Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Síða 8
Atvinnuleysi
Samkvæmt skilgreiningu Hagstofu íslands telst fólk atvinnulaust ef það
stundar ekki vinnu en hefur leitað eftir vinnu undanfarnar íjórar vikur og er
tilbúið að hefja störf innan tveggja vikna.
Opinber vinnumiðlun skráir ekki til fullnustu þá sem hafa verið utan
vinnumarkaðarins, en vilja hefja störf, t.d. nemendur eðaheimavinnandi fólk.
Þetta er misrétti sem nauðsynlegt er að bæta úr. Upplýsingar frá Hagstofu
Islands gefa því aðra mynd af atvinnuleysi en birtar eru frá Vinnumiðlun og
Félagsmálaráðuneyti (1. tafla).
1. tafla. Skráö atvinnuleysi 1991-1992
1991 1991 1992
Apríl 0/ Nóvember 0/ Apríl 0/
Vinnumarkaöstölur Hagstofu íslands /0 1,8 /0 2,7 /0 3.0
Þar af á skrá hjá Vinnumiðlun 1,3 1,5 2.1
Á skrá hjá Félagsmálaráðuneyti 1,4 1,6 2.9
Þess ber að geta að tölur frá Hagstofu íslands miðast við tiltekna dagsetningu
en tölur Félagsmálaráðuneytis ná yfir ákveðið tímabil.
í annarri töflu er sýnt atvinnuleysi meðal ungs fólks á aldrinum 16 til 29 ára.
Vegna þess hve fáir atvinnulausir einstaklingar á fyrrgreindum aldri lenda í
úrtaki í apríl 1992 verða tölur eftir aldri nokkuð breytilegar og nánast
ómarktækar.
2. tafla. Atvinnuleysi meöal ungs fólks, nóv. 1991 og apríl og nóv. 1992
Nóvember1991 Apríl 1992 Nóvember1992
16-19 ára 9,5% 4,5% 16%
20-29 ára 3,5% 5,3% 7,5%
Heimild: Hagstofa íslands
Langtímaatvinnuleysi hefur aukist mikið, sérstaklega á þessu ári. Skamm-
tímaatvinnuleysi hefur einnig aukist. Atvinnuleysi hefur undanfarin ár verið
hlutfallslega meira hjá konum en körlum. I lok maímánaðar 1992 voru um 700
námsmenn á atvinnuleysisskrá án þess að hafa bótarétt. Reykjavíkurborg hljóp
síðan undir bagga með þessu fólki.
8