Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 57

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 57
sunnan Glaumbæ ber í áðurnefnda vörðu uppi í heiði, er ])á beygt og haldið eftir þeim merkjum inn i vör. Lending þessi er nothæf neyðarlending fyrir kunnuga. b. HVALSNES Lendingin er norður af Stafnesi. Stefna suðaustur. Leiðarmerki eru: Varða sem stendur niður á sjávarkampi, skal bera í vörðu sem stendur uppi í túni. Vörður þessar eru 4 m. á hæð, millibil 120 m. Upp úr báðum þessum vörðum er krosstré (sundmerki). Eftir þessum merkjum skal halda, þar til merki á svokölluðum Ærhólma ber í heiðarmerkið fyrir ofan Stafnes (sbr. a.), þá er haldið á vörðu sem stendur á Gerðakotskampi, og svo beygt í opna vör. Lending ])essi er betri með lágum sjó. • c. BAUSTHÚS (Sandós) Leiðarmerki er varða, sem stendur niður við sjó, upp úr henni tré. Varða þessi á að bera um suðurhlið Nesjahússins, og halda þá stefnu þar til Moshús bera i sund- merkið (sbr. b.), sem stendur í Hvalsnestúni. Lendingin er betri með háum sjó, en er ekki nothæf sem neyðarlending, sízt fyrir ókunnuga. d. NESJAR (Mársbúðasund) Leiðarmerkin eru: Steyptur stöpull á skeri fyrir utan Múrshúðir á að bera í grjót- vörðu, sem er neðst á Nesjafit, og halda þá stefnu, þar til Moshús ber í sundmerki í Hvalsnestúni, þá skal halda eftir þeim merkjum þangað til varðan á Melabergs- kampi ber í Grisakot, sem er austan við Melaberg. Lendingin er aðeins nothæf fyrir kunnuga. e. MIÐKOT Leiðarmerki eru: Steyptur stöpull, sem stendur á skeri fyrir neðan Mársbúðir, á að bera í vörðu á Nesjafit, og er haldið eftir þeim merkjum þar til að Moshús ber í sundmerkið í Hvalsnestúni, og skal þá halda þá stefnu, en heldur þó til djúps, meðan örugg merki vanta til leiðbeiningar inn i vörina. Lending þessi er ónothæf fyrir ókunnuga nema í góðu. f. SANDGERÐI (Hamarssund) Vikin (legan) er svo grunn, að stórir vélbátar fljóta ekki um fjöru nema á litlum ])letti. Botninn er víðast hvar grjót og klappir. Stefna sundsins er SA. Leiðarmerkin eru: Varða uppi í heiði ber um Sandgerðisvitann (viti nr. 4) og skal halda þá stefnu, þangað til tré sem stendur á svokölluðum Kirkjnkletti ber í vesturgafl hússins á Bæjarskerjum, og er þá þegar komið inn á vík. Þegar Hamarssund er ófært, er auk vitaljóssins sýnt stöðugt, rautt ljós fyrir neðan vitapall. 3. GERÐAHREPPUR a. LAMBASTAÐIR Lendingin er fyrir neðan bæinn, stefna leiðarinnar er suður. í vörinni er sándur, grjót og klappir. Leiðarmerki eru tvö tré, sem eiga að bera saman. Neðra tréð er 20 m. frá sjó, 5 m. á hæð, efra tréð er 10 m. á hæð. millibil er 150 m. Lendingin er góð með lágum sjó, en slæm um flóð ef illt er veður. Með lágum sjó er hún nothæf sem neyðarlending. Skammt fyrir neðan fjöruborð er klapparnef, og er þar beygt af stefnu merkjanna, og ræður sjónhending leið upp í vörina, og er lendingin því varhugaverð fyrir ókunnuga. b. AKURHÚS (Lónið) Vörin er skammt fyrir neðan bæinn. í vörinni er sandur, möl og grjót. Á sundinu er enginn boði né blindsker. Lendingin er betri með lágum sjó, talin í meðallagi góð, en ekki nothæf sem neyðarlending. Leiðarmerki er 2 tré 8 m. hó, neðra tréð stendur 20 m. frá sjó, en fjarlægð milli merkja er 00 m. Þessi 2 tré eiga að bera saman, og er

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.