Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 56
HJARTA
OG
ÆÐAKERFI
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
OMEGA-3 COLLAGEN
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
Í verkinu Geigengeist koma átta dansarar frá Íslenska dansflokknum fram ásamt teknófiðludúóinu Geigen.
MYND/AXEL SIGURÐARSON
DANS
Geigengeist
Borgarleikhúsið
Höfundar: Gígja Jónsdóttir og
Pétur Eggertsson
Flytjendur: Gígja Jónsdóttir, Pétur
Eggertsson og dansarar Íslenska
dansflokksins
Búningar: Tanja Huld Levý og
Alexía Rós Gylfadóttir
Leikmynd og leikmunir: Sean
Patrick O’Brien
Sesselja G. Magnúsdóttir
Geigengeist, fiðluandi eða fiðlu-
heimur, er fyrsta frumsýning
Íslenska dansflokksins þetta sýn-
ingarárið. Verkið fer fram á Litla
sviði Borgarleikhússins en ekki
á sviðinu heldur er áhorfendum
boðið í salinn eins og um dans-
klúbb væri að ræða. Í verkinu halda
teknófiðlu-dúettinn Gígja Jóns-
dóttir og Pétur Eggertsson áfram
að kanna, ögra og leika sér með
fiðluna og möguleikann á að frelsa
hana frá sinni klassísku ímynd, en
verkið þeirra Geigen sem sýnt var
á Reykjavík Dance Festival 2019 sló
fyrst tóninn fyrir fagurfræðina sem
þau vinna áfram með hér.
Í Geigengeist taka átta dansarar
úr Íslenska dansf lokknum þátt,
ásamt Gígju og Pétri. Þeir auðga
fiðluheiminn sem þau hafa skapað
með líkömum sínum og gefa honum
nýtt líf. Saman láta þau fiðlurnar
dansa, dansa við þær og umbreyt-
ast í fiðlur. En þó fiðlurnar séu í
forgrunni bylur teknótaktur undir
öllu saman sem gefur dansinum
og hljóðum fiðlunnar nýja vídd. Í
grunninn var samruni þessara ólíku
tónlistarheima mjög vel gerður en
stundum urðu fínlegir hljómar fiðl-
unnar undir í baráttunni við kraft
teknósins, sérstaklega í fyrri hlut-
anum þegar dansarar með fiðlu-
boga strjúka mjúklega yfir strengi
fiðlanna á ferðum sínum um rýmið.
Þátttaka áhorfenda
Áhorfendur höfðu einnig hlutverki
að gegna í danssköpuninni meðal
annars til að undirstrika klúbba-
stemminguna í salnum. Þar sem
þeir sátu ekki í sætum heldur stóðu,
sköpuðu hreyfingar þeirra í rýminu
f læði sem gaf danssmíðinni auka
vídd. Það að blanda áhorfendum í
danssköpun er ekkert nýtt. Sú leið
hefur oft verið farin með misjöfnum
árangri. Í Geigengeist tókst þetta
vel nema að tilgangurinn var ekki
skýr þegar fjórir einstaklingar voru
færðir út af sviðinu undir hvítum
slæðum. Annars voru áhorfendur
smátt og smátt boðnir velkomnir
í fiðluheiminn og urðu hluti af
sýningunni. Andrúmsloftið var
afslappað og áhorfendur voru til í
að vera með, reyndar svo mjög að í
lokin urðu þeir spældir yfir því að
verkinu lauk og allir skyldu heim.
Þeir voru orðnir tilbúnir í að dansa
alla nóttina.
