Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 64

Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 64
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur n Bakþankar „Viltu hætta þessu helv... tuði!“ er setning sem maðurinn minn hefur sagt við mig og ég við hann. Tuð er nefnilega alveg gjörsam- lega óþolandi. Og það virkar ekki. Alveg sama hvað maður telur sér trú um. Það eina sem það gerir er að gera alla brjálaða í kringum mann. Tuð er einhver undarleg leið sem maður fer stundum til að fá útrás fyrir pirring, stjórnsemi, aðfinnslur og jafnvel vonbrigði eða hræðslu. Manni finnst eins og þetta hljóti að virka. Allir hljóti bara að skilja betur og taka til sín hlutina enn betur ef maður tuðar leynt og ljóst yfir því sem maður er óánægður með. Og oftar en ekki er smá fórnar- lambs-undirtónn í tuðinu. Hvað er betra að gera? Jú, það er mikið betra að segja frá því sem er að angra mann í sam- skiptum við aðra, þegar maður er í góðu jafnvægi og ekki í fúlu skapi. Ræða málin í ró og spekt. Útskýra. Þetta getur verið erfitt, sérstak- lega þegar manni finnst enginn fara eftir því sem maður er að segja. Eins og til dæmis í uppeldi unglinga eða samskiptum við makann. En að byrja að tuða mun ekki virka betur. Ekkert drepur niður stemninguna betur eða hraðar en gott tuð. Ef þetta virkar ekki, verður maður að taka ákvörðun um að miðla málum eitthvað eða sætta sig við að fólk í kringum mann er ekki eins og maður sjálfur. Jafnvel líta í eigin barm, horfa í spegilinn. Kannski kemst maður að því að maður sjálfur er ekki heldur fullkominn eftir allt saman. n Tuð Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Opið allan sólarhringinn Í Nettó Mjódd og Granda VINNA UM JÓLIN Með SjálfsVörn hjá Nova setur þú saman þitt ker, alveg eins og þú vilt. Ekkert stofn- gjald Upp- setning innifalin SjálfsVörn hjá Nova Áhyggjulaus heima um jólin!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.