir munu ekki fara í uppbyggingu inn- viða landsins. Það er ránið. Fyrri salan í Íslandsbanka byggð- ist líka í sér sölu á hlut fátæks fólks á undirverði til fólks sem átti peninga til að fjárfesta í banka. Öfugur Hrói höttur og allir glaðir? Er það þetta sem granni minn meinar með Stétt með stétt eða á hann við hellulagðar innkeyrsl- urnar hér í Garðabænum? Sumir f lokkar hafa þá hugsjón að koma eignum almennings til einkaaðila en stjórnlaus gleði grannans með þessi reglulegu bankarán bendir til að hæstvirtur sé annað hvort talna- blindur eða siðblindur. Milljón dollara spurningin er síðan hvernig þessar útsölur á eigum almennings til auðmanna eru liðnar aftur og aftur þrátt fyrir mikla andstöðu meirihluta fólks í landinu. Svarið við þeirri ráðgátu er að finna hjá nýjasta glæpasagna- höfundi landsins. n Blindi bankasalinn Sverrir Björnsson hönnuður Á kjarninn.is og á heimasíðu minni, birtust nýlega greinar, Fiskveiðiauð- lindin og þjóðin, með talnalegum upplýsingum um íslenskan sjávar- útveg á síðustu árum. Tölurnar voru að mestu sóttar í skýrslur Hagstofu Íslands. Meðal þess sem fram kom var að auðlindarentan, þ.e. umframhagnaður í sjávarút- vegi, á árunum 2010 til 2020 var að jafnaði um 47 milljarðar króna á ári hverju. Sú tala er í samræmi við niðurstöður fræðimanna við innlenda og erlenda háskóla, sem rannsakað hafa málið. Tölur eru góðar til að mæla stærð- ir og magn náttúrulegra hluta og huglægra fyrirbæra að því gefnu að til sé almennt viðtekin mælieining. En túlkun mælinga og vitund um hvað þær sýna er háð reynsluheimi hvers og eins. Átta ára vinur minn hann Orri veit að stór líkönin af Jurassic Park risaeðlunum kosta 20 til 25 þúsund krónur. og að það er um tvöfalt meira en fótboltaskór. Flestir skilja tölur upp á hundruð þúsunda eins og mánaðarlaun og hundrað milljónir hafa skírskotun til verðs á íbúðarhúsnæði. Þegar hærra er farið verður myndin óskýr fyrir f lesta. Hundrað milljónir eru einn með 8 núllum. Fjörutíuogsjömilljarðar eru 47 með 9 núllum, þ.e. 470 sinnum meira. Árleg auðlindarenta 2010 til 2020 jafngildir 940 íbúðum hver að verðgildi 50 milljónir króna, eða alls 10.340 íbúðum í þessi 11 ár. Önnur mynd af stærð rentunnar fæst með samanburði við nýja byggingu Landsspítalans. Tveggja ára arður af fiskveiðiauðlindinni hefði dugað til að ljúka þeirri byggingu en þó væru eftir rúmir 400 milljarðar í jarðgöng og önnur verkefni. Litlar tölur geta einnig verið tor- ræðar. Í Stundinni, 11. 11. - 24. 11. 2022, er greint frá því að sex börn fyrrum aðaleigenda eins stærsta útgerðarfélags landsins hafi eign- ast 96% í félaginu og að það fari með 11,79% allra af lahlutdeilda í fiskveiðum. Tvö þeirra hafa 2,98% aflahlutdeildanna hvor um sig og hvert hinna fjögurra hefur 1,38%. Hann Orri vinur minn er líka býsna slyngur í prósentum og fylgist vel með afslætti af risaeðlum eða fót- boltavörum. Honum þætti lítið koma til 2,89 prósenta og hvað þá 1,38 prósenta en færi í verðskanna til að sjá það í krónum. Það gerum við líka. Aflahlutdeild er ávísun á hluta af þeim aflaheimildum sem úthlutað er við upphaf fiskveiðiárs. Á þessu fiskveiðiári hafa því tveir betur settu af komendurnir hvor um sig fengið heimild til að veiða um 14.500 tonn af þorski og þorskí- gildum annarra fiskitegunda. Sam- tals eru þeir með nokkuð meiri veiðiheimildir en allt það sem fer til strandveiða, byggðakvóta og ann- arra sérverkefna. Verr settu afkom- endurnir fjórir láta sér nægja um 7.000 tonn af þorskígildum hver. Fyrirtækið sem um ræðir mun vera vel rekið og skilar væntanlega meðalhagnaði útgerðarfélaga hið minnsta. Sé svo er af lahlutdeild eigenda þess ávísun á jafnstóran hlut í auðlindarentunni. Líklegt er að á næstunni verði hún svipuð og hún hefur verið á undanförnum árum, um 47 milljarðar króna, eða jafnvel hærri eins og fiskverðs- þróun bendir til. Handhafi 2,89% aflahlutdeilda fengi þá í sinn hlut 2,89% hennar eða 1,36 mrd. kr. ár hvert en handhafi 1,38% aflahlut- deildar fengi aðeins tæpar 650 m.kr. árlega. Gjafakvótinn var á sínum tíma réttlættur með því að verið væri að vernda atvinnurétt manna. „Verður er verkamaðurinn launa sinna,“ segir í helgri bók. (Um skatta og skattfrelsi þessara tekna er einn- ig