Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Page 8
3.0 AÐFERÐIR
Könnunin var framkvæmd í tveim áföngum. Fyrst var eins dags
forkönnun 22. ma£ 1974 og síðar á árinu 16. til 22. september
fór aðalkönnunin fram. Rannsóknartíminn var valinn með hlið-
sjón af Hvammstangakönnuninni (9) sem sýndi að læknissókn er
í meðallagi á þessum árstíma.
3,1 Forkönnun
Framkvæmd forkönnunar var með þeim hætti að 53 læknum voru
send rannsóknargögn sem voru tvær tegundir eyðublaða:
Samskiptaseðill I (8.1) og Yfirlit um vinnutíma, ásamt leið-
beiningum og skýringum (8.2) og Sjúkdómaskrá (8.3) sem lögð
var til grundvallar við greiningu meginástæðna samskipta að
mati læknis.
3.2 Aðalkönnun
Notaður var samskiptaseðill II (sjá bls. 11) en með hliðsjón
af forkönnun höfðu verið gerðar þrjár breytingar á samskipta-
seðli I. í fyrsta lagi skyldi nú merkja sérstaklega hvort
erindi var eingöngu afgreitt af lækni, hjúkrunarfræðingi, meina-
tsácni, ljósmóður eða öðru heilbrigðisstarfsfólki. 1 öðru lagi
var flokkum meginástæðna fjölgað úr 18 í 19 þar eð ungbarnaeft-
irlit var skilið frá annars konar heilsuvernd. í þriðja lagi
var fjölgað um einn lið í úrlausnardálki.
Aðalkönnuninni var ætlað að ná yfir fjögur af fimm læknishéruð-
um landsins samkvæmt skilgreiningu laga nr. 56/1973: Suður- og
Vesturlandshérað, Vestfjarðahérað, Norðurlandshérað og Austur-