Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 33
Landsvirkjun mun leika
lykilhlutverk í orkuskiptum
Íslands. Samtímis dregur
fyrirtækið úr eigin losun og
styður orkuskipti erlendis.
Egill Tómasson nýsköpunarstjóri,
Sveinbjörn Finnsson viðskipta
þróunarstjóri og Jóhanna Hlín
Auðunsdóttir, forstöðumaður
Loftslags og grænna lausna, segja
frá stefnu fyrirtækisins í loftslags
málum.
„Orkumál eru loftslagsmál,“
segir Jóhanna Hlín, „enda er ljóst
að endurnýjanleg orka er það sem
koma skal og jarðefnaeldsneyti
er á útleið. Þessi orkuskipti eru
nauðsynleg ef sporna á við hlýnun
jarðar og það er mikill samhljómur
um nauðsyn þess að rafvæða orku
eins og hægt er í öllum heiminum,
stuðla að orkusparnaði þar sem
tækifæri gefast og bylta orku
kerfum þannig að öll orka sé úr
endurnýjanlegum auðlindum.
Staða Landsvirkjunar þegar horft
er til loftslagsáhrifa er því mjög
góð, þar sem öll okkar orkuvinnsla
er úr endurnýjanlegum auðlindum
og í þokkabót erum við með eitt
allra minnsta kolefnisspor sem
þekkist á heimsvísu,“ segir hún.
Í því samhengi bendir hún á að
viðmið ESB um raforku sem getur
talist sem mótvægisaðgerð gegn
loftslagsbreytingum sé 100 grömm
koltvíoxíðslosunar á hverja kíló
vattstund, en í starfsemi Lands
virkjunar er þessi tala 3,6 grömm á
kílóvattstund.
Kolefnishlutleysi 2025
Jóhanna Hlín bendir á að öll
starfsemi mannanna valdi losun
og Landsvirkjun sé þar ekki
undantekning. „Við höfum unnið
markvisst að því um árabil að
laga starfsemina að breyttum
aðstæðum vegna loftslags
breytinga, ásamt því að kortleggja
losun vegna starfseminnar, draga
úr henni og veita upplýsingar um
árangurinn í loftslagsbókhaldinu
okkar, sem óháðir endurskoð
endur rýna árlega,“ segir hún.
Landsvirkjun verður kolefnis
hlutlaus árið 2025 og er að sögn
Jóhönnu nú þegar komin vel á leið,
en kolefnisspor starfseminnar
hefur minnkað um 61% frá árinu
2008. „Stærsta verkefnið er 60%
samdráttur í losun frá jarðvarm
anum sem við munum ná eftir 3 ár.
Sá samdráttur samsvarar um 2,5%
af skuldbindingum Íslands um
samdrátt í samfélagslosun.
Fjölbreyttar aðgerðir
í orkuskiptum
„Landsvirkjun ætlar sér að vera
leiðandi í orkuskiptum Íslands og
hyggst gera það með fjölbreyttum
aðgerðum,“ segir Egill og heldur
áfram: „Í fyrsta lagi má nefna sam
drátt í eigin losun eins og Jóhanna
Hlín hefur komið inn á. Lands
virkjun býður þar með upp á raf
orku með eitt lægsta kolefnisspor
sem þekkist í heiminum. Í öðru
lagi þróar Landsvirkjun tvö raf
eldsneytisverkefni, vetnisverkefni
annars vegar og metanólverkefni
hins vegar, sem ætlað er að stuðla
að orkuskiptum í samgöngum. Um
er að ræða verkefni sem nú eru í
svokölluðum þróunarfasa og ekki
búið að taka endanlega ákvörðun
um fjárfestingu eða endanlegt
hlutverk Landsvirkjunar í fram
leiðslunni sjálfri. Sú ákvörðun
verður tekin síðar þegar meira
liggur fyrir um kostnað, lagalegt
umhverfi, stuðning stjórnvalda,
eftirspurnarhliðina og svo fram
vegis,“ segir Egill.
Grænt vetni og metanól
Fyrra verkefnið, sem Egill stýrir
snýst um að hefja framleiðslu á
grænu vetni sem notað verður til
að ná fram orkuskiptum í þunga
flutningum á landi. „Verkefninu er
ætlað að ryðja brautina í vetnis
væðingunni og búa þannig um
hnútana að raunhæft sé að ná
markmiðum Íslands í loftslags
málum, í það minnsta hvað orku
skipti í samgöngum á landi varðar.
Vetni getur leyst jarðefnaeldsneyti
af hólmi sem algjörlega kolefnis
frír orkugjafi og minnkað losun
umtalsvert, enda losar einn stór
flutningabíll ígildi losunar fleiri
tuga einkabíla,“ segir hann.
