Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Síða 14
Lögreglan í Reykjavík
Á síðustu árum hefur orðið gífurleg ljölgun á kærum vegna meðferðar
fíkniefna, sérstaklega meðal ungs fólks á aldrinum 18-21 árs. Tvær skýringar
eru sennilega á þessari fjölgun kæra, annars vegar Qölgun neytenda og mikið
magn fíkniefna, hins vegar gæti hluti skýringarinnar verið að lögreglan sinni
meira “minni málum” nú en áður.
8. tafla. Kærur vegna meöferöar fíkniefna
1987 1988 1989 1990 1991
15-18 ára 12 31 27 31 70
18-21 árs 84 80 79 108 212
21-25 ára 117 150 100 96 109
Heimild: Lögreglan í Reykjavík
ísland er mitt á milli framleiðslu- og markaðssvæðis fyrir kókaín. Markaður-
inn í Bandaríkjunum er mettur og stóru fíkniefnasöluhringirnir stefna nú á
Evrópu. Að undanfornu hefur verið tekið ótrúlega mikið magn af kókaíni á
Spáni, Bretlandi og í Þýskalandi. Með tilliti til vægra refsinga á Islandi er það
mjög álitlegur kostur fyrir kókaínbaróna að koma upp dreifingarstöð fyrir
Evrópu hér á landi.
Hámarksrefsing fyrir fíkniefnabrot er 10 ára fangelsi og er þá sama hversu
mikið magn af fíkniefnum menn hafa undir höndum. Það er umhugsunarvert
hvort ekki sé rétt að breyta þessu og hækka rammann, áður en "stóra" málið
kemur upp.
I sumum tilvikum væri líklega árangursríkara að dæma menn í meðferð eða
aðra óhefðbundna refsingu, heldur en að sekta þá, því sekt getur verið hvetjandi
fyrir fíkniefnaneytanda. Hann þarf þá að útvega meiri peninga fyrir fíkniefnum
og sekt og auðveldasta leiðin fyrir hann er að "búa til" nýja neytendur og selja
þeim fíniefni.
Vanþekking almennings á áhrifum og afleiðingum vímuefna er ótrúlega mikil.
í þeim starfsstéttum sem vinna með fólk er hún einnig talsverð. Fólk er
almennt forvitið um fíkniefni og hlustar vel þegar þau eru til umræðu. Það eru
margir, sérstaklega meðal þeirra yngri, sem fá sína einu fíkniefnafræðslu hjá
kunningum og eru mestar líkur á að sannleikurinn sé rangtúlkaður. Með
skipulögðu námskeiðahaldi fyrir uppalendur, útgáfu fræðusluefnis og gerð sjón-
varpsþátta mætti breyta þeim ljóma, sem í hugum margra, starfar af fíkni-
efnum.
Hér á eftir verður fjallað um nokkrar tegundir afbrota sem eru tíð meðal ungs
fólks ogtengjastgjarnan notkun vímuefna.
Líkamsmeiðingar
Á síðustu þremur árum voru að meðaltali 400 einstaklingar kærðir á ári
vegna líkamsmeiðinga hjá lögreglunni í Reykjavík. Ef tekið er tillit til íbúafjölda
þá eru kærur tíðastar meðal ungs fólks á aldrinum 15-24 ára.
14