Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Síða 46

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Síða 46
Samverkandi orsakir þessa sjúkdóma eða vanheilsu má meðal annars rekja til fjárhagsvanda, einangrunar, streitu, sálarkramar, reykinga og neyslu áfengra dp'kkja. Nokkuð er deilt um orsakasamband. Eru sumir verr fallnir til þess að lifa í hjónabandi en aðrir vegna þess að þeir eða þær eiga við vanheilsu að stríða? Trúlega hefur munurinn á heilsufari milli þeirra fráskildu og giftra minnkað efdr því sem hjónaskilnaðir verða fleiri. Nýrri niðurstöður benda þó tvímælalaust til þess að verulegur heilsufarsmunur sé á ferðinni. Áhrif lögskilnaöa á börn og unglinga.^4-56-7) Hvernig farnast börnum sem lenda í skilnaði? Oft hefur því verið haldið fram að áhrif skilnaðar á börn séu einungis skammvinn. Svo er ekki. Samkvæmt niðurstöðum erlendra rannsókna þjást 1/3 þessara barna síðar meir af óöryggi og óhamingju, sérstaklega er skilnað ber að við ungan aldur. Þessi böm eru oft haldin vanmáttarkennd, sjálfsásökun, árásargimi og óróa. Þeim gengur verr í skóla og hverfa oftar frá námi en þau sem ekki verða fyrir þessu áfalli. Seinna meir ber meira á slæmri geðheilsu og þau lenda oftar í skilnaði en aðrir. Athyglisvert er að dauði föður eða tíðar fjarvistir hans virðast hafa minni langtíma áhrif á börn en missir föðurs vegna hjónaskilnaðar. Áhugavert er að börnum er fæðast utan hjónabands (ungar mæður) famast oft betur en bömum er lenda í aðskilnaði foreldra (G. Snædal og Gunnar Biering). Trúlega er orsökin sú að fjölskyldutengsl og aðstoð náinna aðstandenda við þau eru oft dl fyrirmyndar. Heimildin 1) Hagstofa íslands 1992. 2) Yearbook of Nordic Stat. NORD 1991: 1. Nordstedts Tryckeri Stokholm 1991. 3) Ó. Ólafsson Mannvemd í velferðarþjóðfélagi. Fylgirit við Heilbrigðisskýrslur 1988 nr. 2. 4) M. Jellinech et al. Divorce impact on children. N. Engl. J. Med. 1981 305: 557-560. 5) C.F. Donovan. Divorce British Medical Joumal 1984, 2, 289:597-600. 6) J.S. Wallerstein. Children of Divorce. Ten years follow up. An J. Orthopsykiatry 1984,54 (3) 444-448. 7) B. Hayward. Single parent family inq. A call for information OECD Paris 1984. 8) Upplýsingar úr mæðraskrá. Kvensjúkdómadeild Landspítalans. Landlæknisembættið 1992. 9) Social tryghed i de nordiske lande. Nord. Stat. skriftserie, Kaupmannahöfn 1989. 10) Sigurjón Bjömsson. Böm í Reykjavík 1990. 11) Ungir vímuefnaneytendur, hvaðan koma þeir og hvert halda þeir? Fylgirrit við Heilbrigðisskýrslur 1990 nr. 4. 46

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.