Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 50
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Örn Sveinbjarnarson múrarameistari og matstæknir, Háulind 18, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 8. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 18. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans leggi Ljósinu lið. Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir Björk Arnardóttir Ingimundur Magnússon Hrönn Arnardóttir Haukur Ísfeld Ragnarsson Magnús Bergmann Jónasson Birgitta Saga Jónasdóttir Örn Vikar Jónasson Harpa Hauksdóttir Júlía Hauksdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona, amma og langamma, Sólveig Sörensen lést föstudaginn 11. nóvember síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 22. nóvember, kl. 15.00. Anna Kristín Jónasdóttir Ásgerður Jónasdóttir Guðmundur Einarsson Erna Björk Jónasdóttir Kristján G. Kristjánsson Sólveig Sigríður Jónasdóttir Kjartan Jónsson Sveinn Jónsson barnabörn og langömmubörn Ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Camilla Sæmundsdóttir Suðurgötu 37, lést föstudaginn 11. nóvember á Hrafnistu Laugarási. Útför fer fram frá Neskirkju mánudaginn 28. nóvember klukkan 13.00. Sigurdís Sigurðardóttir Kristján Þorkelsson Camilla Kristjánsdóttir Helgi Hálfdanarson Hólmfríður Kristjánsdóttir Brynjar Björgvinsson Bryndís Kristjánsdóttir Sigurbergur Árnason Ingibjörg Guðjónsdóttir Hartmann Kárason Sigurður Guðjónsson Þóra Karitas Árnadóttir Arnar Guðjónsson Hildur Rósa Konráðsdóttir og fjölskyldur Ástær móðir, tengdamóðir og amma, Laufey Kristinsdóttir Boðagranda 2a, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 12. nóvember 2022. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 22. nóvember kl. 15. Þorbjörg Magnúsdóttir Ragnar Karlsson Magnús Reynir Rúnarsson Björk Úlfarsdóttir Laufey Svafa Rúnarsdóttir Kjartan Hugi Rúnarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingiríður (Inga) Árnadóttir Sléttuvegi 17, 103 Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 7. nóvember. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju, mánudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Guðríður St. Sigurðardóttir Guðbrandur Sigurðsson Rannveig Pálsdóttir Einar Sigurðsson Antoníus Þ. Svavarsson Inga Rós, Ása Björk, Bragi Þór, Valdís Guðrún, Anna Katrín, Ragna Kristín, Ingi Hrafn, Sigurður Ingi, Valgeir Daði, Birkir Atli og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Rakel Jónasdóttir saumakona og húsmóðir, áður til heimilis að Háaleitisbraut 105, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 8. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Ingólfur Helgi Tryggvason Sigríður Birna Gunnarsdóttir Jónas Tryggvason Natalia Ochkal Tryggvason Hávarður Tryggvason Þórunn María Jónsdóttir Dóra Tryggvadóttir Christian Jönsson Ólöf Rún Tryggvadóttir Jón Garðar Sigurjónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Áttatíu ár eru liðin síðan Stefán og Herdís Lyngdal opnuðu hljóð- færaverslunina Rín. arnartomas@frettabladid.is Verslunin HljóðX Rín fagnar stórafmæli um þessar mundir en áttatíu ár eru liðin síðan hljóðfæraverslunin opnaði fyrst dyr sínar á Njálsgötunni. Ingvar Val- geirsson verslunarstjóri er í sérstöku hátíðarskapi en hann hefur fylgt versl- uninni meira og minna frá árinu 2010. „Ég segi meira og minna því ég fór að vinna annars staðar í ár. Ég hélt það gæti verið gaman að prófa eitthvað annað, en það reyndist vera rangt hjá mér,“ segir hann. „Ég kom skríðandi til baka og mér til mikillar furðu voru þeir guðs lifandi fegnir að fá mig aftur.