Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 32
Lífsferilsgreiningar eru til-
tölulega nýtt viðfangsefni
hér landi sem er best lýst
sem aðferðafræði sem notuð
er til að meta staðbundin og
hnattræn umhverfisáhrif
vöru, byggingar eða þjón-
ustu yfir líftíma hennar.
Mannvit býður upp á gerð lífs-
ferilsgreiningar (LCA), eða vist-
ferilsgreiningar, fyrir fyrirtæki og
stofnanir ásamt almennri ráðgjöf á
sviði verkfræði, umhverfismála og
tengda tækniþjónustu.
„Mannvit vinnur lífsferils-
greiningar, eða vistferilsgreiningar,
og getur unnið lífsferilsgreiningar
fyrir alla,“ segir Bergrós Arna Sæv-
arsdóttir, umhverfisverkfræðingur
hjá Mannviti.
„Lífsferilsgreining er stöðluð
aðferðafræði til þess að meta
umhverfisáhrif yfir líftíma vöru,
þjónustu eða mannvirkja. Það er
oft talað um að skoða áhrifin „frá
vöggu til grafar“ eða það sem er
enn betra, „frá vöggu til vöggu“: til
dæmis til að stuðla að hringrásar-
hagkerfinu.“
Bergrós segir að aðaltilgangur
lífsferilsgreininga sé að kortleggja
umhverfisáhrif, en með kort-
lagningu er hægt að benda á hvar
þau séu mest og þannig hægt að
ráðast í aðgerðir til þess að minnka
umhverfisáhrifin. Í lífsferils-
greiningum er ekki bara verið að
skoða kolefnislosun, heldur eru
fleiri áhrifaflokkar skoðaðir. Þar
má nefna eituráhrif byggingarefna
og áhrif á súrnun sjávar.
Bygging, bílrúða og vetni
Til að koma með dæmi um hvaða
þættir eru skoðaðir má nefna bygg-
ingu. „Við skoðum allt frá fram-
leiðslu byggingarefna, til dæmis
framleiðslu timburs fyrir glugga,
þangað til að byggingin er rifin og
byggingarefnin urðuð eða endur-
notuð. Kortlögð eru umhverfis-
áhrif frá framleiðslu timbursins,
flutningur á verkstæði þar sem
gluggarnir eru smíðaðir, flutningur
til Íslands og að byggingarsvæði,
endurnýjun og viðhald glugga á lífs-
ferli byggingarinnar og hvað verður
um þá þegar byggingin er rifin,“
segir Nína María Hauksdóttir, sjálf-
bærniráðgjafi hjá Mannviti.
„Við hjá Mannviti framkvæmd-
um nýlega lífsferilsgreiningu fyrir
framrúðuskipti fyrir Sjóvá. Annars
vegar var gerð lífsferilsgreining á
framrúðuskiptum og hins vegar
viðgerð á framrúðu og niðurstöð-
urnar bornar saman. Niðurstöð-
urnar voru þær að það losar 24.000
sinnum minna að gera við sprungu
í bílrúðu heldur en að skipta um
meðalstóra bílrúðu.
Með því að gera þessar
greiningar geta fyrirtæki greint
umhverfisáhrif þjónustu sinnar og
farið í aðgerðir til þess að minnka
umhverfisáhrif á sínum vegum
ásamt því að miðla upplýsingum út
á við til viðskiptavina sem verða þá
meðvitaðri um sínar neysluvenjur.
Sjóvá hlaut verðlaun fyrir
Umhverfisframtak ársins 2022
fyrir að vekja athygli viðskiptavina
á umhverfislegum ávinningi sem
fæst með framrúðuviðgerð í stað
framrúðuskipta,“ segir Nína María.
Kristján Valur Vilbergsson, sér-
fræðingur í sjálfbærri orku, segir
tilvalið að nefna tiltölulega nýtt
umræðuefni hér á landi, fram-
leiðslu vetnis til notkunar á til
dæmis flutningabílum, skipum eða
til orkugeymslu. „Sú framleiðsla
krefst „einungis“ vatns og raforku
og fyrst við erum með svona flotta
græna orku hérna á Íslandi, og oft á
tíðum umframorku, þá væri hægt
að nýta hana til framleiðslu á vetni.
Með lífsferilsgreiningu væri til
dæmis hægt að gera samanburð á
umhverfisáhrifum af því að fram-
leiða vetni hér á landi og flytja það
til Evrópu eða að framleiða vetnið
í Evrópu. En í Evrópu er mikil eftir-
spurn eftir vetni.“ Lífsferilsgreining
er greining óháðs aðila á umhverfis-
áhrifum þessara mismunandi leiða.
Ávinningurinn
Kristján Valur segir að einn helsti
ávinningurinn af notkun lífsferils-
greininga sé að auðvelda þeim
sem að byggingu, framleiðslu vöru
eða þjónustu koma að taka upp-
lýstar ákvarðanir með lágmörkun
umhverfisáhrifa að leiðarljósi. Því
fyrr sem lífsferilsgreining er gerð,
því auðveldara er að bregðast við
til dæmis með að velja umhverfis-
væn byggingarefni á frumstigum
hönnunar. Það þarf að hanna
byggingu eða vöru með tilliti til
lífsferilgreininga, ekki framkvæma
lífsferilsgreiningu eftir að bygging
eða vara er fullmótuð. Ef þessi
greining er gerð seint í ferlinu þá er
mjög lítið hægt að gera: lítið rými til
að minnka til dæmis kolefnislosun
eða velja á milli byggingarefna.
Lífsferilsgreiningar eru einn-
ig notaðar sem grunnur fyrir
umhverfisyfirlýsingar, sem eru
stöðluð skjöl sem draga saman
umhverfisáhrif vöru og gera þannig
kleift að bera saman vörur.
Bergrós Arna ítrekar að lífsferils-
greining sé stöðluð aðferðafræði.
„Þetta er gert út um allan heim til
þess að meta umhverfisáhrif, þá
sérstaklega kolefnisspor. Það þarf
að kortleggja þessi áhrif til þess að
vita hvar eigi að fara í aðgerðir og
þannig minnka losun á heimsvísu.
Við þurfum að fara að nota
tólin sem við höfum til þess að ná
fram raunverulegum ávinningi í
umhverfismálum. n
Kortleggja umhverfisáhrif til að
minnka kolefnissporið
Bergrós Arna Sævarsdóttir, Nína María Hauksdóttir og Kristján Valur Vilbergsson, starfsmenn Mannvits. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
8 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A