Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 75
73
c. HVALNES
Lendingin er austast í króknum í svokallaðri Hvalvik, sem er austur og niður
frá bænum Hvalnes. Leiðarmerki eru: VarSa á rindanum austan viS Hválsneslæk-
inn, skal bera yfir skemmu á Hvalnesi, hóllinn er vestan viS skemmuna, sem stend-
ur kippkorn fyrir vestan bæjarhúsin. Stefna þessara merkja er SV, og skal halda
þá stefnu, þar til komið er inn fyrir Fláttuhaus, þá er beygt í suður, og upp í lend-
ingu, og farið sem næst Flátluhaiisnum. TaliS er að talca skuli sundið þegar Lág-
múlabærinn ber norðan við Borgarhausinn, sem er klettarimi, norðan og vestan
við víkina. Lending þessi er betri um fjöru, annars er lnin talin slæm.
d. SELVÍK
Lendingin er suður og niður frá bænum Selnes, stefna hennar er N. Leiðar-
merkin eru: Gamli bærinn á Selá, ber yfir fossinn i Selánni, eða Selárgilið mitt.
GiliS er rétt við sjóinn, en bærinn ca. 800 m. fjær. Stefna þessara merkja er NV.
Eftir þessum merkjum er farið, þar til Grettistakið, sem er stór steinn á klettasnös
á bakkanum fyrir austan lendinguna, ber í torfbúð með merki á, sem stendur á
bakkanum fyrir ofan lendinguna, þá er haldið eftir þeim merkjum upp að lend-
ingunni. Stefna ]>eirra merkja er norður. AS norðanverðu við leiðina er boði, en
grynningar að vestan, sem brýtur á í miklu brimi. Landtaka er betri um fjöru.
Lending þessi er oft notuð sem neySarlending.
e. FOSSVÍK
Lendingin er í svonefndri Innri-Fossvík niðurundan bænum Foss, spölkorn
fyrir innan Fossárósinn. Stefna er SV. LeiSarmerki er Fossstapi, sem er klettadrang-
ur út í sjónum, og á hann að bera í gil, sem liggur ofan við víkina að austanverðu.
Stefna merkjanna er SV. Leiðina skal taka, þegar íbúðarhúsið á Hóli ber yfir vörðu
sem er á sjávarbakka norðan við Hólsbás. Boðar eru báðum megin leiðarinnar, og
tvö blindsker vestanvert á leiðinni. Landtaka er betri um fjöru. Lendingin er talin
slæm.
f. SÆVARLANDSVÍK
Lendingin er norðvestan undir Tindastól. Lent er austur í króknum, þar sem
bjargið beygir út með víkinni, að austanverðu. Stefna lendingarinnar frá sjó er suð-
ur. Talið er að leiðin byrji þegar Skefilsstaðabærinn ber í gilbarm við sjóinn fyrir
utan Bakkaá, og er stefnt í NV. Þessari stefnu er haldið, þar til að Sigguhóllinn, sem
er grashóll með vörðu á, fyrir vestan Laxá ca. 300 m. frá sjó, her í svonefndar Hrís-
götur, sem liggja suðvestur upp hálsinn frá bænum Þorbjarnarstaðir ca. 900 m. frá
sjó. Þessari stefnu er haldið, þar til Hrangeg er komin í mitt Stapasund, þá er breytt
um stefnu, og stefnt á eystra gilið, sem er ofan við lendinguna. Boðar eru báðum
megin leiðarinnar, en engin blindsker. Lendingin er betri um fjöru, talin miður góð.
67. SKARÐSHREPPUR
a. REYKIR
Leiðarmerki eru engin, en stefna lendingarinnar er VSV, og skal halda henni
þar til komið er á móts við stóran stein, sem er rétt norðan við lendinguna. Þá er
beygt í veslur, og farið aðeins árafrítt sunnan við áðurnefndan stein, og er þá komið
upp í rudda vör. Á leiðinni eru engir boðar eða blindsker. Lendingin er bezt með
hálfföllnum sjó, en er talin miður góð.
b. INGVELDARSTAÐIR
Leiðirnar eru þrjár. Fyrst er grunnleið, leiðarmerki á henni eru: Ketubjörg í
Reykjadiskslág. Sést aðeins í björtu veðri, er farandi i góðu um háflóð. Leiðarmerk-
in á miðsundsleiðinni er foss í Búðavík á að bera vestast í Daðastaðabæ, og skal
halda þá stefnu, þar til Hólmiiui ber í miðjan Þórðarlwfðu, þá beint i vestur að
10