Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Qupperneq 65
7. HESSASTAÐAHREPPUR
a. BESSASTAÐIR (Seylan)
Á Álftanesi eru margar lendingar, en flestar þeirra eru fremur slæmar, helzt
vegna þess, að þeim hefir svo lítið verið haldið við, síðan iitgerð á opnum bátum
lagðist niður, og leiðarmerki fallið niður. Þess vegna verður hér aðeins lýst leiðinni
inn á Seyluna við líessastafíi, enda er það aðal þrautalendingin á Álftanesi. Það
er talið að leiðin byrji Grótta um Sufíiirnesvörfíu á Seltjarnarnesi, og Vífilfell um
Klapparhjalla, sem er hólmi eða sker, fram undan Skildinganesi, er þá haldið á
Vífilfell, þangað til Esjuhálsinn ytri ber um Nesstofu innan til, sem nú er notuð
sem leiðarmerki siðan bærinn Geslhús var rifinn, þá er beygt til suðurs, og haldið
þeirri stefnu þar til Yalahnúka her um liessastaði, þá er stefnt á Vífilfell og inn á
Seylu. Næst fyrir sunnan þessa leið, er svokallað Valahnúkasund, það er líka talin
örugg leið í hvaða veðri sem er. Sundið er tekið þegar innri Esjuhálsinn er vestan-
til við Gróttu, og Valahnúkar um Ilessastafíi, og þeirri stefnu haldið þar til að Esjn-
hálsinn ber innan til við Nesstofu, þá er beygt og haldið á Vifilfell og inn á Seylu.
Þar er lent í möl, og lending ágæt.
8. SELTJARNARNESHREPPUR
a. KÖPAVOGUR
Lendingin i Kópavogi er fyrir neðan túnið, þar er sandur og möl þar sem lent
er. Útfiri er svo mikið, að ekki er hægt að lenda þar nema um flóð. Lendingin cr að-
eins notuð af mönnum sem stunda hrognkelsaveiði.
b. SKILDINGANES
Leiðarmerki eru þar engin. Út af lendingunni eru flúðir, sem brýtur á í vestan-
og norðvestan átt. Lendingin er góð með háum sjó, en um fjöru er helzt ekki hægt
að Ienda í sjálfri vörinni. 1 lendingunni er sandur. Þar er steinbryggja, sem liggur
út í vörina. Nú er lendingin aðeins notuð af mönnum, sem stunda hrognkelsaveiði.
Skildinganesland er lagt undir Reykjavik. Þar er hafskipabryggja, sem h.f. Shell
hefir byggt.
c. LAMBASTAÐIR
Lendingin er í vestur frá íbúðarhúsinu. Leiðarmerki eru engin, leiðin er krókótt,
og lendingin er talin fremur slæm, en bezt að lenda um flóð. Það er talið betra að
lenda austast í Lambastaðalandi upp í malarkampinum, þar sem afrennslið úr Lamba-
staðamýri fer í gegnum grandann. Nú notar enginn Lambastaðavör, enda hefir henni
ekki verið haldið við í seinni tíð.
d. MELSHÚS
Þar er lent við steinbryggju sem er beint fram af fiskverkunarstöð h.f. Kveld-
úlfs. Allstórir vélbátar fljóta að bryggjunni, en að vestanverðu við hana má lenda á
opnum bátum upp í fjöru nema um flóð. Bezt er að lenda við bryggjuna með háum
sjó. Hún er aðeins notuð fyrir vélbáta, sem flytja að og frá stöðinni. Skammt fyrir
austan bryggjuna er vör, sem nú er lögð niður.
e. HRÓLFSKÁLI
Lendingin er í SV frá bæjarhúsunum, stefna hennar er frá SA—NV. Leiðar-
nierki eru: Staurinn á Valhúsinu á að bera i vestasta bæjarhúsið, og er þeirri stefnu
haldið, þar til að beygt er til NV upp i vör. í vörinni er klöpp. Bezt er að lenda
þegar sjór er hálffallinn út, eða þegar klettaraninn, sem er að vestanverðu við vör-
ina, er kominn upp úr sjó. Lending þessi var oft notuð sem neyðarlending áður
fyrr, meðan útgerð á opnum bátum var stunduð þaðan, en seiii nú er lög'ð niður.
Nú er lendingin aðeins notuð af mönnum sem stunda hrognkelsaveiði eða róa út