Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 72
steinn er að austan viS vararmynnið, sem stendur upp úr um fjöru, rétt við landið,
og er farið upp í vörina að vestanverðu við steininn. Lendingarmerki eru engin.
48. EYRARHREPPUR
a. SELJADALUR
Seljadalur er skammt fyrir utan Hnífsdal. Leiðarmerki eru engin og landtaka
er slæm.
b. HNÍFSDALUR
Hnífsdalur er utanvert við Skntulsfjörð. Víkin er grunn, og þar sem lending-
arnar eru, er stórgrýtt og oft vont að lenda. Leiðarmerki eru engin, bezt að lenda
með hálfföllnum sjó.
c. ARNARDALUR
Lendingin er að austanverðu i Skutulsfjarðarmynni, upp undan henni er Arn-
arnesvitinn (viti nr. 37). Leiðarmerki eru engin, lendingin er stórgrýtt, og er talin
ófær í vondum veðrum.
d. HAFNIR
Lendingin er að austanverðu i Arnarnesi í Álftafjarðarmynni. Leiðarmerki eru
engin, sæmilega góð lending nema i norðaustanstormi.
49. SÚÐAVÍKURHREPPUR
a. SÚÐAVÍK
Lendingin er innan til við víkina í stefnu frá NV—SA; þar er möl og grjót.
Leiðarmerki eru engin, en lending talin góð, betri um flóð.
b. LANGEYRI
Stefna lendingar er frá A:—V, 15 mín. gangur innan við Súðavík. Leiðarmerki
eru engin, en lending er góð, möl og grjót.
c. FOLAFÓTUR
Stefna lendingarinnar er frá NV—SA. í lendingunni er möl og grjót. Hún er
betri um flóð, en er talin miður góð.
d. TJALDTANGI
í lendingunni (A—V) er grjót og klappir, og fyrir framan hana eru bæði boðar
og blindsker, enda er lendingin talin slæm. Leiðarmerki eru engin.
50. Ögurhreppur.
51. Reykjarfjarðarhreppur.
52. Nauteyrarhreppur.
53. Snæfjallahreppur.
54. Grunnavíkurhreppur.
55. SLÉTTUHREPPUR
a. HESTEYRI
Bezta lendingin er um 200 m., fyrir innan loftskeytastöðina. í lendingunni er
sandur og möl. Alltaf er hægt að lenda, en bezt þegar hásjávað er.