Sveinbjörn stýrir síðara verk
efninu, sem snýst um skoðun á
mögulegri framleiðslu metanóls,
eldsneytis sem þykir henta vel
fyrir orkuskipti á hafi. „Metanól
er framleitt úr vetni og koldíoxíði.
Metanólvélar eru nú þegar í
notkun og alþjóðleg skipafélög, til
dæmis danska fyrirtækið Maersk,
hafa pantað fjölmörg metanólskip
fyrir sinn rekstur. Ýmis íslensk
fyrirtæki, bæði í skipaflutningum
og sjávarútvegi, hafa sýnt metanóli
mikinn áhuga og líta á það sem
vænlegan kost fyrir fyrstu skref
í orkuskiptum í sinni starfsemi.
Við hjá Landsvirkjun höfum hafið
samstarf við þýska fyrirtækið PCC
SE um að kanna fýsileika fram
leiðslu metanóls. Fanga mætti kol
díoxíð frá kísilveri PCC á Bakka og
nýta fyrir metanólframleiðsluna
ásamt grænu vetni sem unnið yrði
með endurnýjanlegri raforku frá
Landsvirkjun,“ segir Sveinbjörn.
Náið samstarf við atvinnulífið
Sveinbjörn leggur áherslu á að
þegar allt kemur til alls þurfi
Landsvirkjun að vinna náið með
atvinnulífinu til að mæta þörfum
þess þegar kemur að gerð og magni
rafeldsneytis sem þarf fyrir þeirra
orkuskipti. „Orkufyrirtækin leggja
ekki línurnar þegar kemur að
orkuskiptum, heldur notendurnir.
Þetta á til dæmis við um flutninga
fyrirtækin, útgerðirnar og flug
félögin. Landsvirkjun er einmitt í
formlegu samstarfi við Eimskip,
Icelandair og fleiri fyrirtæki þegar
kemur að orkuskiptum þeirra.“
Egill bætir við að einnig sé mikil
vægt að stjórnvöld leggi skýrar
línur um hvernig þau sjái orku
skipti Íslands fyrir sér. „Það verður
vonandi ljóst þegar vetnis og
rafeldsneytisvegvísir fyrir Ísland
verður gefinn út. Til viðbótar við
stefnumörkun þarf ríkið einnig
að styðja við uppbygginguna fjár
hagslega, enda um að ræða stórar
fjárfestingar sem að öðrum kosti
verða ekki að veruleika, bæði hjá
framleiðendum og notendum.
Þetta gildir jafnt um þau evrópsku
verkefni sem nú þegar hafa litið
dagsins ljós og væntanleg verkefni
á Íslandi.“
Útflutningur á sérþekkingu
Landsvirkjun styður við orku
skipti erlendis í gegnum Lands
virkjun Power sem er dótturfélag
Landsvirkjunar og heldur utan
um erlend verkefni fyrirtækisins.
„Tilgangur Landsvirkjunar Power
er að flytja út þá sérþekkingu sem
við Íslendingar höfum aflað okkur
á sviði endurnýjanlegra orkugjafa
og stuðla þannig að orkuskiptum
erlendis. Félagið veitir ráðgjöf við
undirbúning, byggingu og rekstur
endurnýjanlegra virkjunarkosta
og tekur þátt í þróun þeirra. Nýj
asta dæmið um slíkt verkefni er 10
MW vatnsaflsstöð í Georgíu sem
Landsvirkjun á einnig hlut í,“ segir
Sveinbjörn og bætir við að Lands
virkjun Power kanni möguleg
verkefni á Grænlandi og í Kanada
með það fyrir augum að styðja við
orkuskipti á norðurslóðum. n
Landsvirkjun í lykilhlutverki í orkuskiptum
Starfsfólk Landsvirkjunar vinnur hörðum höndum að málefnum sem tengjast hreinni orku. Frá vinstri: Egill Tómasson nýsköpunarstjóri, Jóhanna Hlín
Auðunsdóttir, forstöðumaður Loftslags og grænna lausna, og Sveinbjörn Finnsson viðskiptaþróunarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsvirkjun er í formlegu samstarfi við Eimskip og fleiri fyrirtæki þegar kemur að orkuskiptum þeirra. MYND/AÐSEND
Orkuskipti eru
nauðsynleg ef
sporna á við hlýnun
jarðar og það er mikill
samhljómur um nauð-
syn þess að rafvæða orku
eins og hægt er í öllum
heiminuma.
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir
Landsvirkjun
býður þar með upp
á raforku með eitt lægsta
kolefnisspor sem þekk-
ist í heiminum.
Egill Tómasson
kynningarblað 9FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 HREIN ORK A