Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Side 10

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Side 10
Fangelsismálastofnun ríkisins Frestun ákæru Ríkissaksóknara er heimilt að fresta ákæru í málum ungmenna á aldrinum 15-21 árs. Sjá 56. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Frestun ákæru þýðir að ríkissaksóknari frestar um tiltekinn tíma ákæru til refsingar vegna afbrota unglinga á þessum aldri. Aðallega er hér um að ræða fjárréttindabrot. Skilorðstíminn er yfirleitt ákveðinn 2 ár. Ef viðkomandi brýtur ekki af sér á skilorðstíma fellur málið niður og verður ekki tekið upp aftur. Þegar ríkissaksóknari hefur ákveðið að fresta ákæru á ungmenni búsettu á höfuðborgarsvæðinu, sendir hann gögn í málinu til fangelsismálastofnunar. Fulltrúi félagsmáladeildar sér um að boða viðkomandi til viðtals. Algengt er að foreldrar eða önnur skyldmenni mæti með unglingnum í fyrsta sinn. Farið er vel yfir málið og skýrt hvað frestun ákæru þýðir. Hagir unglingsins eru kannaðir og athugað hvort hann á fleiri mál í kerfinu. Síðan er það mat fulltrúans hvað unglingurinn mætir oft til viðtals á skilorðstímanum. Þessi viðtöl eru fyrirbyggjandi “meðferð” og oft tekst að stöðva unglinginn á afbrotabrautinni. Unglingurinn veit að hann getur leitað til fangelsismála- stofnunar ef hann á í vandræðum og fengið aðstoð, ráðgjöf og stuðning. Mikilvægt er fyrir foreldra unglingsins að geta leitað til stofnunarinnar. Einn fulltrúi sinnir þessu starfi. A árinu 1991 var 84 ungmennum á aldrinum 15-22 ára birt skilorðsbundin frestun ákæru hjá fangelsismálastofnun ríkisins. Það eru 36 færri en á árinu 1990, en þá var 120 ungmennum birt skilorðsbundin frestun ákæru hjá stofnun- inni. Fyrsta janúar 1992 voru 204 ungmenni með ákærufrestun undir umsjón og eftirliti stofnunarinnar. Skýringin á fækkun á milli ára liggur m.a. í því að seint á árinu 1990 var hætt að boða ungmenni af Suðurnesjum og Suðvesturlandi til fangelsismálastofnunar, en þeim er birt frestun ákæru heima í héraði. Stúlkur eru 19% af hópnum, hlutur þeirra hefur aukist um 5% frá árinu 1990. Eins og áður hafa flestir piltanna gerst sekir um innbrot og þjófnaði, en stúlkur- nar um skjalafals. Fleiri eru í skóla eða 51% af hópnum miðað við 41,7% á árinu 1990. Atvinnu- lausir og sjúklingar eru 13%, sem er um 3% aukningfrá árinu áður . 5. tafla. Tölulegar upplýsingar um þau ungmenni, sem ákæru var frestað gegn, skilorðsbundiö, á árinu 1991. Afbrot Fjöldi pilta % Fjöldi stúlkna % Fjöldi alls % Skjalafals 8 12,0 14 87,4 22 26,0 Innbrot, þjófn. og nytjataka 58 85,1 2 12,6 60 71,6 Önnur brot 2 2,9 0 0 2 2,4 Alls 68 100,0 16 100,0 84 100,0 10

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.