Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 88

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 88
Einarshafnarbúð, og er þá haldið sjónhending inn á skipaleguna. í lendingunni er möl og klappir. Beggja megin leiðar eru boðar og blindsker. Lending þessi er árlega notuð við sjóróðra, en er ekki álitin nothæf sem neyðarlending. c. EYRARBAKKI (Bússa) Bússa. Leiðarstefnan er ANA. Leiðarmerki eru: Grjótvarða, sem stendur 15 m. frá sjó, 4.5 m. á hæð, og tré 12 m. á hæð með þríh. spjaldi á toppnum; fjarlægð milli merka er 40 m. Þegar sundið er tekið eiga þessi merki að bera saman, og ]>eirri stefnu haldið alla leið, þar til 2 tré, sem standa austar i þorpinu, bera saman; þau eru bæði með þríh. spjaldi á toppnum; er þá heygt og haldið eftir þeim merkj- um austur skipaleiðina. Leið þessa fara öll stærri skip inn á leguna á Eyrarbakka og er hún árlega notuð við sjóróðra. í lendingunni er möl og klappir: hún er betri með háum sjó, en ekki talin nothæf sem neyðarlending. (Sbr. vita nr. 106—108 og sjómerki nr. 112). 116. ÖLFUSHREPPUR a. ÞORLÁKSHÖFN Lendingarstaðir eru suðurvör og norðurvör. Suðurvör er sunnanvert við bæinn, en norðurvör er að norðanverðu við hæinn Þorlákshöfn. Við suðurvörina eru eng- in leiðarmerki. Leiðarmerki við norðurvörina eru tvö tré„ neðra tréð stendur uppi á kampinum 30 m. frá sjó, en hitt tréð er 20 m. ofar. Tré þessi eiga að bera saman þegar róið er i vörina. í lendingunni er möl og klappir. Utanvert við suðurvörina er slétt klöpp, sem ekki flýtur yfir um stórstraumsfjöru, en utanverð við norður- vörina eru 2 sker, sem farið er á milli inn í lendinguna. Báðar lendingarnar eru slæmar um fjöru, ef brim er mikið. Suðurvör er betri um smástraumsfjöru og hálf- föllnum sjó, en ófær um flóð í miklu brimi. Norðurvör, sem er talin öruggari lend- ing, er betri með háum sjó. Þorlákshöfn hefir oft verið notuð sem neyðarlending. 117. SELVOGSHREPPUR a. SELVOGUR (Nesvör) Lendingin er í suður frá bænum Nes. Leiðarmerki eru tvö tré. Efst á þeim er toppmynduð fjöl. Annað tréð, sem er 6 m. á hæð, stendur niður á sjávarkampi, skammt fyrir austan bæinn Nes. En hitt tréð, sem er 8 m. á hæð, stendur austast í tóftunum í Austurnesi; millibil er 160 m. Ekki má fara nær brimgarðinum en það, að þessi tré beri saman, og skal halda þá stefnu með honum nákvæmlega, en aldrei nær en það, að Strandarkirkja beri framan við klappir þær, sem eru í suður frá Bjarnastöðum, þar til komið er inn á Nesós. Þá eiga tvö tré að hera saman. Neðra tréð, sem er 8 m. á hæð, stendur austast á hlaðinu í Nesi. Efra tréð, sem er 6 m. á hæð, stendur austan við íbúðarhúsið i Nesi; millibil er 68 m., og á að halda þá stefnu inn á lón. í lendingunni er möl og grjót. Um fjöru er lendingin allgóð, en slæm um flóð. h. SELVOGUR (Bjarnastaðir) Lendingin er fyrir neðan sjóbúð og fiskbyrgi sem standa uppi á sjávarkampi í suðaustur frá Bjarnastöðnm. Djúpleiðarmerki eru þau sömu og i Nesi, þar til komið er inn fyrir Nesós, þá eiga tvö tré, sem standa á klöppunum sem eru í suður frá Bjarnarstöðum, að hera saman, þau eru 3 in. á hæð, millibil 16 m. Þá stefnu á að halda inn á bátalcgu og upp í vör. í lendingunni er grjót og sandur. Lending þessi er talin góð. c. ÞORKELSGERÐI Lendingin er í suðaustur frá bænum. Leiðarmerki eru varða sem stendur á sjávarkampi, heint fyrir framan bæinn Stóragata, varðan er 2 m. á hæð og tré uppúr henni. Önnur varða 2 m. á hæð, sem stendur á hól, og á að bera í austasta hnúk- inn á Selvogsheiði, millibil milli varðanna er 1320 m. Þessar vörður eiga að bera

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.