Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Side 12

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Side 12
Meðferð innan og utan fangelsa Viðamesti þátturinn í starfi sálfræðings fangelsisimálastofnunar er að vinna með fongum og öðrum skjólstæðingum stofnunarinnar. Hér er um að ræða viðtöl og meðferð bæði innan fangelsanna og á skrifstofu sálfræðingsins. Þessi meðferðarvinna inniheldur meðal annars félagshæfniþjálfun, reiðistjórnun og áfengis- og vímuefnameðferð. 011 þessi meðferðarvinna er í formi einstakl- ingsmeðferðar. Hópmeðferð hefur verið reynd víða erlendis og hefur sýnt sig að vera árangursrík og hagkvæm leið. Frá árinu 1990 hefur sú nýbreytni verið tekin upp að gefa fóngum kost á að afplána síðasta hluta afplánunar í áfengismeðferð hjá SÁÁ. Árlega hafa 12-15 fangar lokið afplánun í meðferð. Eftirspurn eftir sálfræðiþjónustu hefur aukist jafnt ogþétt síðustu ár. Nú er svo komið að fangar þurfa undantekningarlaust að bíða eftir því að komast að hjá sálfræðingnum og fleiri leita eftir aðstoð en unnt er að sinna. Auka þyrfti sálfræðiþjónustu, bæði að fjölbreytni og magni. Ef anna á eftirspurn eftir þess- ari þjónustu á vegum fangelsismálastofnunar væri æskilegt að ráða fleiri sálfræðinga til starfa, en nú starfar aðeins einn sálfræðingur hjá stofnuninni. Starfi þeirra tveggja félagsráðgjafa, sem starfa hjá fangelsismálastofnun, má skipta í tvennt. I fyrsta lagi sjá þeir um félagslega þjónustu við afplánunar- fanga. I því felst annars vegar aðstoð við úrlausn alls kyns “praktískra” mála og hins vegar stuðningur, ráðgjöf og meðferð. Sú meðferð sem fram hefur farið til þessa er öll í formi einstaklingsmeðferðar. Allir afplánunarfangar, sem eru u.þ.b. 100 talsins, eiga aðgang að félagsráðgjöfunum, sem um leið takmarkar mjögþann Qölda, sem hægt er að veita þjónustu á sviði meðferðar. I öðru lagi sinna félagsráðgjafar umsjón og eftirliti með þeim, sem fengið hafa skilorðsbundna reynslulausn eða náðun. Fjöldi þessara skjólstæðinga er um 200. Þessi mikli fjöldi útilokar að hægt sé að veita hverjum og einum þá aðstoð sem nauðsynleg væri, fyrir og eftir losun, við að skipuleggja framtíðina og undirbúa endurkomu út í þjóðfélagið. Aðstandendur fanga hafa sótt stuðning og ráðgjöf til félagsráðgjafa stofnunarinnar, en sá stuðningur hefur alfarið verið í formi einstaklingsmeðferðar. Æskilegt væri að geta boðið skjólstæðingum upp á Qölskyldumeðferð. Fjöldi fanga og skipting þeirra eftir aldri, búsetu og brotaflokkum Á árunum frá 1980 til 1991 hefur fóngum íjölgað í öllum aldurshópum. Fjölgunin hefur verið minnst meðal 16-20 ára og mest meðal 31 árs og eldri. 6. tafla Fjöldi fanga 16 ára og eldri er luku afplánun á árunum 1980-1991 á 10.000 íbúa (allt landið) 1980-1984 1985-1989 1990-1991 Aukning* 16-20 ára 7,3 7,9 9,1 +24,7% 21-25 ára 19,1 28,1 29,1 +57,1% 26-30 ára 19,3 27,1 27,6 +43,0% 31 árs og eldri 7,6 10,1 14,4 +89,5% *Aukningfrá 1980-84 til 1990-91 Heimild: Fangelsismálastolnun ríkisins. 12

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.