Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Qupperneq 88
Einarshafnarbúð, og er þá haldið sjónhending inn á skipaleguna. í lendingunni er
möl og klappir. Beggja megin leiðar eru boðar og blindsker. Lending þessi er árlega
notuð við sjóróðra, en er ekki álitin nothæf sem neyðarlending.
c. EYRARBAKKI (Bússa)
Bússa. Leiðarstefnan er ANA. Leiðarmerki eru: Grjótvarða, sem stendur 15 m.
frá sjó, 4.5 m. á hæð, og tré 12 m. á hæð með þríh. spjaldi á toppnum; fjarlægð
milli merka er 40 m. Þegar sundið er tekið eiga þessi merki að bera saman, og
]>eirri stefnu haldið alla leið, þar til 2 tré, sem standa austar i þorpinu, bera saman;
þau eru bæði með þríh. spjaldi á toppnum; er þá heygt og haldið eftir þeim merkj-
um austur skipaleiðina. Leið þessa fara öll stærri skip inn á leguna á Eyrarbakka
og er hún árlega notuð við sjóróðra. í lendingunni er möl og klappir: hún er betri
með háum sjó, en ekki talin nothæf sem neyðarlending. (Sbr. vita nr. 106—108 og
sjómerki nr. 112).
116. ÖLFUSHREPPUR
a. ÞORLÁKSHÖFN
Lendingarstaðir eru suðurvör og norðurvör. Suðurvör er sunnanvert við bæinn,
en norðurvör er að norðanverðu við hæinn Þorlákshöfn. Við suðurvörina eru eng-
in leiðarmerki. Leiðarmerki við norðurvörina eru tvö tré„ neðra tréð stendur uppi
á kampinum 30 m. frá sjó, en hitt tréð er 20 m. ofar. Tré þessi eiga að bera saman
þegar róið er i vörina. í lendingunni er möl og klappir. Utanvert við suðurvörina
er slétt klöpp, sem ekki flýtur yfir um stórstraumsfjöru, en utanverð við norður-
vörina eru 2 sker, sem farið er á milli inn í lendinguna. Báðar lendingarnar eru
slæmar um fjöru, ef brim er mikið. Suðurvör er betri um smástraumsfjöru og hálf-
föllnum sjó, en ófær um flóð í miklu brimi. Norðurvör, sem er talin öruggari lend-
ing, er betri með háum sjó. Þorlákshöfn hefir oft verið notuð sem neyðarlending.
117. SELVOGSHREPPUR
a. SELVOGUR (Nesvör)
Lendingin er í suður frá bænum Nes. Leiðarmerki eru tvö tré. Efst á þeim er
toppmynduð fjöl. Annað tréð, sem er 6 m. á hæð, stendur niður á sjávarkampi,
skammt fyrir austan bæinn Nes. En hitt tréð, sem er 8 m. á hæð, stendur austast í
tóftunum í Austurnesi; millibil er 160 m. Ekki má fara nær brimgarðinum en það,
að þessi tré beri saman, og skal halda þá stefnu með honum nákvæmlega, en aldrei
nær en það, að Strandarkirkja beri framan við klappir þær, sem eru í suður frá
Bjarnastöðum, þar til komið er inn á Nesós. Þá eiga tvö tré að hera saman. Neðra
tréð, sem er 8 m. á hæð, stendur austast á hlaðinu í Nesi. Efra tréð, sem er 6 m. á
hæð, stendur austan við íbúðarhúsið i Nesi; millibil er 68 m., og á að halda þá stefnu
inn á lón. í lendingunni er möl og grjót. Um fjöru er lendingin allgóð, en slæm
um flóð.
h. SELVOGUR (Bjarnastaðir)
Lendingin er fyrir neðan sjóbúð og fiskbyrgi sem standa uppi á sjávarkampi í
suðaustur frá Bjarnastöðnm. Djúpleiðarmerki eru þau sömu og i Nesi, þar til komið
er inn fyrir Nesós, þá eiga tvö tré, sem standa á klöppunum sem eru í suður frá
Bjarnarstöðum, að hera saman, þau eru 3 in. á hæð, millibil 16 m. Þá stefnu á að halda
inn á bátalcgu og upp í vör. í lendingunni er grjót og sandur. Lending þessi er
talin góð.
c. ÞORKELSGERÐI
Lendingin er í suðaustur frá bænum. Leiðarmerki eru varða sem stendur á
sjávarkampi, heint fyrir framan bæinn Stóragata, varðan er 2 m. á hæð og tré uppúr
henni. Önnur varða 2 m. á hæð, sem stendur á hól, og á að bera í austasta hnúk-
inn á Selvogsheiði, millibil milli varðanna er 1320 m. Þessar vörður eiga að bera