Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Síða 64
e. EFRI BRUNNASTAÐIR
Djúpleiðin er Drimnastaðasund. Þegar komið er inn úr sundinu, er haldið i
austur beint upp i lendinguna, sem liggur næst við lendinguna á Neðri-Brunna-
stöðiun. í vörinni er möl og sandur, hún er talin ágæt, og oft notuð sem neyðar-
lending, eins og flestar lendingar í Brunnastaðahverfinn.
f. HLÖÐVERSNES
Lendingin er í norður frá bænum Illöðversnes, skammt fyrir sunnan Gerðis-
langavitann. Leiðarverkin inn Hlöðversnessund eru: 2 vörður, hæð 2% m. Neðri
varðan stendur á sjávarbakkanum, en efri varðan er fyrir austan Hlöðversneshverfið,
inillilnl er 200 m. Vörður þessar eiga að bera saman, og er jieirri stefnu haldið inn
á móts við opna vör, er liá beygt til suðurs, inn i vörina. í vörinni er möl, sandur
og sléttar klappir. Lending þessi er talin góð, og stunduin verið notuð sem neyðar-
lending.
g. HALLDÓRSSTAÐIR
Lendingin er í norður frá bænum Halldórsstaðir. Djúpleiðin er Hlöðversnes-
sund, og er beygt af suudinu upp í opna vörina. í vörinni er sandur og möl, og
sléttar klappir, það er talin góð lending, en bezt með hálfföllmim sjó.
h. AUDNAR (Bergskot)
Lendingin er í norður frá íbúðarhúsinu Auðnar. Leiðarmerki eru 2 grjótvörður,
upp úr þeim er tré (sundmerki), hvor þeirra er 12 m. á hæð. Neðri varðan stendur
(500 m. frá sjó, millibil milli merkja 150 m. Vörður þessar eiga að bera saman alla
leið upp undir vör. f vörinni er möl og klappir. Lending þessi er talin ágæt og oft
verið notuð sem neyðarlending.
i. LANDAKOT
Lendingin er fyrir neðan íbúðarhúsið Landakot. Leiðarmerki eru 2 vörður,
upp iir þeim er sundtré, hæð 12 m. Neðri varðan stendur norðarlega á Landakots-
tiíni (i in. frá sjó, efri varðan cr uppi í heiði, fjarlægð milli merkja er 800 m. Inn
sundið eiga vörður þessar að bera saman, og eru ]>ær þá í beinni stefnu á Kcilir.
Stefnu þessari er haldið upp undir lendingu, er þá beygt til hægri handar og stefnt
austan til við salthús það, er stendur fyrir ofan lendinguna, upp í vör. En varast
þarf fliið þá sem er fyrir miðri vör, og er betra, einkum í norðanátt, að fara að austan-
verðu við hana. í vörinni er sandur, möl og klappir. Hún er talin góð, en hezt með
hálfföllnum sjó.
j. ÞÓRUSTAÐIR
Lendingin er í norður frá bænum Þórustaðir. Leiðarmerki eru þau sömu og i
Landakoti, farið sama sund, og beygt til vinstri handar upp í vörina. í lendingunni
er sandur og klappir, hún er talin hetri með háum sjó.
k. FLEKKUVÍK
Flekkuvík er skammt fyrir utan Minni-Vatnsleysn. Lendingin er spölkorn austur
frá bænum, stefna hennar er V. Leiðarmerkin eru 3 vörður, og er hver þeirra 2 m.
á liæð. Neðsta varðan stcndur á sjávarkampi, önnur er fyrir ofan túngarð, en sú
þriðja uppi í heiði 1000 m. frá sjó, inilli merkja eru 500 m. Vörður þessar ciga
allar að bera saman í sömu stefnu þegar sundið er tckið, og er þeirri stefnu haldið
upp undir vör. í lendingunni er möl og klappir; það er talin góð lending, en hetri
með hálfföllnum sjó.
G. Garðahreppur.