Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Síða 85
83
smásker, sem aðeins stendur upp úr um stórstraumsfjöru. Leiðin er aðeins laus við
]>etta sker, því þar fyrir norðan tekur við skerjaklasi milli lendinganna Bakkafjöru
og Skipafjöru. Lendingin er talin miður góð, bæði um fióð og um fjöru.
f. BAIvKAGERÐISÞOKP (Bakkagerðisfjara)
Lendingin er fjara sú, er tekur við sunnan við klettahieinar þær, er ganga fram
í sjó frá verzlunarhúsi Kaupfélags Borgarfjarðar. Lendingin liggur í suðvestur.
Malar- og sandbotn. Leiðarmerki eru engin. Lendingin slæm bæði um flóð og fjöru.
g. HOFSTBÖND
Lendingin er Stekkavík, út og niður af bænum Hofströnd, skammt innan við
Hofstrandarhamar. Lent er rétt utan við yztu klöppina niður af fjárréttinni á sjáv-
arbakkanum. Lendingin iiggur í suður. Klapparbotn með malarfjöru. Lendingin er
hrein, utan við hana eru blindsker, sem sést á um fjöru. Lendingin er allgóð, betri
um flóð.
h. HÖFN
Lendingin er i Hellisfjöru fast innan við Hafnartún og er önnur fjara inn frá
Hafnarhólma, innan við Skarfasker, sem er 80—100 m. fyrir innan Hafnarhólma.
Malarfjara, nokkuð brött, kólfhörð, en hreint úti fyrir. Leiðarmerki eru engin. Lend-
ingin er allgóð, bezt um hálffallinn sjó.
i. BRÚNAVÍK
Lendingin er norðanmegin i Brúnavíkinni, uin 200 m. frá sandi þeim, sem er
fyrir botni víkurinnar, beint undan yzta jaðri Brúnavíknrtúnsins, í háaustur frá
íbúðarhúsinu i Brúnavik. Lendingin er í norðvestur. Grjót og klappir. Leiðarmerki
eru engin. Á leiðinni eru blindsker og' boði. Lendingin er talin góð fyrir kunnuga,
bezt um hálffallinn sjó.
k. GLETTINGANES
Lendingin er í norðaustur af Glettinganesbsenum. Austan við hana liggur tiiett-
inganestangi í norður úr nesinu. Lendingin er í suður. Malarbotn. Leiðarmerki eru
engin. Norðaustanvert utan við mynni lendingarinnar er boði. Þegar inn er komið,
er lendingin talin góð.
I. KJÓLSVÍK
Lendingin er kölluð „Ker“, er niður af Kjólsvikurbœnam, sunnan við syðsta
bökuhornið. Klapparbotn. Engin leiðarmerki. Lendingin er slæin, en skárst um
fjöru. Boði er rétt suður undir bökuhorninu.
’ m. BREIÐAVÍK (Steinsfjörulending)
Lendingin er norðan við Breiðuvík, utan við klettahlein, sem er stutt utan við
krókinn, þar sem víkin beygist til austurs. Leiðarmerki eru engin. Lendingin er í
norður. Malarbotn. Lendingin er hrein, en talin miður góð, bezt um hálffallinn sjó.
n. LITLAVIK (Kambsvíkurlending)
Lendingin er sunnan í Breiðuvík, í fyrsta bás sunnan við Litlaviknrbæinn.
Leiðarmerki eru engin. Lendingin er í suðvestur. Malarbotn, nokluið stórgrýtt. I
mynni bássins er sker. Lendingin er talin miður góð.
o. HÚSAVÍK
Lendingin er sunnanvert við klöpp, sem liggur fram í sjó fyrir miðri Húsavik,
undir horninu á Húsavikurkambi, sem er heint upp af klöppinni. Lendingin er i
norðaustur. Malarbotn og klappir. Leiðarmerki eru engin, en farið er eftir dæld,
sem er sunnan við Húsavíkurkamb og á að bera í Dallandspart, sem er miðbærinn
í víkinni. Einn boði er í lendingunni nærri fjörunni. Lendingin er talin góð, bezt
um hálffallinn sjó.