Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 63

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 63
á grunnið á sumrin. Beint niður frá bænum var önnur lending, sem ekki hefir verið notuð í mörg ár, enda miklu lakari lending en hin. f. BAKKI Lendingar eru tvær á fíakka, önnur er h. u. b. 50 m. fyrir vestan hæinn. Stefna frá N til S. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er möl. Að vestanverðu við vörina er klöpp, en að austanverðu er hlaðinn kampur, úr honum er dálitið hrunið. Lend- ingin er talin góð og nothæf sem neyðarlending, en er lítið notuð síðan útgerð á opnum bátum hætti. Hin lendingin er fyrir austan bæinn, stefna S-N. Leiðarmerki eru engin, en stefnan upp í vörina er á miðjan kálgarðsvegginn. Kampar eru háðum megin vararinnar. í lendingunni er möl. Lending þessi er ágæt, en er nú lítið notuð síðan róðrar á opnum hátum lögðust niður. g. TJARNARSUND VIÐ SELTJÖRN Þar er lent í malarkömbunum fyrir norðan Knopsborgarbakka í NV frá Nes- slofn. Leiðarmerki eru: Staur, sem stóð á Knopsborgarbakkanum, er hera skyldi í staurinn á Valhúsinu. Stefnan er h. u. b. frá V til A. Bezt er að lenda þarna um flóð, þvi út af sundinu eru grynningar, áður en komið er inn í Tjörnina. Meðan útgerð á opnum bátum var í blóma, Jentu menn þar oft í landsynningi og austanátt. í vestanátt er brimasamt, og er þá betra að lenda í Vatnavík (sbr. 1.). h. GRÓTTA Lendingin er að suðaustanverðu á eynni Gróttu, fyrir neðan sjávarhús, sem stendur þar á sjávarbakkanum. Þegar lent er þar sunnan á eynni eins og áður er getið um, er farið svokallað „TjarnarsuncT (sbr. g.). í lendingunni er möl; hún er bezt um flóð, en ekki nothæf sem neyðarlending. Áður fyrr var lending að norðan- verðu á eynni, en nú er sú lending ekki nothæf vegna stórgrýtis. i. STOFUSUNI) Stofusund er leiðin fyrir báta, sem koma vestan fyrir nesið að norðanverðu. Leiðarmerki eru: Staur, sem stendur á bakkanum rétt austan við húsið í Bygggarði, á að bera i staurinn á Valhúsinu. j. RÁÐAGERÐI Lendingin er fyrir vestan bæinn, austan til við hliðið á sjávargarðinum, og kampar hlaðnir báðum megin. Stefna hennar er frá NA til SV. Leiðarmerki eru engin. í vörinni eru klappir. Að austanverðu við vörina beint út af austurkampinum er smásker, sem ekki sést um flóð. Lending þessi er talin fremur góð, og er nú að- eins notuð af mönnum, sem stunda hrognkelsaveiði og skjótast út í þarann. k. BYGGGARÐUR Lendingin er rétt vestan við bæinn, hún liggur frá norðri til suðurs, í stefnu á íbúðarhúsið í Ráöagerði. í lendingunni er klöpp og grjót. Lendingin er talin góð; áður fyrr gengu þaðan mörg skip, en nú er hún alls ekki notuð. 1. NÝIBÆR (Vatnavík) Lendingin í Nýjabæ (Vatnavík) er fyrir norðan bæinn. Leiðarmerki eru Nes- stofa austan við fiskskúra sem standa á sjávarkampi fyrir ofan lendinguna. Þegar komið er inn á móts við ,,Snasa“, er haldið í opna vör. ,,Snasi“ sést með hálf- föllnum sjó. í lendingunni er möl og móhella. Lending þessi er talin ágæt, og er eina þrautalendingin að norðanverðu á Nesinu. Siðan útgerð á opnum bátum lagðist niður, er lending þessi aðeins notuð af mönnum, sem stunda hrognkelsaveiði. m. BOLLAGARÐAR Lendingin er rétt austan til við íbúðarhúsið, norðan við varnargarðinn. Stefna

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.