Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 78
b. KLJÁSTRÖND
Lendingin er á móti vestri framundan íbuSar- og fiskhúsunum. Fyrir miðri
ströndinni er staurabryggja, og geta vélbátar allt að 10 smál. lagst við hana, nema
um stórstraumsfjöru. Um 900 m. fyrir norðan lendingarstaSinn, gengur fram kletta-
jief, laust framan við l)að er drangur, kallaður Skógarmaður. Þegar sést á milli
Skógarmanns og lands, er maður laus við grynningarnar sem ná um 100 m. út frá
landi, og gera vélbátum ófært að komast að bryggjunni um stórstraumsfjöru. Grynn-
ingar þessar eru framhald af Laufásgrynningiinni, og ná norður á móts við nyrsta
húsið á Kljáströnd.
c. HÖFDI
Höfðastekkur (lendingin) er í suður frá bænum Höfða, og liggur móti suðri.
Var áður notað sem útgerðarstöð, en hefir lagzt niður vegna vaxandi grynninga
(Laiifásgrunn). Þó er hún enn notuð sem neyðarlending fyrir vélbáta frá Grenivík
og Kljáströnd.
d. GRENIVÍK
Grenivik liggur móti norðvestri. Bezt er lendingin við Akurlæk, nyrst og aust-
ast í víkinni. í lendingunni er sandur og möl.
e. FINNASTAÐIR
Það er næsta lending fyrir norðan Grenivík, liggur móti vestri niður undan
bænum Finnastöðum. Það er talin hezta lending að austanverðu við Eyjafjörð norð-
an Grenivík, þar er líka góð bátalega.
f. SVÍNÁRNES
Lendingin er þröngur vogur inn á milli kletta, aðeins fyrir einn vélbát í góðu.
Vogurinn liggur á móti vestri, og er beint niður undan bænum.
g. GRÍMSNES
Lendingin er niður undan sjóbúðum sem standa á bakkanum, út og niður und-
an bænum. Þar er lent á milli kletta. 1 lendingunni er möl og sandur, hún er
talin slæm.
h. LÁTUR
Lendingin er beint niður undan bænum, þar er mjög brimasamt og skerjótt.
Skammt fyrir norðan bæinn er talin betri lending, enda hafa vélbátar gengið þaðan
á sumrin. Fjaran er stórgrýtt.
i. ÞORGEIRSFJÖRDUR
Fjörðurinn liggur móti norðri. Lendingarstaðir eru undan bænum Botni og
Þönglabakka. Leiðarmerki eru: Fjárhús niður á bakkanum rétt fyrir norðan bæinn
Þönglabakki eiga að bera í bæjarhúsin austast. Þorgeirsfjörður hefir oft verið not-
aður sem neyðarlending og höfn, enda gott þegar inn er komið.
83. FLATEYJARHREPPUR
a. BRETTINGSSTAÐIR
Lendingin (Kausteyri) er framundan fjárhúsum, sem standa á malarkampi á
Nausteyri. Leiðarmerki eru þau, að bærinn Jökulsá á að vera vel laus undan Vík-
urhöfða að sunnan. í lendingunni er möl og sandur, enginn boði né blindsker eru
þar; betra er að lenda með lágum sjó.
b. FLATEY
Lendingin er á svonefndu Flategjareiði, sunnan á eyjunni. Framundan lend-
ingunni er rif, sem ekki flýtur yfir um fjöru ef brim er. f lendingunni er sandur;
hún er eina neyðarlendingin á eyjunni.