Dansleikjaform síns tíma
Búningarnir í verkinu voru geggjað-
ir, hvítir og stílhreinir, þar sem par-
rukk, korselett og háir hælar nutu
sín. Þeir báru með sér formfestu bar-
okktímans ekki síður en frelsi rave-
menningarinnar en þessir ólíku
menningarheimar voru grunnur
verksins. Hreyfingar dansaranna
undirstrikuðu líka þessa ólíku
menningarheima. Verkið hófst á
fáguðum dansi í anda dansleikja
barokktímans en endaði í kröftugu
ravepartíi í ónefndum klúbbi og það
var eins og ekkert væri eðlilegra en
að tengja þetta tvennt saman, enda
bæði dansleikjaform síns tíma.
Samspil listgreina, tónlistar, dans
og hönnunar, og þá um leið lista-
manna úr mismunandi greinum er
einn af styrkleikum verksins. Sam-
spil sem þetta er áberandi í íslensk-
um dansheimi nú um stundir og
heppnast nánast undantekningar-
laust vel. Sviðsmyndin sem byggist
ekki síst upp af áhugaverðum leik-
munum og sérlega vel heppnaðri
notkun ljóss og lita er töff eins og til
dæmis fiðlubogar með ljósi á end-
anum sem gátu skrifað á búningana.
Leikur með ljós og leikmuni var
sannfærandi partur af danssköpun-
inni og heildarútkomunni allri. n
NIÐURSTAÐA: Geigengeist
er kröftugt og töff verk. Sterk
heildarupplifun þar sem tónar
sjást, hreyfingar heyrast og ljós,
litir og form örva skynjun áhorf-
andans þannig að hann langar að
leika með.
Fiðla, teknó, barokk og rave
BÆKUR
Kollhnís
Arndís Þórarinsdóttir
Fjöldi síðna: 259
Útgefandi: Mál og menning
Brynhildur Björnsdóttir
Arndís Þórarinsdóttir tók þá
ákvörðun fyrir nokkrum árum
að hætta í dagvinnunni og helga
sig alfarið ritstörfum. Og lesendur
á öllum aldri hafa heldur betur
notið góðs af þeirri ákvörðun.
Galsabækurnar um Nærbuxna-
verksmiðjuna, bókin um míkró-
samfélagið í Blokkinni á heims-
enda, örlagasaga skinnhandritsins
Möðruvallarbókar, ljóðabókin Inn-
ræti, allar þessar bækur hafa komið
út á þessum árum og í kjölfarið
hlotið bæði barnabókaverðlaun
Guðrúnar Helgadóttur og Íslensku
bókmenntaverðlaunin í f lokki
barnabóka auk ýmissa tilnefninga.
Nú er nýkomin út skáldsagan Koll-
hnís sem höfundur segir sjálf að hafi
verið lengi í skrifum. Kollhnís fellur
undir skilgreininguna barnabók
fyrir 6–12 ára í Bókatíðind-
um en passar betur í f lokk-
inn „bækur sem börn geta
líka lesið“, eins og Guðrún
Helgadóttir orðaði það,
bækur sem alls konar fólk
getur haft bæði gaman og
gagn af að lesa.
Sér sig ekki sem
aðalpersónu
Kollhnís dregur nafn
sitt af fimleikaástundun
söguhetjunnar Álfs sem
segir söguna í fyrstu
persónu. Álfur á einn
vin, Ragnar, sem er
„aðalpersóna“ að mati
Álfs sem sér sjálfan
sig ekki þannig. Það
er einna helst að hann sé aðal-
persóna í lífi litla bróður síns, Eika,
sem honum þykir óskaplega vænt
um og þegar foreldrar þeirra fá þá
fáránlegu f lugu í höfuðið að Eiki
sé einhverfur, bara af því að hann
talar ekki eins mikið og jafnaldrar
hans, ákveður Álfur að sanna fyrir
þeim og heiminum öllum að svo sé
ekki. Inn í söguna blandast svo lífið
í fimleikunum og ýmsar áskoranir
þar að lútandi og Harpa frænka Álfs
sem hann tekur upp samskipti við
í laumi en hún var áður besta fim-
leikakona landsins.