“ Áttatíu ár er hár aldur fyrir hljóð- færaverslun og telur Ingvar langlífið sé að stórum hluta viðskiptavinunum að þakka. „Það eru hins vegar margir sem hafa verslað við Rín áratugum saman, eða bara kíkt í kaffi, svo það er auðvitað fyrst og fremst kúnnunum að þakka að verslunin er hérna enn þá,“ segir hann en bætir við að starfsfólkið sé ekki síður mikilvægt. „Hér hefur úrvalsfólk unnið í gegnum tíðina. Auðvitað Magnús Eiríks og hans fjölskylda, KK, Þórir Baldurs, Friðrik Karlsson, Siggi Dagbjarts í Upp- lyftingu og núna er Sigurjón Óli, okkar nýjasti maður, að gera góða hluti bæði í afgreiðslu og svo smáviðgerðum á gít- urum og bössum. Stofnuð í styrjöld Hljóðfæraverslunin Rín var stofnuð í nóvember 1942 af hjónunum Stefáni og Herdísi Lyngdal. „Þau opna búðina í miðri heimsstyrj- öld, sem eftir á að hyggja var kannski ekkert sérstaklega gáfulegt en hafðist þó,“ segir Ingvar. „Stefán var á sínum tíma þekktur harmónikuleikari og tók búðin mið af því og seldi mikið af nikk- um. Auk hljóðfæranna seldu þau líka ljós og önnur rafmagnstæki.“ Verslunin var fyrst á Njálsgötu 23 þar sem nú er að finna sjoppuna Drekann. „Glöggir vegfarendur taka kannski eftir því að við Drekann er trappa þar sem ég held að standi enn þá „Rín“ og er jafngömul versluninni,“ bendir Ingvar á. „Rín flutti svo yfir á Frakkastíg 17 þar sem hún var í áratugi. Þangað kom ég fyrst inn í Rín sjálfur, sextán ára gamall alla leið frá Akureyri, og keypti mér Gib- son-gítar.“ Skorpukenndur áhugi Árið 2011 var hljóðfærabúðin svo seld og sameinaðist verslun HljóðX. Með tíð og tíma breyttist verslunin frá því að selja aðallega harmónikkur og píanó yfir í rafmagnsgítara, trommusett og magn- ara. Í dag segir Ingvar að vinsælustu vör- urnar séu rafmagnspíanó og rafmagns- trommusett. „Það var áhugavert í Covidinu hvernig sala á rafmagnspíanóum margfaldaðist. Hún jókst ekki, heldur margfaldaðist,“ ítrekar hann. „Þetta kemur aðeins í skorpum. Eitt árið er vinsælasta varan rafmagnsgítarar, það næsta rafmagns- píanó.“ Það er því aldrei að vita nema nikkan komi sterk inn aftur á næsta ári. Í tilefni af stórafmælinu hefur verslun- in verið að bjóða upp á sérstök afmælis- tilboð auk þess sem slegið verður í partí í búðinni á föstudag á milli 17 og 19.30 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaratriði. „Það eru allir velkomnir og okkur þætti sérstaklega gaman að sjá við- skiptavini okkar koma og fagna með okkur,“ segir Ingvar að lokum. n Rín fagnar áttatíu árum Ingvar keypti sér Gibson-gítar í Rín sextán ára gamall. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það var áhugavert í Covid- inu hvernig sala á raf- magnspíanóum marg- faldaðist. 1390 Skriða féll á Lönguhlíð ytri í Hörgárdal. Hrafn Bó- tólfsson lögmaður, kona hans og fleiri fórust. 1558 Elísabet 1. tók við konungdómi í Englandi og Írlandi eftir hálfsystur sína. Elísabetartímabilið hófst á Englandi. 1603 Sir Walter Raleigh var dreginn fyrir rétt í Winches- terkastala ákærður fyrir þátttöku í Maine-sam- særinu. 1631 Svíar lögðu Frankfurt am Main undir sig. 1869 Súesskurðurinn milli Rauðahafs og Miðjarðarhafs var opnaður. 1912 Íslenska guðspekifélagið var stofnað í Reykjavík. 1913 Morgunblaðið birti fyrstu íslensku fréttamyndirnar, sem voru dúkristur, gerðar vegna morðmáls í Dúk- skoti í Reykjavík. 1938 Vikan kom út í fyrsta sinn, fyrsti ritstjóri hennar var Sigurður Benediktsson. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.