Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 54
Heimurinn stækkaði til muna, óralangt út fyrir íslenskan raun- veruleika.Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is n Listin sem breytti lífi mínu Margrét Bjarna- dóttir dans- höfundur segir lesendum Frétta- blaðsins frá list- inni sem breytti lífi hennar. „Tónlistar- myndbandið við lagið Praise You með Fatboy Slim var ein- hvers konar uppljómun fyrir mig. Árið var 1999 var ég 18 ára og hef sennilega séð myndbandið fyrst á MTV. Ég held að það hafi talað sérstaklega til mín vegna þess að á þessum tíma var ég í ströngu ballettnámi þar sem markmiðið er fullkomnun – að hafa fullkomið vald yfir eigin líkama og hreyf- ingum – og ég hafði búið í þeim heimi í mörg ár. Fagurfræði þessa myndbands hafði hins vegar lítið með fullkomnun að gera. Í myndbandinu sýnir áhuga- dansflokkur dansatriði sitt við lag Fatboy Slim fyrir utan kvikmynda- hús einhvers staðar í Bandaríkj- unum. Dansflokkurinn saman- stendur af fullorðnu fólki en sólódansarinn í hópnum, frekar ræfilslegur maður um þrítugt, heillaði mig sérstaklega. Mér leið eins og ég hefði fundið sálufélaga minn. Ég fékk tilfinningalega útrás við það að horfa á hann dansa. Hann hafði litla sem enga tækni- lega færni en þeim mun meiri ástríðu og frumkraft sem hreif mig. Hreyfingar hans voru ákafar, hættulegar og fyndnar en hann var alltaf tengdur, í mómentinu. Þótt ég kunni að meta tækni- lega færni þá lærði ég þarna að hún er til lítils ef það skortir tengingu, tilfinningu og anda sem er mjög dularfullt dæmi en þessi maður og þetta myndband bjó yfir. Nokkrum árum síðar komst ég að því að þessi litli sálufélagi minn í dansi var sjálfur leikstjóri myndbandsins, Spike Jonze.“ n tsh@frettabladid.is Steinunn Ásmundsdóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem ber heitið Ástarsaga. Bókin fjallar um unga Reykjavíkurs- túlku og franskan frétta- ljósmyndara sem kynn- ast og verða ástfangin í aðdraganda fundar Ronalds Reagan Banda- ríkjaforseta og Mikhaíls Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna, í Höfða haustið 1986. Steinunn segir inn- blásturinn að sögunni hafa komið frá fregn- um um vaxandi stirð- leika á milli Vestur- veldanna og Rússlands og áhuga hennar á kalda stríðinu en hún var sjálf tvítug og búsett í Reykjavík þegar leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjevs átti sér stað. „Borgin fór hliðina, eins og nærri má geta, grámygla daganna vék um stund og þjóðin tjaldaði öllu til sem hún átti best. Sumt af þessu var hryllilega fyndið svona eftir á að hyggja. Ég skemmti mér við að draga það fram í Ástar- sögu. Svo gerðust þarna ýmis ævintýr í öllu havaríinu,“ segir Steinunn. Hún bætir því við að þarna í október 1986 hafi hún og margt fólk af hennar kynslóð fengið gleggri sýn á heimsmálin. „Heimurinn stækkaði til muna, óralangt út fyrir íslenskan raunveru- leika og líf manns sjálfs minnkaði kannski að sama skapi sem því nam, sem af spruttu ýmsar tilvistarspurn- ingar. Þetta umstang allt og bram- bolt hafði því mikil persónuleg áhrif á mig og mína kreðsu. Ástarsaga er byggð á grunni þessa alls og skáld- skapurinn látinn fylla í eyðurnar, eins og vera ber.“ Ástarsaga er gefin út á rafbók og hljóðbók og er aðgengileg á vefsíðu höfundarins Yrkir.is. n Ástarsaga um leiðtogafundinn Glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir stofnuðu Iceland Noir bókmenntahátíðina árið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Heimsþekktir rithöfundar koma fram á Iceland Noir bókmenntahátíðinni í ár. Ragnar Jónasson og Yrsa Sig- urðardóttir skipuleggjendur segjast vilja auðga íslenskt menningarlíf með hátíðinni. tsh@frettabladid.is Bókmenntahátíðin Iceland Noir fer fram í Reykjavík um þessar mundir í sjötta sinn. Hátíðin var stofnuð 2013 af rithöfundunum Ragnari Jónassyni og Yrsu Sigurðardóttur, auk breska rithöfundarins Quentin Bates, og var upphaf lega hugsuð sem vettvangur fyrir glæpa- og spennusögur en í dag er búið að auka á fjölbreytnina og blanda inn ýmsum öðrum bókmennta- greinum. Ragnar : „Við fundum mikinn áhuga hjá rithöfundum erlendis sem við vorum að hitta um að koma til Íslands og við vorum eiginlega bara að búa til vettvang fyrir aðra höfunda til að geta komið og talað um sínar bækur. Upphaflega voru þetta bara glæpasögur en nú erum við að tala um hvers kyns bók- menntir.