Kollhnís er afskaplega vel skrifuð
og skemmtileg bók aflestrar, bæði
fyrir krakka og fullorðna. Álfur er
skemmtileg persóna sem lesendur
fylgjast með þroskast og breytast og
aðrar persónur vel útfærðar, orðfær-
ið skemmtilegt, kaflar mislangir og
halda stundum bara utan um eina
hugsun sem gefur lesendum færi á
að staldra við.
Allt heldur áfram
Sjónarhorn systkina barna sem
verða óhjákvæmilega aðalpersónur
í lífi fjölskyldna vegna veikinda eða
af einhverjum öðrum ástæðum
eru gríðarlega mikilvægt innlegg
í bók menntirnar,
bæði f y r ir
b ör n s e m
eru í svip-
aðr i stöðu
e n e i n n i g
f y r i r f o r -
eldra og aðra
f u l l o r ð n a .
S j ó n a r h o r n
Álfs ræður för í
sögunni og það
er ekki endilega
alltaf áreiðan-
leg t , hann á
erf itt með að
horfast í augu
v ið sannleika
bróður síns og
frænku og smíðar
sína eigin heims-
mynd til að fá hegðun þeirra til að
ganga upp, nokkuð sem líklegt er að
bæði börn og fullorðnir sem þurfa
að takast á við óþægilegan sann-
leika í fari fjölskyldumeðlima geri.
Ferðalag hans í gegnum breyttar
forsendur í fjölskyldunni og í hans
eigin sambandi við fjölskyldumeð-
limi er vel útfært, sársaukinn við að
horfast í augu við raunveruleikann
og styrkurinn sem felst í því að sjá
að allt heldur áfram þrátt fyrir að
allt fari á hvolf um tíma eins og ger-
ist í almennilegum kollhnís. n
NIÐURSTAÐA: Kollhnís er áhrifa-
mikil, vel skrifuð og mikilvæg
bók í íslenska bókmenntaflóru,
skemmtileg aflestrar og vekur
umhugsun.
Flikk flakk heljarstökk
Kollhnís er afskaplega
vel skrifuð og
skemmtileg bók
aflestrar, bæði fyrir
krakka og fullorðna.
Brynhildur Björnsdóttir
Geigengeist er kröftugt
og töff verk.
tsh@frettabladid.is
Listamaðurinn Jón Sæmundur
Auðarson opnar sýninguna Litandi,
litandi, litandi á föstudag í Listasal
Mosfellsbæjar. Opnunin fer fram frá
kl. 16-18 og mun Teitur Magnússon
spila lög af nýjustu plötu sinni.
Jón Sæmundur er kröftugur lista-
maður sem er bæði þekktur í heimi
myndlistar og tónlistar. Viðfangs-
efni verka hans á sýningunni eru
andar en tengsl lífs, dauða og þess
sem bíður handan dauðans hafa
verið Jóni hugleikin um langt skeið.
Fyrir tólf árum byrjaði Jón
Sæmundur að mála anda á striga í
upphafi hverra tónleika með hljóm-
sveit sinni Dead Skeletons. Þetta
gerði hann til að undirbúa sig and-
lega og komast yfir sviðsskrekk.
Jón Sæmundur er enn að mála, ekki
bara fyrir tónleika, heldur hvenær
sem andinn kemur yfir hann.
„Andaherinn á þessari sýningu
virðist njóta stundar milli stríða
og það er létt yfir þeim. Litríkir,
leikandi og allt að því sposkir á svip
bera þeir skapara sínum vitni. Þeir
bjóða okkur að taka lífinu ekki of
alvarlega,“ segir Jón um verkin.
Listasalur Mosfellsbæjar er opinn
kl. 9-18 virka daga og 12-16 laugar-
daga. Aðgangur er ókeypis. n
Jón Sæmundur sýnir í Mosfellsbæ
MYND/JÓN SÆMUNDUR
32 Menning 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