Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Qupperneq 89
87
saman og halda þá stefnu, þangað lil tré, sem stendur á sjávarkampi, austan til við
Þorkelsgerði, ber í vörðu, sem er 3 m. á hæð, og stendur á hól þar fyrir ofan, milli-
bil er 400 m. Þegar þessi síðarnefndu merki bera saman, skal halda þá stefnu inn
að Goltanganefi, og svo vestur inn á milli tveggja skerja, og beint inn í Þorkelsstaða-
lendingu. Áður en lagt er á sundið, skal gæta þess að liggja ekki nær hrimgarðinum
en það, að vitinn (Selvogsvitinn, nr. 109) beri framan við iill sker á Bjarnastaða-
hólma. í vörinni er þangvaxið grjót. Lendingin er talinn góð. Hún hefir ekki vcrið
notuð nokkur síðastliðin ár.
d. HERDÍSARVÍK
Lendingin er vestantil við salthús sem stendur á sjávarkampinum. Leiðarmerki
eru tré (hleri festur á toppinn), sem er 4 m. á hæð, á sjávarkampi austan við salt-
húsið og grjótvarða; upp úr henni er tré 3 m. á hæð, millibil 250 m. Þessi merki eiga
að hera saman þegar lagt er á sundið, og hæði merkin að hera í svokallaðan Sand-
hamar, sem er austast i fjallinu fyrir vestan Mosaskarð. Eftir þessum merkjum á
að halda alla leið inn á móts við klappir þær, sem eru að austanverðu við vörina, og
svo sjónhending vestur með klöppunum, og upp í vör. Áður en lagt er á sundið,
skal gæta þess, að fara ekki nær en það, að grjótvarða sem stendur fyrir ofan, ber
í vestra hornið á Geitalilíð. Varða ])essi er 3 m. á hæð og sést vel. í vörinni er grjót
og sandur. Lendingin er talin góð, og hefir oft verið notuð sem neyðarlending, bæði
úr Selvogi og Þorlákshöfn.
118. GRINDAVÍKURHREPPUR
a. SELATANGAR
Lendingin er í suðaustur 3—4 km. frá Isólfsskála, og liggur móti suðvestri.
Leiðarmerki eru: Drangnr (Dangon) sem nú er fallinn, hann átti að hera í hæstu
silinguna á Núpshlíðarhálsi. t lendingunni er sandur, en klappatangar háðum megin.
Lendingin er talin tæplega nothæf sem neyðarlending, hún hefir ekki verið notuð
s.l. 50—60 ár.
h. ÍSÓLFSSKÁLI (Gvendarvör)
Lendingin er í suður frá íbúðarhúsinu, ])að er vík á milli skerja, og lón þegar
inn er komið. Þar eru engin sérstök leiðarmerki. 1 vörinni er sandur og grjót, og
klappir báðum megin. Hún er ekki nothæf sem neyðarlending. Lendingin er nú
lögð niður sakir erfiðra aðdrátta; hún hefir ekki verið notuð síðastliðin 20 ár.
c. HRAUNSVÖR (Suðurvör)
Suðurvör er í SA frá íbúðarhúsinu Hraun og er bás eða vík inn í klappirnar,
meðfram svokölluðum Vatnstanga að vestanverðu. Vörin á milli klappanna er rúm-
lega skipsbreidd. Leiðarmerki inn Hraunssund eru: Varða í túngarðinum, norðan
við íbúðarhúsið, á að bera í stall framan í Þorbirni, eftir þessum merkjum er haldið,
þar til komið er inn undir vörina, þá á varðan að losna vel við vesturendann á Þor-
birni. Varðan er 2 m. á hæð og upp úr henni er tré, hún stendur 200- -300 m. frá
sjó, en frá henni og upp að Þorbirni eru um 3 km. í lendingunni er grjót og klappir,
hún er bezt um fjöru, en er annars talin slæm, og er notuð aðeins seinnipart ver-
tíðar og á sumrin, og alls ekki nothæf sem neyðarlending. Norðanvert við Suður-
vör er stundum með háum sjó í útsynningi lent í svokallaðri Norðurvör eða Bót,
sem eru tvö vik inn í klappirnar fyrir norðan Suðarvör.
d. ÞORKÖTLUSTADIR (Buðlunguvör)
Lendingin er i suður frá Þorkötlustöðum. Leiðarmerki eru: Túnvarðan í tré-
merkið, sem aftur á að hera í tvær vörður uppi í heiði. Eftir þessum fjórum merkj-
um i einni línu er farið alla leið upp undir vör, ])á er farið í ýmsum krókum, sem
aðeins er fært vel kunnugum. í lendingunni er grjót og klappir, hún er betri með
lágum sjó, en er annars talin slæm lending.