Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 83

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 83
81 eru engin. Klöpp er á stjórnborða þegar inn er farið. Lendingin er betri um flóð; hún er þröng, og ekki talin góð lending. d. HAGI Lendingin er beint niður frá bænum Haga. Sker og klöpp er að austan, en flúðir að vestan. Leiðarmerki eru engin. Um stórstraumsfjöru er leiðin fremur grunn ef nokkuð er illt i sjó. Lendingin er betri með háum sjó, en er talin fremur slæm. e. BREKKA Þar er lent í möl, á ca. 1 km. löngu svæði fyrir neðan Brekkuþorpið. Lending er þar ágæt, og verður aldrei ófær. f. HESTEYRI (Slétta) Lendingin er beint niður frá bænum Sléttu. í lendingunni er möl. Á leiðinni eru engir boðar, blindsker eða grynningar. Lending þessi er góð og verður aldrei ófær. g. HESTEYItl (Mýri) Lendingin er beint niður af bænum Mýri; stefna hennar er norður. Leiðar- merki eru engin, enda ekki þörf á þeim; þar eru engin sker og nóg aðdýpi. Lend- ingin er talin góð. h. KOLABLEIKSEYRI Lendingin er á sanmefndri eyri; stefna suður. Leiðarmerki eru engin. Þar eru engir boðar né grynningar. Lendingin er talin góð. i. REYKIR Lendingin er ca. 1 km. fyrir austan bæinn Reyki á svonefndri Selhellu; stefna hennar er suðvestur. Leiðarmerki eru engin. Ivlöpp er á bakborða þegar inn er farið. Leiðin er fremur grunn og getur orðið ófær vegna brims. j. KROSS Lendingin er beint niður frá bænum Krossi; stefna hennar er suðvestur. Leið- armerki eru engin, en aðeins skal gæta þess, að hafa klöppina á stjórnborða þegar inn er farið. í leiðinni eru engir boðar né blindsker. Betra er að lenda uin flóð. Lending þessi er notuð sem neyðarlending í vestanátt. 96. Norðfjarðarhreppur. 97. Neshreppur. 98. HELGUSTAÐAHREPPUR a. VAÐLAHÖFN Það á aðeins að sjásl í bæinn ímustaði framundan Lónahrauni; stefna er NV, og á að halda henni, þar til komið er inn á móts við tanga þann, er húsin standa á; þá er breytt um stefnu og' haldið í NA fast með tanganum og upp í lendinguna. Lending þessi er talin fremur góð. b. KIRKJUBÓLSHÖFN Stefna skal á bæinn Kirkjnból, og á hann að vera fast við hraun það, sem bann hverfur undir. Stefna er NV. Þegar komið er á móts við þar sem fiskhúsin standa, er breytt um stefnu og stefnt í N beint í sundið milli skers og klappar, og farið sem næst skerinu, stefna NV, og haldið beint í skarð, sem er á milli kletta, þar til komið er miðja vega frá sundi til lands; þá er breytt um stefnu og haldið í SSV út undir klöpp þá, sem farið er ineð upp i vörina. 11

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.