Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 66

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 66
b. FÚLAVÍK Lendingin er viö klöpj) austanvert viö Kirkjuhólsbæinn. Leiðarmerki eru: Grjót- varða á sjávarbakkanum 3 m. á hæð, upp úr henni stendur tré, 1 m. á hæð. Varða þessi á að bera í vörðu sem stendur uppi í holti 2 m. á hæð. Neðri varðan stendur 20 m. frá sjó, en milli merkja er 800 m. Leiðarstefnan er norðaustur, þráðbein framan úr djúpi, og alla leið inn á miðja vik, þar er beygt lítið eitt til austurs fyrir blind- skcr, og svo aftur tekin sama lína beint í land. c. TRAÐIR Lendingin er vestan til við Traðabæinn. í lendingunni er möl og klappir. I.eið- armerki eru tvær vörður; neðri varðan stendur á sjávarbakkanum, en hin uppi i túni; fjarlægðin á milli þeirra er 80 m. Vörður þessar eiga að bera saman, og er þeirri stefnu haldið inn á móts við skerjatanga, svokallað Tangarhöfuð, og er þá beygt lítið eitt til vesturs, og stefnt á tvær vörður, sem þá eiga að bera saman, og þeirri stefnu haldið alla leið í land. Á sjálfri leiðinni eru engin sker eða grynningar, en báðum megin við hana eru boðar og sker. Lending þessi er talin slæm, bezt með hálfföllnuin sjó. d. HOFGARÐAR (Akur). Lendingin er suðvestan við eyðibýlið Aknr, hér um bii beint niður undan Hof- görðnm. Leiðarmerki: Grjótvarða á sjávarbakka, 2 m. á hæð, stendur fram á klett- um vestan við mjóa gjá. Varða þessi á að bera i aðra vörðu, sem stendur nokkuð ofar, millibil 33 m. Eftir þessum merkjum skal halda, þar til að tvær vörður, sem eru að vestanverðu við víkina, bera saman, er xá beygt beint i vestur, og stefnt beint á vörðurnar, þar til beygt er upp í lendinguna. Boðar eða grynningar eru ekki á sjálfri leiðinni, en báðum meginn við hana. Að vestanverðu er rif (Þangsker) sem fer i kaf um flóð. Lendingin er talin miður góð. Um stórstraumsfjöru flýtur ekki að, bezt með hálfföllnum sjó. e. BÚÐIR Á Búðum eru þrjár lendingar: 1. Frambúðir í suðvestur frá Ilúðnm. Þar er lent í smávík sunnan við klett sem er í miðri vikinni, þar er sandur og klappir. Leiðin er hrein hvernig sem stendur á sjó. Lending þessi verður aldrei ófær og er talin bezta smábátalending að sunnan- verðu við Snæfellsnes. 2. Lendingin heitir i Sandvík og er í suður frá Biiðum. Þar er lent að norðan- verðu við sker. Leiðin inn í vikina er óhrein, farið á milli tveggja boða, ófært um flóð ef illt er í sjó, en góð um fjöru. 3. Lendingin er fíúðaós. Leiðin liggur inn miðjan ós, og er lent þar við hlaðn- ar grjótbryggjur. Með lágum sjó (4 klst.) fljóta bátar eklti inn Ósinn. Leiðarmerki eru engin, hvorki á aðalleiðinni, eða upp i lendingarnar, þegar komið er af sjó, er haldið í norðaustur, grunnt inn með hrauninu, og svo beygt út af leiðinni upp í lendingarnar. Fyrst upp i lendinguna á Frambúðum þar næst upp í Sandvíkina og síðast inn í Ós. 20. BREIÐUVÍKURHREPPUR a. I.ÁTUR Stefna lendingarinnar er austur; hún er í Grímsstaðalandi, sem nú er eyðijörð. Lendingin er talin dágóð um flóð og þangað til hálffallið er út. Þá kemur upp grjót- hryggur, sem ekki flýtur yfir fyrr en hálffallið er að. Leiðarmerki eru eng'in. b. ARNAIíSTAPI Lendingin er fáa metra frá túninu, snýr í austur. Þar er grjót og möl. Leiðar- merki eru engin, lendingin er góð, og er útsjór talinn ófær, ef ekki er hægt að lenda þar. Enda hefir lendingin oft verið notuð sem neyðarlending.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.