Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 82
m. BRETÐAVÍK (Steinsfjörulending)
Lendingin er norðan við Breiðuvík, utan við klettahlein, sem er stutt utan við
krókinn, þar sem víkin beygist til austurs. Leiðarmerki eru engin. Lendingin er í
norður. Malarbotn. Lendingin er brein, en talin miður góð, bezt um hálffallinn sjó.
n. LITLAVÍK (Kambsvíkurlending)
Lendingin er sunnan í Breiðuvík, í fyrsta bás sunnan við Litlavíknrbæinn. '
Leiðarmerki eru engin. Lendingin er í suðvestur. Malarbotn, nokknð stórgrýtt. í
mynni bássins er sker. Lendingin er talin miður góð.
o. HÚSAVÍK
Lendingin er sunnanvert við klöpp, sem liggur fram i sjó fyrir miðri Húsavík,
undir horninu á Húsavikurkambi, sem er beint upp af klöppinni. Lendingin er í
norðaustur. Malarbotn og klappir. Leiðarmerki eru engin, en farið er eftir dæld,
sem er sunnan við Húsavíkurkamb og á að bera i Dallandspart, sem er miðbærinn
i víkinni. Einn boði er í lendingunni nærri fjörunni. Lendingin er talin góð, bezt
um hálffallinn sjó.
93. LOÐMUNDARFJARÐARHREPPUR
a. NESHJÁLEIGA
Lendingin er í suðvestur frá bænum Neshjáleigu, h. u. b. 400 m. fyrir vestan
lækjarósinn. Lækurinn rennur að vestanverðu niður með túninu, þar er lent í litl-
um vog. Lendingin er talin góð nema í sunnanbrimi.
b. SELJAMÝRI
Lendingin er vestan í tanganum, sem er suður frá bænum Seljamýri, 20 m.
fyrir vestan skúrinn, sem stendur þar. Leiðarmerki eru engin. Klappir, boðar og
blindsker eru báðum megin leiðar og lendingar. Lending þessi er talin bezta lend-
ingin í firðinum, og oft lent þar, þegar ekki er hægt að lenda annarsstaðar.
94. Seyðisfjörður.
95. MJÓAFJÖRÐUR
a. GRUND (Dalatangi)
Lendingin er i vik sunnan í Dalatanga; víkin liggur í norðaustur. Einnig má
lenda að norðanverðu I tanganum, en ókunnugir ættu síður að gera það. Leiðar-
merki eru engin, en þegar haldið er inn á Grundarhöfn, á að sjást vel á gamla vita-
húsið, og halda þeirri stefnu nákvæmlega, þangað til að komið er að klappartanga,
sem gengur fram að vestanverðu við víkina, þá er haldið þvert að landi, eins nærri
áðurnefndum tanga og fært er. Fremst við Dalatanga er sker, sem er aðeins laust
frá landi; frá því liggur óslitin boðaröð í suðvestur, á að gizka 1000 m. á lengd.
Innan við þessa boðaröð liggur áðurnefnd leið. Lending þessi er talin allgóð, en
verður oft ófær vegna brims.
b. ELDLEYSA
Lendingin er ca. 90 m. fyrir vestan Eldleysubæinn, stefna hennar er suðvestur.
Leiðarmerki eru engin, en ldöpp er á stjórnborða, þegar inn er farið. Betra að
lenda um flóð. Lendingin er talin allgóð.
c. HOF
Lendingin er beint niður frá Hofsbænum, hún liggur á móti suðri. Leiðarmerki