Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 71

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 71
eru tveir litaðir steinar,- uppi á bakkanum, á milli þeirra eru 14 m. Lendingin er talin miður góð og brimasöm í vestanátt. f. LOKINHAMRAR Lendingarstaðurinn er svonefndir ,,Pallar“. Aðallendingin er í miðpalli. Þar er lent við slórgrýtis malarkamp. Fyrir framan lendinguna er stór steinn, sem getur verið hættulegur fyrir ókunnuga, með lágum sjó. Leiðarmerki eru engin. 42. Þingeyrarhreppur. 43. Mýrahreppur. 44. Mosvallahreppur. 45. FLATEYRARHREPPUR a. GARÐUR Garðar er skammt fyrir innan Flateijri. Þar er ágæt lending, smámöl og sandur. b. FLATEYRI Lending er ágæt alstaðar innan við eyrina, þar er möl og sandur. c. KÁLFEYRI Lendingin á Kálfeyri er skammt fyrir utan Flateyri, þar er stórgrýti og illt að lenda um fjöru. Bezt með hálfföllnum sjó. 46. SUÐUREYRARHREPPUR a. STÖÐTN Lendingin er í utanverðum „Spillir". Hún er þröngur vogur, með skerjum til beggja handa. Sandur og möl er í lendingunni. Leiðarmerkin cru tóftarbrot á liakk- anum fyrir ofan veginn, sem á að bera í svonefnt Magnúsarhorn vestarlega í Sund- dal. Lendingin er talin allgóð, bezt með hálfföllnum sjó. b. SUDUREYRI Leiðarmerkin eru þrjú holdufl (baujur), sem eru á sundinu innan við höfnina á Súgandafirði, upp úr þeim er hvitmáluð stöng og kústur á endanum. Merkin eiga öll að vera til vinstri handar þegar inn er siglt. (Sbr. sjómerki nr. 43, llólmi). 47. HÓLSHREPPUR a. SKÁLAVÍK Lemlingin er austan við ána. Leiðarmerki eru engin, en kofar eru uppi á bakk- anum fyrir ofan vörina, og er lent beint niður undan þeim. Báðum megin við vörina er stórgrýti. b. BOLUNGAVÍK Lendingar eru ruddar varir; eru þær i röð og kampar á milli hlaðnir úr stór- grýti. í vörunum er sandur og möl. Lendingarnar eru beztar um flóð. Mótorbátar fljóta ekki vel u]ip i brimbrjótsvörina um fjöru. Hún liggur þétt upp með brim- brjótnum, og er bezta lendingin, enda mest notuð. c. ÓSVÖR Ósvör er innanvert við sandinn i Bohuigavík, að austanverðu við ósinn. Stór

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.