Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 42
Ég held að Ibiza sé
yfir höfuð kannski
mesti áhrifavaldurinn og
innblásturinn. Hippa-
menningin er mjög sterk
og andrúmsloftið á
eyjunni dásamlegt.
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
Dúnkápur
frá
Hildur Hafstein skartgripa-
hönnuður hefur vakið mikla
athygli fyrir skartgripi með
eigin nafni. Hildur rekur
litla verslun og vinnustofu á
Klapparstíg sem er sveipuð
töfrum og lýsir persónuleika
Hildar vel.
sjöfn@frettabladid.is
Hildur hafði mikinn áhuga á
fötum og skrauti á unglingsár-
unum. Hún klæddi sig á litríkan
hátt og hefur alltaf haft þörf fyrir
að skapa. Hildur er fædd í Svíþjóð,
alin upp hér á landi, en hefur
alltaf sagt að í sér renni suðrænt
blóð þótt hún viti ekki hvaðan
það kemur.
„Eftir Versló var ég óviss um
hvað ég vildi gera þótt eitthvað
skapandi lægi nú beinast við. Ég
prófaði mig aðeins áfram og fór
fyrst í viðskiptafræði í HÍ af því
mér fannst það praktískt. Skipti
svo yfir í lögfræði. Ekki fannst mér
hún mikið skárri svo ég tók eina
önn í heimspeki. Það fannst mér
miklu skemmtilegra en ekki alveg
það sem ég leitaði að. Haustið
eftir byrjaði ég svo í klæðskera-
námi í Iðnskólanum og þá gerðist
eitthvað spennandi, sá samt að ég
vildi frekar teikna föt en sauma
þau. Þá lá leiðin til Barcelona í
fatahönnun þar sem ég var í tvö
ár, kom svo heim og kláraði BA
í textílhönnun við LHÍ,“ segir
Hildur.
Fannst Cindy Lauper frekar töff
Aðdragandi að því að Hildur ákvað
að læra hönnun tók sinn tíma
en sköpunarþörfin var ávallt til
staðar. „Ég hafði sem unglingur
mikinn áhuga á fötum og skrauti,
klæddi mig alltaf mjög litríkt og
fékk mömmu til að hjálpa mér
að sauma skraut á flíkur eða
mála skó. Get ekki sagt að ég hafi
beint átt fyrirmynd en á þessum
árum fannst mér Cindy Lauper
frekar töff. Í Versló varð ég klass-
ískari í klæðaburði, litagleðin og
glamúrinn tóku aftur við, sérstak-
lega þegar ég kynntist uppáhalds-
eyjunni minni Ibiza en þangað fór
ég fyrst í vinkonuferð 1989, vann
þar í nokkur sumur og fer reglulega
í heimsókn.“
Þar fæddust fyrstu skartgripirnir
Spurð segist Hildur halda að hún
hafi verið frekar skapandi krakki.
„Ég var ágæt í að teikna og hafði
gaman af að gera klippimyndir og
búa til alls konar og ómeðvitað
hef ég kannski alltaf verið dálítill
textílnörd. Ég vann mest sem
stílisti og búningahönnuður í sjón-
varpi og leikhúsi eftir nám en ég
gerði líka þrjár fatalínur, ein þeirra
hét Barbarella sem ég gerði með
Bjarna Breiðfjörð, vini mínum.
Hún var mjög litrík og skemmtileg.
Skartgripirnir komu hins vegar
alveg óvart til mín.
Ég fór í diplómanám á vegum
Listaháskólans og Háskólans á Bif-
röst sem hét Prisma og þar fæddust
fyrstu skartgripirnir. Ég kláraði
námið 2010 og seldi fyrst hönnun-
ina í nokkrum búðum í bænum.
Ég opnaði svo fyrstu verslunina
mína 2012 á Klapparstígnum og er
enn að.“
Hvar færðu innblásturinn í
hönnun þína?
„Bara úti um allt, úti á götu,
í útlöndum, í náttúrunni, í bíó,
myndlist, bókum, bara alls konar.
Ég held samt að Ibiza sé yfir höfuð
kannski mesti áhrifavaldurinn og
innblásturinn. Hippamenningin
er mjög sterk og andrúmsloftið
á eyjunni dásamlegt. Svo er það
jógaheimspekin, sígauna-
menningin og ýmis sym-
bólismi, eitthvað sem ég
horfi mikið til og finnst
gaman að skoða.“
Þegar kemur að
formum, efnisvali og
litum, hvað er það sem
heillar þig mest?
„Ég nota mest
silfur í gripina mína
en líka 9 karata
gull. Svo eru nátt-
úrusteinar alltaf
stór hluti og
öll sú litadýrð
sem er í þeim.
Steinarnir voru
reyndar upphafið
að þessu öllu
saman, orkan og
áferðin á þeim var það sem kallaði
fyrst á mig. Svo vafði þetta upp á
sig. Ætli steinarnir heilli mig ekki
mest, sagan og orkan í þeim.“
Er eitthvað sem stendur upp
úr nú þegar af því sem þú hefur
hannað?
„Já, ég get eiginlega sagt það
fullum fetum að festarnar sem ég
hef gert úr steinum og antík
tyrkneskum textíl séu í
uppáhaldi.“
Bjuggu í Valencia á
Spáni
Hildi hefur gengið fram-
úrskarandi vel að kynna
hönnun sína og koma
henni á framfæri.
„Ég hef reynt að
vera í f læðinu með
þetta allt saman
og leyft hlutunum
að gerast. Þessi
litli heimur minn
hefur vaxið og
þroskast fallega.
Ísland er lítill
markaður og ég
er svo heppin
að mér hefur
verið vel tekið
frá byrjun og
á orðið stóran
hóp af frá-
bærum kúnnum
sem ég er þakklát
fyrir.
Við fjölskyldan
bjuggum í Val-
encia á Spáni í
nokkur ár og þar
rak ég vinnu-
stofu samhliða
búðinni hér. Ég
fékk með mér
gott fólk sem sá
um búðina hér
á Íslandi svo ég
gat eytt tímanum úti í
að spá og spekúlera og
skoða tækifæri. Þar fann
ég framleiðendurna
mína, tvö lítil fjölskyldufyrirtæki
með kynslóðahefð sem ég vinn
enn með í dag. Það breytti öllu að
komast í sérhæfða skartgripafram-
leiðslu, þá gat ég bætt í vöruúr-
valið, fór að selja í búðum úti og
stofnaði netbúð.“
Getur þú gefið öðrum góð ráð
sem langar að láta drauma sína
rætast á þessu sviði?
„Það skiptir máli að reyna að
vera óhræddur. Hlusta á innsæið,
ferðast, skoða, prófa, vera opin
og fá ráð. Þetta er ekkert alltaf
auðvelt. Ég viðurkenni alveg að
það gat verið stressandi að hitta
fólk í fyrsta sinn, framleiðendur,
verslunareigendur og birgja, og
kynna sig og sína vöru. Það er mér
ferskt í minni þegar ég var ein í
Istanbul í fyrsta skiptið að hitta
silfurframleiðendur. Þegar ég kom
á staðinn hitti ég fyrir þrjá fíleflda
tyrkneska gyðinga í gömlu dimmu
vöruhúsi og þeir fylgdu mér um á
milli vörubásanna.
Ég varð ekki smeyk fyrr en eftir
á en að sjálfsögðu voru þeir hinir
indælustu menn og ég hitti þá
alltaf þegar ég fer til Istanbúl og fæ
hjá þeim te,“ segir Hildur og hlær.
Gallabuxur og hælar
Hildur hefur líka fallegan og lit-
ríkan fatastíl sem tekið er eftir.
Hún lýsir stílnum sínum sem lit-
ríkum en líka stílhreinum. „Galla-
buxur og blússa er klassík og ég er
mikið svoleiðis klædd dagsdag-
lega í vinnunni, nota gallabuxur
kannski aðeins of mikið. Dreymir
oft um að vera í f lottum pilsum
eða kjól og hælum en veðráttan
hér býður ekki endilega upp á
það, ég er reyndar dugleg að vera í
hælum.“
Þegar kemur að sniðum er
Hildur til í allt. „Ég fer í alls konar
snið ef þau eru vel gerð og klæða
mig en ég legg áherslu á góð efni,
ég á alveg rosalega erfitt með léleg
efni og vansnið á flíkum.
Litir lífga upp á lífið, og hér í
þessu skammdegi finnst mér enn
meiri þörf á að klæðast litum,
ég viðurkenni að Íslendingar
mættu bæta sig á þessu sviði,“
segir Hildur að lokum með sínu
geislandi brosi. n
Litadýrð og útgeislun einkennir hönnun Hildar
Hildur Hafstein skart-
gripahönnuður hefur
vakið mikla athygli
fyrir hönnun sína
á skartgripa-
merkinu Hildur
Hafstein þar
sem fallegir,
litríkir steinar
með sögu og
orku spila aðal-
hlutverkið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Þessar festar sem Hildur hefur gert úr steinum og antík tyrkneskum textíl
eru í mestu uppáhaldi hjá henni. Einstaklega fallegar festar þar sem stein-
arnir í allri sinni dýrð fanga augað.
Ég nota mest silfur í gripina mína en
líka 9 karata gull, segir Hildur.
6 kynningarblað A L LT 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR