Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 64
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Ebbu Guðnýju
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
„Viltu hætta þessu helv... tuði!“
er setning sem maðurinn minn
hefur sagt við mig og ég við hann.
Tuð er nefnilega alveg gjörsam-
lega óþolandi. Og það virkar ekki.
Alveg sama hvað maður telur sér
trú um.
Það eina sem það gerir er að
gera alla brjálaða í kringum
mann.
Tuð er einhver undarleg leið
sem maður fer stundum til að fá
útrás fyrir pirring, stjórnsemi,
aðfinnslur og jafnvel vonbrigði
eða hræðslu.
Manni finnst eins og þetta
hljóti að virka. Allir hljóti bara að
skilja betur og taka til sín hlutina
enn betur ef maður tuðar leynt
og ljóst yfir því sem maður er
óánægður með.
Og oftar en ekki er smá fórnar-
lambs-undirtónn í tuðinu.
Hvað er betra að gera? Jú, það
er mikið betra að segja frá því
sem er að angra mann í sam-
skiptum við aðra, þegar maður
er í góðu jafnvægi og ekki í fúlu
skapi. Ræða málin í ró og spekt.
Útskýra.
Þetta getur verið erfitt, sérstak-
lega þegar manni finnst enginn
fara eftir því sem maður er að
segja.
Eins og til dæmis í uppeldi
unglinga eða samskiptum við
makann.
En að byrja að tuða mun ekki
virka betur. Ekkert drepur niður
stemninguna betur eða hraðar en
gott tuð.
Ef þetta virkar ekki, verður
maður að taka ákvörðun um að
miðla málum eitthvað eða sætta
sig við að fólk í kringum mann er
ekki eins og maður sjálfur.
Jafnvel líta í eigin barm, horfa í
spegilinn.
Kannski kemst maður að því
að maður sjálfur er ekki heldur
fullkominn eftir allt saman. n
Tuð
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Allt fyrir
veisluna
Skreytingar
Borðbúnaður
Búningar
Tækjaleiga
Opið allan
sólarhringinn
Í Nettó Mjódd
og Granda
VINNA
UM JÓLIN
Með SjálfsVörn hjá Nova setur þú saman
þitt ker, alveg eins og þú vilt.
Ekkert
stofn-
gjald
Upp-
setning
innifalin
SjálfsVörn hjá Nova
Áhyggjulaus
heima um jólin!