Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 28
Auknar tækni- nýjungar, stöðugar umbætur og styrking á flutningskerfinu mun leiða til minnkunar á kolefnisspori okkar hjá Landsneti og við erum nær því að ná mark- miðum Íslands í lofts- lagsmálum ásamt Par- ísarsamkomulaginu. Engilráð Ósk Einarsdóttir Raforkumál eru umhverfis- mál þar sem öflugt raforku- flutningskerfi er forsenda sjálfbærrar og umhverfis- vænnar orkunýtingar. Markmið stjórnvalda í lofts- lagsmálum eru metnaðarfull og gegnir flutningskerfi raforku stóru hlutverki við að ná markmiðum Íslands varðandi Parísarsam- komulagið. Aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum er safn 50 aðgerða þar sem orkuskipti eru mikilvægur þáttur. „Við hjá Landsneti erum með- vituð um þá ábyrgð sem okkar hlutverk er hvað varðar orkuskipti og viljum ekki bara standa okkur í eigin kolefnisvinnu, heldur verða til þess að fleiri fyrirtæki og landið í heild nái árangri,“ segir Engilráð Ósk Einarsdóttir, verkefnastjóri gæðamála og samfélagsábyrgðar hjá Landsneti. „Ein af forsendum þess að við getum farið í orkuskipti hér á landi er aukin flutningsgeta. Í grænbók um orkumál sem kynnt var í mars 2022 komu fram sex sviðsmyndir þar sem kemur fram hversu mikla umfram orku mun þurfa í orku- skipti. Flutningskerfið okkar í dag er fulllestað, því höfum við verið að leggja áherslu á að uppfæra kerfið og þannig gera það tilbúið fyrir orkuskiptin. Aukin eftirspurn fylgir orkuskiptum og því mikil- vægt að geta flutt orkuna á sem hagkvæmastan hátt. Við uppbygg- ingu, rekstur og viðhald mann- virkja er tekið tillit til landslags og verndun náttúru á hverjum stað. Mikilvægt er að huga að náttúru- vernd samhliða framkvæmdum, að þekkja áhrifin sem starfsemi okkar hefur á umhverfi okkar,“ segir Engilráð. Raforkumál eru umhverfismál Engilráð segir að Landsnet hafi sett sér stefnu í samfélagsábyrgð og umhverfisstefnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolefnishlutlaust Landsnet 2030 Engilráð segir að Landsnet hafi sett sér stefnu í samfélagsábyrgð og umhverfisstefnu. „Í þessum stefnum eru skil- greindar áherslur okkar og mark- mið ásamt helstu verkefnum. Helsta verkefnið okkar er að verða kolefnishlutlaust fyrirtæki árið 2030. Það þýðir að binding kolefnis verður að minnsta kosti jafn mikil og losun þess. Til að ná þessu markmiði höfum við gert aðgerðaáætlun þar sem tekið er tillit til fjölmarga þátta í starf- semi fyrirtækisins og við sett okkur tölusett markmið á hvern þátt. Við erum jafnframt með öflugt umbótastarf, markmið að lágmarka umhverfisáhrif í rekstri fyrirtækisins og vinna með umhverfisatvik. Ávallt er unnið í því að gera betur í dag en í gær enda umbótastarf mjög mikilvægt í starfsemi Landsnets. Við erum með vottað umhverfisstjórnunar- kerfi,“ segir Engilráð. „Árlega greinum við frá kolefnis- spori okkar þar sem rekstrinum hefur verið skipt upp í beina og óbeina losun. Í útreikningum á kolefnisspori okkar eru teknir losunarþættir sem falla til við starfsemina. Losunarþættir fyrir- tækisins hafa verið greindir og skipt upp í umfang 1, 2 og 3 eftir því hvort um beina losun er að ræða, eða óbeina. Fylgst er með öllum losunarþáttum í græna bókhaldinu okkar, langtíma- og skammtímamarkmið sett og umbætur eru gerðar reglulega,“ segir Engilráð. Losunarbókhald frábrugðið Hún segir að losunarbókhald Landsnets sé nokkuð frábrugðið því hjá öðrum fyrirtækjum. „Sem dæmi um óbeina losun eru flutningstöp en rúmlega 2% tapast af þeirri raforku sem er sett inn í kerfið á leiðinni til notenda. Þessi tala mun að öllu líkindum hækka með aukinni orkunýtingu og því mikilvægt að unnið sé að styrk- ingu kerfisins samhliða. Með því að draga úr orkusóun þá aukum við nýtingu á endurnýjanlegri orkuauðlind þjóðarinnar og getum við sem samfélag skipt út jarðefna- eldsneyti fyrir raforku. Helsta uppspretta beinnar los- unar hjá Landsneti er vegna leka á SF6-gasi en það er gas sem er notað sem einangrunarmiðill í rafbúnaði í tengivirki. Þar sem Landsnet hefur sett sér kolefnishlutleysis- stefnu þá spilar gasið stórt hlut- verk. Í innkaupum á búnaði er það reiknað inn í kolefnisverð og borin saman verðtilboð með tilliti til þess. Jafnframt hefur nýsköpun og þróun á tengibúnaði verið mikil og höfum við hjá Lands- neti verið að fylgjast með þróun á nýjum lausnum án SF6 gass sem einangrunarmiðils. Aðrir los- unarþættir eru, líkt og hjá öðrum fyrirtækjum, til dæmis eldsneyti á bíla og úrgangur,“ segir Engilráð og bætir við: „Auknar tækninýjungar, stöðug- ar umbætur og styrking á flutnings- kerfinu mun leiða til minnkunar á kolefnisspori okkar hjá Landsneti og við erum nær því að ná mark- miðum Íslands í loftslagsmálum ásamt Parísarsamkomulaginu.