fjallað í tilvitnuðum greinum.) Veiðiheimildum er úthlutað til árs í senn og geta þær verið breyti- legar milli ára m.a. vegna breytingar á heildarkvóta og eins geta fylgt þeim nýir skilmálar eða breyttar forsendur svo sem veiðigjöld eða annað. En að öllu óbreyttu munu þeir einstaklingar, sem að framan er getið, vakna við það einn morgun við upphaf hvers fiskveiðiárs að sá ráðherra, sem til þess er valinn, færir þeim að gjöf fyrir hönd þjóð- arinnar ávísun á 1.360.000.000 kr. eða eftir atvikum 650.000.000 kr. Sælla er að gefa en þiggja. Sá ráð- herra sem gjöfina afhendir fer að lögum sem eru ekki í samræmi við rétt almennings og vilja þjóðar- innar. Samrýmist þau ekki heldur skoðun hans á réttlæti og sanngirni á hann tvo kosti – að hlíta vondum lögum eða að fá þeim breytt. n Göróttar tölur og gjafmild þjóð Indriði H. Þorláksson fyrrverandi ríkis- skattstjóri Manneskja sem á að heita fullorðin en heldur í þá barnslegu trú að þau sem ráða séu betri, heiðarlegri og sanngjarnari en þau eru, er eigin- lega ponsulítið vitlaus. Ég hef verið ferlega vitlaus. Þau sem ráða hjá borginni eru þó ennþá vitlausari því þau trúa því að það sé endalaust hægt að komast upp með að ljúga, fela og laumupú- kast án þess að nokkur fatti það. Nú er ég að vitkast örlítið og eins og þeir vita sem það hafa prófað, þá er það er ekki sársaukalaust. Þegar maður kemst að því að meirihlutinn í borginni er vísvitandi að mismuna fötluðu fólki og halda upplýsingum leyndum svo hægt sé að breiða yfir ósómann, þá verður maður reiður og sorgmæddur. Eins og barn sem spyr í síbylju „af hverju?“ hef ég barið hausnum við steininn og haldið að með því fengi ég einhverjar skýringar á því hvers vegna fatlað fólk fengi ekki upp- lýsingar um réttindi sín og af hverju væri ekki hægt að bæta úr því. Foreldrar fatlaðra barna fá, oftar en ekki, mikilvægar upplýsingar hjá öðrum foreldrum um réttindi barna sinna. Fáránlegt! Það er undir hælinn lagt hve þjónustufulltrúar á hverfamiðstöðvum geta lagt mikið af mörkum í að veita upplýsingar en þar er engin handbók til að fletta uppí og fólk verður að treysta á eigin minni og hyggjuvit við vinnu sína. Fúsk! Tillögu FF um að bæta upplýs- ingagjöf með vefsíðu og/eða bækl- ingi var vísað frá hjá borginni. Af hverju? Svarið er nöturlegt. Í fyrsta lagi kemur það sér fjárhagslega betur fyrir borgina að halda fötluðu fólki óupplýstu um rétt sinn. Í öðru lagi myndi frjálst aðgengi að upplýsingum opinbera mis- munun sem borgin stundar á fötl- uðu fólki. Það er nefnilega þannig að þegar manneskja með fötlun kemst loks í búsetuúrræði hjá borginni, fer hún allt í einu að njóta fríðinda sem hún naut ekki meðan hún var í umsjá örmagna foreldra sem unnu launa- laust við umönnun þeirra. Það er nokkuð síðan mig fór að gruna að það væri eitthvað grugg- ugt hjá borginni í þessum efnum og að fatlað fólk sæti ekki allt við sama borð þegar úthlutað væri réttind- um, niðurgreiðslum og fríðindum. Ég hafði þó ekkert fast í hendi fyrr en nú. Það þarf oft ekki mikið til svo að það sjáist í svindlið. Í þessu til- felli var það styrkur sem veittur var fötluðu fólki í Covid-faraldrinum, en aðeins þeim sem voru fluttir að heiman. Kannski réttlætti borgin þessa mismunun með ranghugmyndum um að fatlað fólk sem byggi í for- eldrahúsum hefði það svo svaka- lega gott. Það ætti moldríka foreldra, haug af systkinum og ættingjum sem sæi þeim fyrir stuðningi og félags- skap. Því hefði það ekkert að gera með Covid-styrk. Ég veit auðvitað ekkert hvað fólk var að hugsa þegar það tók þessa ákvörðun en hún hefur átt að fara leynt enda öllum væntan- lega ljóst að þarna var verið að mis- muna fötluðu fólki eftir búsetu. Þar sem ég hef vitkast þessi ósköp undanfarið, geri ég mér ekki vonir um að að meirihlutinn í borginni taki þetta til sín né gangist við brot- um sínum eða reyni að bæta fyrir þau. Mig er farið að gruna að hann sé sálarlaus með öllu. Hef þó ekkert fast í hendi með það... ennþá. n Ferlega var ég vitlaus Ásta Kristrún Ólafsdóttir móðir ungs manns með fötlun Ef þú selur vöru sem mikil eftirspurn er eftir á lægra verði en kaup- endurnir eru tilbúnir að borga ertu að tapa peningum. 20 Skoðun 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.