Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Blaðsíða 23
Notkun kókaíns
Kókaínneysla er sjaldan tilefni komu á stofnun, heldur koma þessar
upplýsingar fram í sjúkál. Stórneytendur þ.e. oftar en xlO, eru fáir.
Kókaín hefur haldið innreið sína í landið. Greinileg aukning hefur orðið á
kókaínneyslu meðal 16-19 ára.
Notkun kókaíns meðal þeirra er fóru í framhaldsmeðferð
á Staðarfelli og Sogni 1987-1990
9. mynd.
Ef á heildina er litið hefur sjúklingum 20 ára og eldri með vímuefnavandamál
ekki Qölgað, en fjölgun hefur orðið meðal þeirra yngri.
Horfur
Unglingum er vistast á Vogi vegna vímuefnavanda hefur fjölgað verulega en
nokkur fækkun er meðal þeirra eldri. Svipaður fjöldi stúlkna hefur vistast á
Vogi 1986-1991 og pilta. Kókaín hefur haldið innreið sína í landið.
Léleg menntun, slæmar heimilis- og félagslegar aðstæður þeirra unglinga er
fengið hafa meðferð á Vogi gera batahorfur þeirra mun verri en vera skyldi. Um
30% ungmenna er vistuðust á Vogi höfðu ekki lokið skyldunámi. Auk menntun-
arskorts, þ.e. jafnvel erfiðleikar við að lesa og skrifa, gerir léleg eða engin
vinnuþjálfun þessum unglingum erfitt fyrir að fá atvinnu. Margir munu því
fylla hóp atvinnulausra. Fyrir marga þessara unglinga er hluti endurhæfingar
fjólgin í því að opna þeim leið til náms að nýju. Margir unglinganna búa við það
að foreldrar eða foreldri eru áfengissjúkir. Um 70% unglinganna verða að búa
við það að foreldrar eða eldri systkini nota áfengi á heimili þeirra er þeir snúa
til síns heima. Brýnt er að efla til muna Qölskyldumeðferð. (Ársskýrsla SÁÁ
1991).
23