Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 60

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 60
58 merki eru engin, aðeins farið eftir stefnu bryggjunnar, sem alltaf er upp úr að ein- hverju leyti. Lenda má bæði að sunnan og norðanverðu við bryggjuna. h. YTRI-NJARÐVÍK (Bryggja) Ytri-Njarðvikurbryggja er niður undan syðstu húsunum við sjóinn. Leiðarmerki eru engin, og' er eingöngu farið eftir stefnu bryggjunnar, sem alltaf er upp úr að ein- hverju leyti. Lenda skal að sunnanverðu við bryggjuna. i. YTRI-NJARÐVÍK (Vörin) Vörin er ca. 15 m. fyrir sunnan bryggjuna. Efst í vörinni er möl og sléttar klappir, en að framan er grjót og sandur. Leiðarmerki eru engin. Lendingin er talin góð, en varasöm i austan- og suðaustan stórviðri. j. INNRI-NJARÐVÍK (Tjarnarkot) Tjarnarkotsvör er niður undan bænum Tjarnarkot. Þar er steinbryggja, sem alltaf er upp úr að einhverju leyti. Fjöruborð er svo mikið, að bátar fljóta tæplega að um fjöru, eða fyrr en hálffallið er að, en þá er gott úr því. k. INNRI-NJARÐVÍK (Bryggja) í Innri-Njarðvik er steinbryggja niður undan baefium. Leiðarmerki eru engin. Að sunnanverðu við bryggjuna er möl, en að norðanverðu eru sléttar klappir. Við bryggjuendann að sunnanverðu er sker sem ekki flýtur yfir með lágum sjó, og er þá bezt að stefna á bryggjuendann og beygja svo fast upp með bryggjunni. 5. VATNSLEYSUSTRANDARHREPPUR a. VOGAR Leiðarmerki inn á Vogavik eru: Keilir um Bræðrapart, sem er syðsti bærinn í Vogiinum, sé dimmt eru 2 rauð ljós sem eiga að bera saman í sömu stefnu. (Viti nr. 9). Af þessari leið er beygt upp í eftirtaldar lendingar. Fyrst upp i lendingarnar í Bræðraparli og Snðurkoti og er þá sömu stefnu haldið, alla leið upp i sand, þar næst upp i lendinguna í Hábæ, þar cr lent við bryggju. Upp í lendinguna í Stóru- vognm er beygt af áðurnefndri leið, þegar komið er inn fyrir svonefndan Stóru- vogatanga, þá er beygt til norðurs með tanganum að sunnanverðu og upp í vör. í öllum þessum lendingum er sandur, og landlaka ágæt. Útgerð hefir alltaf verið þarna á opnum bátum, og vélbátum í seinni tíð. Vogavík er góð höfn, nema í norð- vestan stórviðri, enda koma fiskiskip oft þangað inn, og liggja þar í vondum veðrum. b. MINNI-VOGAR Lendingin er í norðvestur frá íbúðarhúsinu Minni-Vogar. Leiðarmerki eru: Arahólsvarða á að vera aðeins laus við austurgaflinn á íbúðarhúsinu Minni-Vogar. Fjarlægð frá sjó li. u. b. 100 m., milli merkja 60 m. í lendingunni er grjót og klappir, það cr talin góð lending, en betri um flóð. c. HALAKOT Hatakot er syðsti bærinn í Brunnaslaðahverfinii. Lendingin er i norðvestur frá bænum. Leiðarmerkin inn Brnnnastaðasund eru: Tvær vörður, sem eiga að bera saman, þær standa i túninu fyrir austan bæinn Halakot. Vörðurnar eru 2 m. á hæð, millibil 50 m. í lendingunni er grjót og klappir. Það er talin góð lending nema í suðvestanátt. Brunnastaðasund er notað frá flestum bæjum í Brunnastaðahverfinu. d. NEÐRI BRUNNASTAÐIR Djúpleiðin er Brunnastaðasund, lendingin er í austur frá sundinu, og er beygt af því inn með svonefndu Hjallanesi, upp i vör. I lendingunni er möl og grjót. Það er talin góð lending.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.