“ Yrsa: „Hluti af því sem drífur okkur áfram í dag er að auka áhuga á fjölbreyttum bókmenntum.“ Þau Ragnar og Yrsa hafa alltaf lagt ríka áherslu á að bjóða erlend- um rithöfundum á Iceland Noir en fjöldi þekktra höfunda hefur sótt hátíðina heim á borð við Ann Cleaves, Anthony Horowitz og Ian Rankin. Ragnar: „Stemningin hefur verið sú að höfundar og lesendur bland- ast saman í einum stórum graut þannig að þetta verður mjög náið og þægilegt andrúmsloft. Lesendur rekast á sína uppáhaldshöfunda og fá sér kaffi með þeim.“ Skipulagning í sjálfboðavinnu Að sögn Ragnars hefur hátíðin vaxið töluvert á undanförnum árum en von er á um 200 erlendum gestum, sumum alla leið frá Singa- pore, og 50 erlendum höfundum á Iceland Noir þetta árið auk þess sem fjöldi Íslendinga sækir hátíð- ina, bæði gestir og höfundar. Ragnar: „Við erum að gera þetta allt í sjálf boðavinnu og markmiðið með þessu hefur aldrei verið annað en að fá skemmtilega höfunda til Íslands og að koma íslenskum bókmenntum á framfæri. Hingað koma líka blaðamenn, útgefendur og umboðsmenn.“ Yrsa bætir því við að Iceland Noir hafi þegar skapað íslenskum rithöf- undum dýrmæt tækifæri. Yrsa: „Við höfum getað komið íslenskum höfundum sem eru ekki gefnir út erlendis á pallborð þann- ig að útgefendur og umboðsmenn sem eru að leita að höfundum, geta séð þessa höfunda á sviði. Maður fær eiginlega ekkert slíkt pláss á erlendum bókmenntaviðburðum nema að hafa þegar verið þýddur eða þýdd. Að minnsta kosti þrír íslenskir höfundar sem komið hafa fram á hátíðinni hafa fengið samn- ing við stóra erlenda umboðsskrif- stofu í framhaldinu.“ Fjölbreytt sjónarhorn Nokkrir heimsþekktir erlendir höf- undar koma fram á Iceland Noir í ár, Little Britain-stjarnan David Walli- ams tók forskot á sæluna um síðustu helgi og í vikunni koma fram met- söluhöfundurinn Richard Osman og Booker-verðlaunahafinn Bernar- dine Evaristo auk metsöluhöfund- anna Paulu Hawkins og AJ Finn. Þá koma fram fjölmargir íslenskir höf- undar, glæpasagnahöfundar sem og aðrir íslenskir höfundar á borð við Auði Jónsdóttur, Sverri Norland, Elizu Reid, Kamillu Einarsdóttur og Maríu Elísabetu Bragadóttur. Hver er ástæðan fyrir því að þið ákváðuð að víkka út dagskrána og taka inn höfunda sem eru ekki glæpasagnahöfundar? Ragnar: „Við vildum hafa dag- skrána fjölbreyttari og leyfa henni að endurspegla áhugasvið okkar umfram glæpasögur. Við lesum allar mögulegar bækur og það er svolítið erfitt að takmarka sig við eina grein. Þannig að ég held að þetta sé vonandi áhugaverðara fyrir gesti hátíðarinnar auk þess sem þetta gefur okkur tækifæri til að fá inn enn fleiri höfunda.“ Yrsa: „Við eigum okkur þann draum að á næstu hátíðum getum við tekið höfunda og listafólk frá enn fjarlægari ströndum en að þessu sinni. En þetta er náttúrlega hátíð sem hefur ekki nægilegt fjár- hagslegt bolmagn til þess nema til komi styrkir í takt við þann aukna kostnað sem yrði því samfara.“ Dan Brown kemur á næsta ári Rithöfundurinn Sjón átti upphaf- lega að taka þátt í Iceland Noir en sagði sig frá hátíðinni á þeim grund- velli að Katrín Jakobsdóttir forsæt- isráðherra væri gestur hátíðarinnar og vísaði þar til stefnu ríkisstjórn- arinnar í málum flóttafólks. Katrín sagði sig sjálf frá þátttöku í hátíðinni skömmu síðar. „Þetta reyndist okkur mjög sárt,“ segja Yrsa og Ragnar og ítreka að hátíðin sé unnin í sjálf boðavinnu og hafi tekið langan tíma í undir- búningi. Ragnar og Yrsa eru strax byrjuð að leggja drög að næstu hátíð og verða ekki nöfn af síðri endanum þar því Dan Brown, einn frægasti spennusagnahöfundur heims, hefur boðað komu sína auk kanadíska höfundarins Louise Penny, sem skrifaði meðal annars bók með Hill- ary Clinton. Þótt mikil aðsókn sé á Iceland Noir er enn hægt að nálgast miða á hátíðina í ár. Yrsa: „Hátíðarpassarnir seldust upp í sumar en það eru enn til sölu miðar sem veita aðgang að öllum viðburðum í Fríkirkjunni á Tix.is. Draumurinn er auðvitað að hægt sé að hafa ókeypis inn á hátíðina, en þar sem opinberir styrkir eru af skornum skammti þá stendur miða- salan undir meira og minna öllum kostnaðinum við að flytja inn þessa erlendu höfunda.“ n Nánar á frettabladid.is Kaffi með heimsþekktum höfundum Höfundar og lesendur blandast saman í einum stórum graut þannig að þetta verður mjög náið og þægilegt andrúmsloft. Ragnar Jónasson 30 Menning 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.