Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 48
Samstarfið er mjög
gott. Menn vinna
saman í þessu og
hjálpa hver öðrum.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu
Allt fór í raun á annan
endann þegar Dagný
Brynjarsdóttir vakti
athygli á málinu. Um
var að ræða storm í
vatnsglasi.
Þegar rykið er sest má flestum vera
ljóst að lætin í kringum búninga-
mál landsliðsfólks á dögunum voru
óþörf. Dagný Brynjarsdóttir, lands-
liðskona í fótbolta, setti af stað snjó-
bolta þar sem starfsfólk KSÍ mátti
þola þung högg, og ég tók þátt í því.
Þegar öll kurl komu svo til grafar
mátti vera ljóst að hægt var að leysa
þetta mál innan veggja KSÍ.
Staðreyndin er sú að Aron Einar
Gunnarsson er fyrsti landsliðsmað-
ur í sögu Íslands sem fær sérstaka
100 landsleikja treyju. Vonandi er
þetta hefð sem KSÍ tekur upp hjá
sér en frumkvæðið, eins og komið
hefur fram, var alfarið frá búninga-
stjóra karlalandsliðsins.
Þótt oft á tíðum megi vafalítið
gagnrýna stjórn og starfsfólk KSÍ
var farið offari í þessu máli og
sparkað í fólk án þess að það ætti
það í raun og veru skilið.
Samkvæmt heimildum er í reynd
verulegt ósætti innan KSÍ með
framgöngu Dagnýjar í málinu. Eftir
að hafa sett út Instagram-færslu
á sunnudegi, höfðu Vanda Sigur-
geirsdóttir, formaður KSÍ, Klara
Bjartmarz, framkvæmdarstjóri KSÍ
og Þorsteinn Halldórsson landsliðs-
þjálfari samband við leikmanninn.
Farið var yfir málið og allir töldu að
því væri lokið. Það vakti því furðu
þessa sama fólks að sjá Dagnýju í
fréttum RÚV á mánudagskvöldi þar
sem hún gagnrýndi sambandið á
nýjan leik. Er þetta ekki í fyrsta sinn
sem Dagný gagnrýnir sambandið
opinberlega. Á síðasta ári vakti hún
athygli á því að leikmenn karla-
liðsins fengu að knúsa börnin sín
eftir leik í september en konunum
var bannað slíkt hið sama í júní. Var
eðlileg útskýring á því, í júní voru
strangari reglur vegna Covid-19
en í september. Voru íþróttafélög í
vinnusóttkví á meðan verkefni stóð
og máttu ekki hitta utanaðkomandi
aðila. Gagnrýnin átti því engan rétt
á sér.
Málið er eins og fyrr segir stormur
í vatnsglasi en út úr því kom þó að
mögulega er hægt að gera betur
þegar við kveðjum landsliðsfólk
að ferli loknum. Viðeigandi væri að
setja það inn í reglur hjá KSÍ að fólk
fái sína stund til að þakka fyrir sig
hafi það náð ákveðnum landsleikja-
fjölda. n
Þegar rykið er sest
n Utan vallar
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Tímalína málsins
Apríl
2022
n Dagný Brynjarsdóttir og Glódís
Perla Viggósdóttir leika sinn
100. leik, þegar Ísland mætir
Hvíta-Rússlandi í Serbíu.
n Báðar fá afhentan blómvönd
frá formanni KSÍ fyrir leikinn í
Serbíu.
September
n Birkir Már Sævarsson og Birkir
Bjarnason leika báðir sinn 100.
leik, þegar Ísland mætti Norður-
Makedóníu á Laugardalsvelli.
n Báðir fá afhentan blómvönd
fyrir leikinn við Þýskaland
nokkrum dögum síðar á Laugar-
dalsvelli.
n Hvorugur fær afhenta treyju
eftir leik.
2021
Nóvember
n Birkir Már
Sævarsson
tilkynnir
fyrir útileik
við Norður-
Makedóníu
að það verði
hans síðasti
leikur.
n Fær afhenta
treyju eftir
leik með
áletrun „103“
sem er leikja-
fjöldinn
hans.
n Birkir Bjarna-
son slær
leikjamet
Rúnars Krist-
inssonar (104
leikir) í leik
við Norður-
Makedóníu.
n Fær afhenta
treyju eftir
leik með
áletrun „105“
sem er leikja-
fjöldinn, nýja
metið.
n Frumkvæðið er frá búninga-
stjóra og liðsstjóra A-karla.
