Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 65
f. GUFUNES
Á Gufunesi er vanalega lent við malareyri, sem er niður undan bænum. Bezt
að lenda um flóð. Milli Viðeyjar og Gufuness er talsvert varasöm leið, sker er i
miðju sundi, og grynningar og flúðir frá því og alla leið í land á Gufunesi.
g. KELDUR
Lendingin frá Keldum er innarlega við Grafarvog. Ekki hægt að lendá nema
um flóð, um fjöru er vogurinn þurr.
h. GRAFARHOLT
Lendingin frá Grafarholli er innst í Grafarvogi, og líka við Síldarmannalanga
utarlega við voginn að sunnanverðu. Um fjöru er lendingin þurr.
10. Kjalarneshreppur.
11. Kjósarhreppur.
12. HYALFJARÐARSTRANDARHREPPUR
a. FERSTIKLA
Þar er lent við sand að austanverðu við svokallaða Snekkju. Lendingin er góð.
h. KALASTAÐAKOT
Kalastaðakotslending er við Kalmansárós. Um flóð er hægt að lenda við klappir,
en uin fjöru er sandur. Lending er góð.
c. HRAFNEYRI
A Hrafneyri er löggilt höfn. Lending þar ágæt.
13. Skilamannahreppur.
14. Innri-Akraneshreppur.
15. Ytri-Akraneshreppur.
16. Leirár- og Melahreppur.
17. Álftaneshreppur.
18. Hraunshreppur.
19. STAÐARSVEIT
a. KROSSAR
Vörin er vestantil við Krossabæinn, þar er lent við svokallaða Fiskhellu. Leið-
armerki eru: Grjótvarða, sem stendur á sjávarbakkanum, 2 m. á hæð, á að bera í
íbúðarhúsið á Krossum, sem stendur 60 m. ofar. Eftir þessum merkjum er haldið inn
á móts við Hylsker, þá er beygt til vesturs, og haldið á tvær vörður, sem þá bera
saman, og alla leið inn í vör. Vörður þessar, sem eru hvor um sig tæpir 2 m. á hæð,
standa í svipaðri fjarlægð frá sjó og hin leiðarmerkin. Á djúpleiðinni eru engir hoðar
né grynningar, en á grunnleiðinni eru smáklappir, sem flýtur yfir undir eins og
hækkar í sjó. Lendingin er talin ágæt, engu síður um fjöru en flóð, og er almennt
talin líflending.