“ n Orkuskipti.is er nýr upp- lýsingavefur þar sem almenningur getur nálgast aðgengilegar upplýsingar um orkunotkun, orkuskipti og efnahagslegan ávinning Íslands af orkuskiptum. thordisg@frettabladid.is „Þessa dagana er mikið talað um orkuskipti, enda hafa íslensk stjórnvöld sett háleit markmið í loftslagsmálum. Ísland skal verða jarðefnaeldsneytislaust árið 2040 eða ná fullum orkuskiptum, eins og það er kallað. Full orkuskipti þýða að við ætlum að hætta að nota orkugjafa sem við flytjum inn milljón tonn af á hverju ári og borgum 100 milljónir fyrir og nota aðra umhverfisvæna orkugjafa í staðinn.“ Þetta segir Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, sam- taka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. En hvað þýðir þetta eiginlega? „Svona markmið vekja upp ótrú- lega margar spurningar hjá fólki og setja fyrir ótrúlega mörg verkefni. Er þetta hægt? Hvað kemur þetta til með að kosta? Hvaða orka á að koma í staðinn fyrir olíuna? Og hvaðan? Hversu mikið þarf af henni?“ nefnir Lovísa sem dæmi um spurningar sem vakna vegna orkuskiptanna. „Tilgangurinn með vefsíðunni orkuskipti.is er einmitt að svara þessum spurningum og fleirum. Við erum þeirrar skoðunar að góðar upplýsingar séu algjör for- senda þess að við getum áttað okkur á vegferðinni sem fram undan er og það er mikilvægt að þær upplýsingar séu á góðu mannamáli og byggðar á stað- reyndum. Á orkuskipti.is eru settar fram greinargóðar og myndrænar upplýsingar sem eru byggðar á opinberum gögnum. Vefurinn varpar skýru ljósi á stöðuna og hver ávinningur okkar af orku- skiptum gæti verið fyrir íslenskt samfélag,“ upplýsir Lovísa. Margt sem kemur á óvart Að nýja vefnum, orkuskipti. is, standa Samorka, Samtök iðn- aðarins, Landsvirkjun og EFLA. Vefurinn gagnast öllum sem vilja fræðast um eða leita sér upplýsinga um orkuskipti, orkunotkun á Íslandi, þróun orkunotkunar, og svo kostnað við og mögulegan ávinning af því að íslenskt sam- félag hætti að nota eldsneyti. „Það munar miklu um að hafa góðar upplýsingar á einum stað. Það er eins með þetta og margt annað að hægt er að finna ógrynni upplýsinga um orkuskipti, orku- notkun og orkugjafa út um allt, ef fólk leggur sig fram um að leita á mörgum mismunandi stöðum. En það munar líka miklu um að fram- setningin sé skiljanleg því orkumál eru í eðli sínu nokkuð flókin og geta auðveldlega ruglað mann í ríminu. Svo eru upplýsingar misáreiðanlegar eins og gerist og þá er stór kostur að allt sem er á orkuskipti.is er byggt á opinberum gögnum og staðreyndum,“ segir Lovísa. Hún telur víst að almenningur getur orðið margs vísari á orku- skipti.is. „Já, ekki spurning. Ég held að margt sem þar kemur fram komi fólki á óvart, eins og til dæmis þróun í orkunotkun í gegnum tíðina og hversu stór hluti ork- unnar sem við notum er vegna húshitunar, baða og annarrar neyslu. Eins er mjög spennandi að sjá mögulegan ávinning af því að hætta að nota jarðefnaeldsneyti, en lærdómur af fyrri orkuskiptum, eins og hitaveituvæðingunni, segir okkur að það eigi ekki endilega að koma á óvart,“ greinir Lovísa frá. Meðal áhugaverðs fróðleiks sem lesa má um á orkuskipti.is er mögulegur efnahagslegur ávinn- ingur af fullum orkuskiptum, sam- kvæmt greiningu EFLU, en hann er um 1.400 milljarðar króna fram til ársins 2060. „Það samsvarar fjármögnun heilbrigðiskerfisins í fimm ár. Heildarumfang fjárfestinga getur numið 800 milljörðum króna á sama tímabili, sem samsvarar byggingu tíu nýrra Landspítala. Orkuskiptin munu draga verulega úr losun Íslands, eða sem nemur 88 milljónum tonna koltvísýrings- ígilda (CO2) og eru verðmæti þess um 500 milljarðar íslenskra króna. Orkan í þessum milljón tonnum af olíu umreiknast í um það bil 16 TWst af raforku. Það er orku- magnið sem þarf til að uppfylla gatið sem olían skilur eftir sig, en til að setja þessa tölu í samhengi eru þetta 80 prósent af því sem framleitt er af raforku á Íslandi í dag,“ segir Lovísa. n Sjá meira á orkuskipti.is Mikilvægar upplýsingar á mannamáli Lovísa Árnadóttir er upplýsingafulltrúi Samorku. MYND/BIG Það munar miklu að hafa góðar upplýsingar á einum stað og að framsetningin sé skiljanleg því orkumál eru í eðli sínu nokkuð flókin. Lovísa Árnadóttir 4 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.