Nóvember
n Aron Einar
Gunnarsson
leikur sinn
100. leik.
n Fær afhenta
treyju eftir
leik með
áletruninni
„100“.
n Frumkvæðið er frá búninga-
stjóra og liðsstjóra A-landsliðs
karla.
n Þetta var því í fyrsta sinn sem
leikmaður sem nær 100 A-lands-
leikjum fær afhenta sérstaka
„100 leikja“ treyju af því tilefni.
100
Í litlu knattspyrnusambandi
eins og er á Íslandi er mikil-
vægt að fólk vinni náið saman
svo hægt sé að deila þekkingu
sín á milli. Hefur þetta tíðkast
hjá sambandinu um langt
skeið, allar hendur á dekk til
að hægt sé að halda úti liðum
í fremstu röð
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Þorsteinn Halldórsson,
þjálfari íslenska kvennalands-
liðsins, er staddur í Litháen með
íslenska karlalandsliðinu þessa
stundina, þar sem liðið tekur þátt
í Eystrasaltsbikarnum. Hann segir
samstarfið á milli landsliða Íslands
og starfsfólks þeirra gott og að fólk
sé opið fyrir því að læra hvert af
öðru.
Þorsteinn fór með íslenska
kvennalandsliðið í lokakeppni
Evrópumótsins á Englandi í sumar
og var hársbreidd frá því að koma
liðinu í lokakeppni Heimsmeistara-
mótsins, sem fram fer á næsta ári, en
þangað hefur Íslandi aldrei tekist að
komast. Þorsteinn segir alltaf hægt
að gefa í og læra nýja hluti.
„Ég er að skoða hvort það sé eitt-
hvað sem við getum tekið inn eða
gert betur,“ segir Þorsteinn brattur
í samtali við Fréttablaðið. „Maður
lærir alltaf eitthvað nýtt.“
Þorsteinn segir samstarf þjálfara
A-landsliða karla og kvenna afar
gott, sem og samstarf starfsfólks
Knattspyrnusambands Íslands
yfir höfuð. Fólk sé opið fyrir því að
hjálpa hvert öðru og sömuleiðis læra
nýja hluti.
„Samstarfið er mjög gott. Menn
vinna saman í þessu og hjálpa hver
öðrum. Við erum saman á skrifstof-
unni allan daginn og samstarfið er
gott á milli allra aðila þar. Ég reyni
að fylgjast með öllum,“ segir Þor-
steinn sem tók við þjálfun kvenna-
landsliðsins á síðasta ári en áður
hafði hann starfað hjá Breiðabliki
með frábærum árangri. Það er hins
vegar allt öðruvísi að þjálfa landslið
en félagslið og reynir Þorsteinn að
afla sér þekkingar.
Þorsteinn tók ákvörðun um að
fara með karlalandsliðinu í verk-
efnið sem nú stendur yfir í Eystra-
saltinu. Hann vonast til þess að
hægt sé að bæta sig í starfi með því
að sjá hvernig staðið er að hlutunum
á öðrum stað.
„Mig langaði að fara með og sjá
hvernig þeir gera þetta. Maður er
alltaf að hugsa nýja hluti og reyna
að sjá hvað væri hægt að gera betur,“
segir Þorsteinn Halldórsson, þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins. n
Vill læra af öllum sem hann
starfar með í Laugardal
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er staddur erlendis með karlaliðinu þessa stundina.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu komst í gærkvöldi í
úrslitaleik Eystrasaltsbikarsins eftir
sigur á Litáen í undanúrslitunum
ytra.
Nokkuð var um góð færi í fyrri
hálf leik. Rúnar Alex Rúnarsson
í marki Íslendinga þurfti að hafa
sig allan við til að verja besta færi
heimamanna þegar leikmaður
þeirra slapp í gegn.
Þá fékk Hákon Arnar Haraldsson
hvað besta færi Íslands þegar hann
skallaði boltann yfir markið.
Það var svo lítið um dýrðir í seinni
hálf leik, sem væri bæði gæðalítill
og bragðdaufur. Það stefndi lengi
í markalaust jafntef li, sem varð
raunin.
Það markverðasta sem gerðist
í seinni hálfleik var þegar Hörður
Björgvin Magnússon fékk að líta
sitt annað gula spjald og þar með
rautt fyrir að kasta boltanum í and-
stæðing.
Það var gripið til vítaspyrnu-
keppni. Þar skoraði íslenska liðið
úr öllum sex spyrnum sínum en
Litháar aðeins úr fimm.
Það verður því Ísland sem mætir
Lettlandi í úrslitaleik á laugardag.
Leikurinn fer fram í Ríga. n
Ísland áfram eftir vítaspyrnukeppni
Arnar Þór Viðarsson er á leið með sína menn í úrslitaleik Eystrasaltsbikarsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
24 Íþróttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR