Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 78

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 78
b. KLJÁSTRÖND Lendingin er á móti vestri framundan íbuSar- og fiskhúsunum. Fyrir miðri ströndinni er staurabryggja, og geta vélbátar allt að 10 smál. lagst við hana, nema um stórstraumsfjöru. Um 900 m. fyrir norðan lendingarstaSinn, gengur fram kletta- jief, laust framan við l)að er drangur, kallaður Skógarmaður. Þegar sést á milli Skógarmanns og lands, er maður laus við grynningarnar sem ná um 100 m. út frá landi, og gera vélbátum ófært að komast að bryggjunni um stórstraumsfjöru. Grynn- ingar þessar eru framhald af Laufásgrynningiinni, og ná norður á móts við nyrsta húsið á Kljáströnd. c. HÖFDI Höfðastekkur (lendingin) er í suður frá bænum Höfða, og liggur móti suðri. Var áður notað sem útgerðarstöð, en hefir lagzt niður vegna vaxandi grynninga (Laiifásgrunn). Þó er hún enn notuð sem neyðarlending fyrir vélbáta frá Grenivík og Kljáströnd. d. GRENIVÍK Grenivik liggur móti norðvestri. Bezt er lendingin við Akurlæk, nyrst og aust- ast í víkinni. í lendingunni er sandur og möl. e. FINNASTAÐIR Það er næsta lending fyrir norðan Grenivík, liggur móti vestri niður undan bænum Finnastöðum. Það er talin hezta lending að austanverðu við Eyjafjörð norð- an Grenivík, þar er líka góð bátalega. f. SVÍNÁRNES Lendingin er þröngur vogur inn á milli kletta, aðeins fyrir einn vélbát í góðu. Vogurinn liggur á móti vestri, og er beint niður undan bænum. g. GRÍMSNES Lendingin er niður undan sjóbúðum sem standa á bakkanum, út og niður und- an bænum. Þar er lent á milli kletta. 1 lendingunni er möl og sandur, hún er talin slæm. h. LÁTUR Lendingin er beint niður undan bænum, þar er mjög brimasamt og skerjótt. Skammt fyrir norðan bæinn er talin betri lending, enda hafa vélbátar gengið þaðan á sumrin. Fjaran er stórgrýtt. i. ÞORGEIRSFJÖRDUR Fjörðurinn liggur móti norðri. Lendingarstaðir eru undan bænum Botni og Þönglabakka. Leiðarmerki eru: Fjárhús niður á bakkanum rétt fyrir norðan bæinn Þönglabakki eiga að bera í bæjarhúsin austast. Þorgeirsfjörður hefir oft verið not- aður sem neyðarlending og höfn, enda gott þegar inn er komið. 83. FLATEYJARHREPPUR a. BRETTINGSSTAÐIR Lendingin (Kausteyri) er framundan fjárhúsum, sem standa á malarkampi á Nausteyri. Leiðarmerki eru þau, að bærinn Jökulsá á að vera vel laus undan Vík- urhöfða að sunnan. í lendingunni er möl og sandur, enginn boði né blindsker eru þar; betra er að lenda með lágum sjó. b. FLATEY Lendingin er á svonefndu Flategjareiði, sunnan á eyjunni. Framundan lend- ingunni er rif, sem ekki flýtur yfir um fjöru ef brim er. f lendingunni er sandur; hún er eina neyðarlendingin á eyjunni.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.